Fréttir
119 120 121 122 123 124 125 126 127 … 334 ›
Segjast hafa bjargað gísl úr jarðgöngum á Gasa Ísraelsher segist hafa frelsað karlmann á sextugsaldri sem vígamenn Hamas-samtakanna tóku í gíslingu í október. Manninum var haldið í neðanjarðargöngum á sunnanverðri Gasaströndinni. Erlent 27.8.2024 14:53
Mikill fjöldi lýst atburðarásinni við Skúlagötu Stúlka sem stungin var ítrekað með hníf í bíl við Skúlagötu að lokinni flugeldasýningunni á Menningarnótt er enn í lífshættu. Rannsókn lögreglu er sögð miða vel. Mikill fjöldi fólks varð vitni að árásinni. Innlent 27.8.2024 14:32
Hersveitir, herskip og flugvélar á sveimi við Ísland næstu daga Varnaræfingin Norður-Víkingur, tvíhliða varnaræfing Íslands og Bandaríkjanna, hófst í gær og stendur yfir til þriðja september. Æfingin fer fram hér á landi og á hafsvæðinu umhverfis Ísland en auk Íslands og Bandaríkjanna taka þátt í æfingunni bandalagsríkin Danmörk, Frakkland, Holland, Noregur, Pólland og Portúgal. Þá tekur hluti fastaflota Atlantshafsbandalagsins þátt í æfingunni. Innlent 27.8.2024 14:17
Fyrirvari um ábyrgð alls ekkert fríspil Sérfræðingur í bótarétti segir ábyrgðarleysisyfirlýsingu sem ferðamenn undirrita áður en farið er í íshellaferðir ekki losa menn undan ábyrgð ef sök er sönnuð. Það sé hins vegar langsótt að Vatnajökulsþjóðgarður verði gerður ábyrgur fyrir slysum. Innlent 27.8.2024 13:01
Danir hvattir til að eiga neyðarvistir, mat og lyf til þriggja daga Danir eru hvattir til að eiga matarbirgðir, vatn, lyf og aðrar vistir til minnst þriggja daga til að vera viðbúnir mögulegu neyðarástandi. Um fjórar og hálf milljón Dana sem hafa náð átján ára aldri fá bréf frá stjórnvöldum þess efnis á næstu vikum. Erlent 27.8.2024 12:58
Hinn grunaði ógæfumaður sem íbúar höfðu áhyggjur af Tengsl hins grunaða við hjón á áttræðisaldri sem fundust látin í Neskaupstað á fimmtudag, voru hvorki mikil né djúp eftir því sem lögregla kemst næst þótt enn sé unnið að því að upplýsa um þann þátt málsins. Niðurstöður krufninga munu liggja fyrir fljótlega. Innlent 27.8.2024 12:01
Sorglegt að búið hafi verið að vara við sumarferðum Ríkisstjórnin hefur falið starfshóp að skoða slysið í Breiðamerkurjökli og mögulegar brotalamir því tengdar. Í skýrslu sem var unnin fyrir Vatnajökulsþjóðgarð er varað við íshellaferðum að sumarlagi og forsætisráðherra segist hugsi yfir að ekki hafi verið tekið tillit til þess. Innlent 27.8.2024 12:00
Starfshópi falið að skoða slysið og styttist í niðurstöður krufninga Forsætisráðherra segist hugsi yfir því að ekki hafi verið tekið tillit til skýrslu, sem unnin var fyrir Vatnajökulsþjóðgarð 2017, þar sem varað er við íshellaferðum að sumarlagi. Starfshópi hefur verið falið að taka slysið á Breiðamerkurjökli til skoðunar. Innlent 27.8.2024 11:30
Þyrlusveitin kölluð til fjórum sinnum síðasta sólarhringinn Þyrlusveitir Landhelgisgæslunnar hafa sinnt fjórum útköllum síðasta sólarhringinn ofan á það að hafa sinnt viðbragði við Breiðamerkurjökli í gær. Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir þyrlusveitina hafa sinnt sjúkraflugi vegna bráðra veikinda á Hvammstanga, Hornbjargi og Grundarfirði og svo á skemmtiferðaskipi sem var um 150 sjómílur norður af Ísafirði. Innlent 27.8.2024 11:20
