Fréttir
139 140 141 142 143 144 145 146 147 … 334 ›
Allt svo snyrtilegt við höfnina í Vestmannaeyjum Miklar endurbætur hafa verið gerðar á höfninni í Vestmannaeyjum þar sem áhersla er lögð á snyrtimennsku og virðingu við gamla tímann með allskonar nýjungum. Innlent 11.8.2024 20:31
Úkraínumenn vilji valda upplausn Úkraínuforseti vill með skyndisókn Úkraínuhers innan landamæra Rússlands knýja fram réttlæti og beita Rússa þrýstingi. Aðgerðirnar ná nú þrjátíu kílómetra inn fyrir landamæri Rússa. Úkraínumenn eru sagðir vilja valda Rússum sem mestum skaða og veikja getu þeirra til árása í Úkraínu. Erlent 11.8.2024 20:17
Löturhæg umferð inn í borgina Þung umferð hefur verið á Þjóðvegi 1 frá Hellisheiði og inn á höfuðborgarsvæðið nú síðdegis. Greinilegt er að margir eru á heimleið eftir ferðalög í dag og er bíll við bíl vel framhjá Vífilsfelli, að sögn vegfaranda. Innlent 11.8.2024 18:40
Stríðið í Úkraínu og tekist á um gjaldfrjáls námsgögn Úkraínuforseti vill ná fram réttlæti og beita Rússa þrýstingi með sóknaraðgerðum úkraínuhers innan landamæra Rússlands. Aðgerðirnar ná nú tugi kílómetra inn fyrir landamæri Rússlands. Farið verður yfir stöðuna í stríði ríkjanna í kvöldfréttum Stöðvar 2 og rætt við sérfræðing í öryggis- og varnarmálum í beinni útsendingu. Fréttir 11.8.2024 18:15
Námsgögn verði einnig gjaldfrjáls í framhaldsskólum Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, segir að stefnt sé að því að gera námsgögn gjaldfrjáls í framhaldsskólum fyrir 18 ára og yngri. Hann segist mjög fylgjandi gjaldfrjálsum námsgögnum og skólamáltíðum. Innlent 11.8.2024 17:08
Úkraínski herinn kominn um 30 kílómetra inn í Rússland Úkraínski herinn hefur komist um 30 kílómetra inn í Rússland. Gagnárás Úkraínumanna hófst fyrr í vikunni og hefur Rússland lýst yfir neyðarástandi vegna hennar. Erlent 11.8.2024 17:07
Segir Írani hafa hakkað tölvupósta framboðsins Kosningateymi Donalds Trump kveðst hafa orðið fyrir árás hakkara, og kennir Írönum um. Í yfirlýsingu frá teyminu í gær segir að óprúttnir aðilar hafi komist yfir innri samskipti kosningateymisins og því haldið fram að Íranir stæðu að baki árásinni. Erlent 11.8.2024 16:06
Þyrluflugmenn uggandi: „Klárt að þetta hefur neikvæð áhrif“ Íslenskir þyrluflugmenn hafa áhyggjur af öryggi og eftirliti með erlendum ferðaþjónustufyrirtækjum sem sinna þyrluflugi hérlendis. Nokkuð er um að öryggisáætlunum sé ábótavant, bæði hjá íslenskum og erlendum fyrirtækjum að sögn sérfræðings hjá Ferðamálastofu. Innlent 11.8.2024 15:08
Þykir sárt að vera stunginn í bakið af vini sínum Lögmaður Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara hefur sent dómsmálaráðherra bréf þar sem þess er krafist að áminning sem hann hlaut frá Sigríði Friðjónsdóttur ríkissaksóknara verði afturkölluð. Innlent 11.8.2024 13:25
Treystir Útlendingastofnun fullkomlega Um sjö fjölskyldum frá Venesúela var vísað úr landi í gær þrátt fyrir óöldina þar í landi eftir umdeildar forsetakosningar fyrir rúmri viku síðan. Formaður allsherjar- og menntamálanefndar segist treysta mati útlendingayfirvalda í málaflokknum. Innlent 11.8.2024 12:23