Blöskrar myndbirting: „Er enginn fullorðinn sem vinnur þarna?“ Dagur B. Eggertsson forseti borgarráðs er verulega ósáttur við myndbirtingu af sér í Morgunblaðinu í dag. Hann sendir „aðstandendum Morgunblaðsins“ innilegustu samúðarkveðjur. Innlent 27.8.2024 11:17
Sumarferðir ekki byrjaðar þegar skýrsla var gerð Margskonar hættur fylgja íshellum sem eru í eðli sínu óstöðugir og síbreytilegir samkvæmt skýrslu sem var unnin um íshellaferðir í Vatnajökulsþjóðgarði fyrir sjö árum. Í henni var ekki gert ráð fyrir að farið væri með fólk í hella að sumarlagi. Innlent 27.8.2024 11:09
Skora á yfirvöld að bregðast við aukinni netsölu áfengis Svokölluð breiðfylking félaga heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka skora á yfirvöld að bregðast við aukinni netsölu á áfengi. Fylkingin hefur miklar áhyggjur af fyrirhugaðri áfengissölu í Hagkaupum sem á að hefjast á næstu dögum. Innlent 27.8.2024 10:59
Áfrýjar ákvörðun dómara um að vísa leyniskjalamáli Trump frá Saksóknarinn Jack Smith fór þess á leit við áfrýjunardómstól í gær að hann snéri við frávísun dómarans Aileen M. Cannon á dómsmáli gegn Donald Trump, sem varðar meðferð forsetans fyrrverandi á trúnaðargögnum. Erlent 27.8.2024 10:06
Rannsaka skipstjóra lystisnekkjunnar sem sökk Ítalskir saksóknarar rannsaka nú skipstjóra lystisnekkjunnar Bayesian sem sökk undan ströndum Sikileyjar fyrr í þessum mánuði. Hann er grunaður um manndráp og að valda sjóslysi. Erlent 27.8.2024 09:12
Áríðandi að slysið verði rannsakað og öllum spurningum svarað Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segist hafa verið sleginn yfir slysinu við íshellinn á Breiðamerkurjökli um helgina. Hann segist þakka fyrir það að fleiri hafi ekki lent undir ísfarginu. Innlent 27.8.2024 09:09
Tveggja daga viðræður um myndun ríkisstjórnar engu skilað Pattstaða ríkir enn í pólitíkinni í Frakklandi en Emmanuel Macron Frakklandsforseti neitar ennþá að útnefna forsætisráðherra úr röð vinstrihreyfingarinnar, sem fékk flest atkvæði í þingkosningunum í sumar. Erlent 27.8.2024 07:38
Börn sofi ekki úti í vagni vegna gosmóðu Þess má vænta að töluverð gosmóða og reykur frá gróðureldum vegna eldgossins við Sundhnúksgíga leggist yfir byggð í dag. Gosvirkni hefur verið stöðug í nótt og strókavirkni kröftug. Innlent 27.8.2024 07:19
Lægð suðvestur af landinu og á leið austur Minniháttar hæðarhryggur er nú yfir landinu og eru því víða hægir vindar og verður bjart með köflum. Suðvestur af landinu er hins vegar dálítil lægð á hreyfingu austur sem mun valda austanstrekkingi og smá rigningu við suðurströndina. Veður 27.8.2024 07:13
Fjórir látnir eftir aðra umferð loftárása Rússa í nótt og morgun Íbúar víðsvegar um Úkraínu voru hvattir til að leita skjóls í morgun, annan daginn í röð, vegna umfagnsmikilla loftárása Rússa. Tveir létust í árás á hótel í borginni Kryvyi Rih í nótt og tveir til viðbótar í drónaárásum á Zaporizhzhia. Erlent 27.8.2024 06:39