Eldur í flugskýli í Múlakoti í nótt Í nótt barst lögreglunni á Suðurlandi tilkynning um eld í gömlu flugskýli í Múlakoti. Vel gekk að ráða niðurlögum hans. Innlent 11.8.2024 12:21
Fjölskyldur sendar úr landi og viðvörunarkerfi í Grindavík Um sjö fjölskyldum frá Venesúela var vísað úr landi í gær þrátt fyrir óöldina þar í landi eftir umdeildar forsetakosningar fyrir rúmri viku síðan. Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður rætt við formann allsherjar- og menntamálanefndar sem segist treysta mati Útlendingayfirvalda í málaflokknum. Innlent 11.8.2024 11:51
Enn gasmengun í lægðum en rafleiðni nálgast eðlileg gildi Vatnshæð og rafleiðni í Skálm við Þjóðveg 1 hefur haldið áfram jafnt og þétt að lækka, og nálgast nú eðlileg gildi. Gasmengun mælist áfram við Láguhvola nærri Kötlujökli en hefur lækkað síðan í gær. Innlent 11.8.2024 11:27
Sérsveitin kölluð til vegna manns sem skaut úr haglabyssu Sérsveitin var kölluð til aðstoðar lögreglunnar á Suðurnesjunum í gærkvöldi vegna manns sem hafði skotið úr haglabyssu. Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir athæfið hafi ekki beinst að neinum. Maðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöð. Innlent 11.8.2024 10:55
„Fullorðna fólk, grow up!“ Páll Óskar segir að á meðan fólk er ennþá að kasta pílum í það hvernig fólk lítur út, hvað það gerir eða hvernig það lifir lífinu sínu, séum við ekki frjáls, og Gleðigangan haldi áfram. Fólk sem dreifi óhróðri og óábyrgum upplýsingum á netinu þurfi að þroskast. Innlent 11.8.2024 10:24
Hundurinn í hættu eftir að súkkulaði var sett inn um lúguna Eigandi hunds sem veiktist alvarlega, eftir að hafa étið sendingu frá tryggingafélagi sem kom inn um bréfalúguna, bendir á að fólk viti aldrei hver sé hinu megin við dyrnar, hvort sem það er gæludýr eða barn með bráðaofnæmi. Því sé ekki ráðlegt að senda fólki mat í pósti. Innlent 11.8.2024 10:01
Helgi Magnús ritar ráðherra bréf og Ásmundur Einar um menntakerfið Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. Innlent 11.8.2024 09:59
Skúrir síðdegis í dag Veðurstofan spáir suðaustlægri og breytilegri átt í dag. Skúrir verða allvíða, sérstaklega síðdegis. Talið er að hiti verði átta til fimmtán stig. Veður 11.8.2024 08:09
Vistaður í fangaklefa þangað til lögregla kemst að því hver hann er Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að takast á við nokkur verkefni í nótt sem vörðuðu ólæti og slagsmál. Nokkur þeirra voru í miðborginni, eitt slíkt mál var í Breiðholti, og þá var lögreglan kölluð út í Hafnarfirði vegna óláta og slagsmála í ölhúsi. Innlent 11.8.2024 07:32
Mótmæla brottvísun stórs hóps hælisleitenda Hópur fólks frá Venesúela er staddur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar til að mótmæla brottvísun samlanda sinna. Fjöldi hælisleitenda frá Suður-Ameríku ríkinu flýgur frá Íslandi í kvöld og er byrjað að innrita hópinn. Innlent 10.8.2024 23:39
Þyki málið miður og til greina komi að breyta gönguleið Formanni Hinsegin daga þykir miður að fólk viðstatt Gleðigönguna hafi fundið fyrir óöryggi þegar tveir vagnar lentu á járngrindum sem stóðu nálægt hópi áhorfenda. Öryggismál séu tekin alvarlega og óhöppin verði tekin til skoðunar. Til greina komi að breyta leið göngunnar til að auka öryggi viðstaddra. Innlent 10.8.2024 22:41
„Þetta getur ekki verið svona aftur á næsta ári“ Betur fór en á horfðist þegar bílstjórar tveggja vagna í Gleðigöngu Hinsegin daga keyrðu á grindverk sem stóð við mannþvögu á horni Bankastrætis og Skólavörðustígs í dag. Járngrindverk splundraðist í sundur að sögn sjónarvotta og steinstólpi losnaði en ekki er vitað til þess að slys hafi orðið á fólki. Innlent 10.8.2024 20:39
„Þið vitið ekki hver raunveruleikinn þarna er“ Hælisleitendur óttast um líf sitt verði þeir sendir til baka til Venesúela frá Íslandi. Lögmaður segir útlendingayfirvöld ekki taka mið af óöldinni sem ríkir í Venesúela eftir endurkjör forsetans. Flugvél full af hælisleitendum frá Venesúela flýgur frá Keflavíkurflugvelli í kvöld. Innlent 10.8.2024 19:30
Hælisleitendur óttast um líf sitt og hundur veikur eftir súkkulaði Hælisleitendur óttast líf sitt verði þeir sendir til baka til Venesúela frá Íslandi. Lögmaður segir útlendingayfirvöld ekki taka mið af óöldinni sem ríki í Venesúela eftir endurkjör forsetans þar þegar hælisleitendum þaðan er vísað úr landi. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 þar sem rætt verður við fólk sem bíður brottvísunar. Fréttir 10.8.2024 18:10
Rafleiðni og vatnshæð aftur lækkandi í ánni Skálm Rafleiðni og vatnshæð hefur farið lækkandi í ánni Skálm síðustu klukkustundir. Áfram mælast hækkuð gildi brennisteinsvetnis nærri upptökum Múlakvíslar og er ferðafólk á svæðinu beðið um að sýna aðgát við upptök ánna og nærri árfarvegunum þar sem gasmengun gæti verið á svæðinu. Innlent 10.8.2024 17:22
Hinseginfáni skorinn niður í Hveragerði Tveir hinseginfánar voru skornir niður í Hveragerði í dag, einn við hjúkrunarheimilið Ás og annar við kirkjuna. Sú sem vakti athygli á þessu vill senda fólkinu á bak við verknaðinn ást og frið. Innlent 10.8.2024 15:37
Krakkar beri ekki heldur virðingu fyrir eigin úlpum og Airpods „Einkaeignin kennir virðingu og kemur í veg fyrir sóun. Eða hvað?“ spyr Ragnar Þór Pétursson kennari. Hann segir að einkaeign upp á tugi- eða hundruði milljóna á ári verði eftir í skólum ár hvert. Innlent 10.8.2024 15:03
Varð vitni að árásinni sem varð systur hennar að bana Foreldrar Bebe King, sex ára stúlku sem var stungin til bana í árásinni í Southport í Bretlandi í lok júlímánaðar, segja eldri systur hennar hafa orðið vitni að árásinni en komist undan. Erlent 10.8.2024 13:51
Einn var stunginn í Breiðholti Einn var stunginn í lærið í íbúahúsi í Bökkunum í Breiðholti í Reykjavík og fluttur á slysadeild í kjölfarið í dag. Grunaður árásarmaður var handtekinn og verður hann yfirheyrður þegar runnið verður af honum. Innlent 10.8.2024 13:48
Sextíu og einn látinn eftir flugslysið í Brasilíu Allir sem voru um borð í flugvélinni sem brotlenti í Vinhedo í Sau Paulo héraði í Brasilíu eru látnir. Mildi þykir að enginn hafi slasast sem var á jörðinni, en vélin brotlenti í íbúabyggð þar sem aðeins eitt hús varð fyrir skemmdum. Erlent 10.8.2024 12:17