Segja Kínverja hafa ógnað fullveldi Japan Japönsk stjórnvöld segja kínverska herinn hafa brotið gegn fullveldi landsins og ógnað öryggi þegar kínversk herflugvél flaug inn í lofthelgi Japan í gær. Erlent 27.8.2024 06:23
Einn handtekinn í tengslum við stórfellda líkamsárás Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók einn í gærkvöldi eða nótt í tengslum við rannsókn á stórfelldri líkamsárás og þrjá í tengslum við rannsókn á ráni. Innlent 27.8.2024 06:14
Magakveisur ekki til þess að fólk forðist skála FÍ Fólk hefur ekki afpantað gistingu í skálum Ferðafélags Íslands eftir að fregnir af nóróveirusmitum bárust í síðustu viku. Ólíklegt er talið að smitin megi rekja í vatnsból við skálana. Innlent 27.8.2024 06:12
Fluttu kókaín til landsins í kaffikönnu og útvarpstæki Þrír menn hafa verið dæmdir til fangelsisvistar fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot eftir að hafa reynt að smygla kókaíni til landsins. Annars vegar voru efnin flutt í kaffikönnu frá Frakklandi, og hins vegar í útvarpstæki frá Sviss. Innlent 26.8.2024 23:55
Sífellt fleiri ungmenni með hníf til að verja sig Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur segir að útköllum vegna vopnaburðar hafi fjölgað verulega á síðustu árum. Sjö prósent ungmenna frá 7. bekk að 1. ári í framhaldsskóla svöruðu því játandi að hafa borið hníf í nýlegri könnun. Flestir sögðust hafa viljað verja sig. Innlent 26.8.2024 23:00
Fjórir strákar og tuttugu og sjö stelpur fá námsstyrk í Háskóla Íslands Þrjátíu og einn nýnemi við Háskóla Íslands, sem náð hefur framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs, tók við styrk út Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ í dag. Styrkþegarnir samanstanda af 27 stelpum og 4 strákum. Innlent 26.8.2024 21:03
Óvissustigi aflétt á Tröllaskaga Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra ákveðið að fara af óvissustigi Almannavarna sem sett var á 23. ágúst síðastliðinn vegna mikillar rigningar og skriðuhættu á Tröllaskaga. Innlent 26.8.2024 20:37
Sýnileg gasmengun en ekki hættuleg Gasmengun mælist í Reykjanesbæ og nágrenni vegna eldgossins sem enn mallar á Reykjanesskaga. Að sögn náttúruvársérfræðings stafar ekki hætta af menguninni. Innlent 26.8.2024 20:15
Alsæl með meiri svefn: „Þessi hálftími gerir mjög mikið!“ Tíundu bekkingar í Hagaskóla hoppa hæð sína yfir að fá nú að sofa hálftíma lengur eftir breytingu hjá Reykjavíkurborg. Svefnsérfræðingur bindur vonir við að önnur sveitarfélög fylgi í kjölfarið. Innlent 26.8.2024 20:02
Faðir pilts sem lenti í stunguárás hélt að sonurinn væri látinn Faðir palestínsks drengs sem varð fyrir alvarlegri stunguárás á menningarnótt ásamt tveimur íslenskum stúlkum segist hafa talið að hann væri að bjarga lífi barnanna sinna með því að flytja til Íslands. Hann óttast nú um líf sonarins. Innlent 26.8.2024 19:34
Fundu virka sprengju nærri gönguleið Virk sprengja hefur fundist nærri gönguleið sunnan Voga og sunnan Reykjanesbrautar við upphaf eldgossins. Svæðið er þekkt sprengjusvæði, en þar stóð bandaríski herinn fyrir skotæfingum allt fram til ársins 1960. Innlent 26.8.2024 19:15