Fréttir
151 152 153 154 155 156 157 158 159 … 334 ›
Vonar að ráðherra verði ekki við ósk Sigríðar Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari telur ekki að Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari sé til þess bær að veita honum áminningu í starfi. Það vald liggi hjá dómsmálaráðherra. Hann segist vona að dómsmálaráðherra taki ekki til greina ósk Sigríðar um að taka mál hans til skoðunar, og vísa honum tímabundið frá störfum. Innlent 30.7.2024 17:53
Nokkur dauðsföll eftir að þyrla brotlenti á svínabúi Þyrla brotlenti á húsi nálægt írska bænum Killucan síðdegis í dag með þeim afleiðingum að nokkrir létu lífið. Þetta staðfesta írskir viðbragðsaðilar án þess að gefa upp nánari upplýsingar um fjölda látinna. Erlent 30.7.2024 17:38
Óeirð á hjúkrunarheimilum vegna endalausra íþrótta á RÚV Starfsmaður hjúkrunarheimilis segir síðbúinn kvöldfréttatíma og endalausa íþróttadagskrá RÚV í sumar hafa valdið nokkrum usla á heimilinu. Deilt sé um það hvort horfa eigi á íþróttirnar eða eitthvað annað, og margir séu ósáttir við fréttaleysið. Dóttir eldri konu með eigið sjónvarp segir hana ekki treysta sér í slaginn við fjarstýringuna og hún sé því tilneydd til að glápa á íþróttir. Innlent 30.7.2024 17:08
Svona verða hátíðarhöldin á fimmtudaginn Vikivaki verður sunginn í Dómkirkjunni, Vetrarsól í Alþingishúsinu og almenningur getur fylgst með af risaskjá á Austurvelli. Dagskráin fyrir innsetningarathöfn Höllu Tómasdóttur liggur fyrir. Innlent 30.7.2024 16:54
Skammast sín vegna skotárásarinnar Ronald Rowe, settur forstjóri bandarísku öryggisþjónustunnar Secret service, segist skammast sín vegna skotárasar sem beindist að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta og forsetaframbjóðanda. Erlent 30.7.2024 16:49
Foreldrar og kennarar minnast ungu stúlknanna Stelpurnar þrjár sem létust í hnífaárás í Southport á Englandi í gær hétu Bebe King, Elsie Dot Stancombe og Alice Dasilva Aguiar. Þær voru sex, sjö og níu ára gamlar. Erlent 30.7.2024 15:52
Segja Vöku fara offari við að draga burt bíla Svo virðist sem starfsmenn Vöku séu of duglegir í vinnunni og fari fram úr sér. Sú er í það minnsta skoðun Steinars Agnarssonar sem er smiður en hann hefur staðið í stappi við Vöku vegna húsbíls síns og svo annarra bíla sem hann segir hafa verið dregnir í burtu áður en tilskilinn frestur rann út. Reynir Guðmundsson framkvæmdastjóri Vöku vísar þessu á bug. Innlent 30.7.2024 15:42
Ber ekki vitni í spillingarrannsókn á eiginkonu sinni Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, baðst undan að bera vitni í réttarrannsókn á meintri spillingu eiginkonu hans í dag. Hann sakar dómarann sem rannsakar málið um embættisafglöp. Erlent 30.7.2024 14:53
Bíllinn ekki í handbremsu við sundlaug og rann niður kletta Bíll sem var staðsettur á bílastæði við Krossneslaug við Norðurfjörð á Ströndum rann af bílastæðinu og fram af kletti um hádegisleytið síðastliðinn laugardag. Talsvert sér á bílnum en engin slys urðu á fólki. Innlent 30.7.2024 14:31
Kobbi Láki kom stýrisvana skútu til bjargar Landhelgisgæslunni barst boð frá skútu með tólf manns um borð sem var stödd um fimm kílómetrum norður af Straumnesi á Hornströndum. Gír hafði brotnað og björgunarbáturinn Kobbi Láka frá Bolungarvík tók skútuna í tog. Innlent 30.7.2024 14:10
Hermenn sakaðir um að misþyrma palestínskum fanga kynferðislega Til uppþota kom á herstöð þar sem Ísraelsher heldur palestínskum föngum eftir að níu ísraelskir hermenn voru handteknir og sakaðir um að misþyrma föngum kynferðislega. Stuðningsmenn þeirra brutust inn í herstöðina og kröfðust þess að þeim yrði sleppt. Erlent 30.7.2024 13:47
Háttsemi Helga nái aftur til 2017 Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir áminningu sem Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari hlaut árið 2022 hafa snúið að nokkrum tilvikum um tjáningu hans, sem nái aftur til ársins 2017. Sigríður telur sér ekki heimilt að upplýsa nánar um þessi tilvik. Hún segir kæru á hendur Helga frá hjálparsamtökum hælisleitenda ekki tilefni þess að hún vísar máli Helga nú til ráðherra. Innlent 30.7.2024 13:45
Sagði móður ekki heila á geði og fær skömm í hattinn Ummæli Auðar Bjargar Jónsdóttur lögmanns, sem gætti hagsmuna föður drengs í forsjármáli, í garð móður drengsins þóttu aðfinnsluverð að mati úrskurðarnefndar lögmanna. Nefndin segir að hún hafi gengið of langt með gífuryrðum um andlega heilsu móðurinnar. Innlent 30.7.2024 13:19
Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Landspítalinn braut jafnréttislög þegar ung nýútskrifuð kona var ráðin í starf lyfjafræðings í stað karlmanns um fertugt með áratugsreynslu í faginu. Konan hafði verið með starfsleyfi í sjö mánuði þegar hún var ráðin. Spítalinn mismunaði karlmanninum bæði á grundvelli kyns og aldurs. Innlent 30.7.2024 13:08
Ekki sammála því að atvinnulífið hafi brugðist Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins gefur lítið fyrir yfirlýsingar formanns VR að atvinnulífið hafi brugðist í baráttunni við verðbólgudrauginn. Innlent 30.7.2024 13:06
Þriðja stelpan látin í Southport Þrjár stelpur á aldrinum sex til níu ára eru látnar og fimm börn til viðbótar eru þungt haldin eftir hnífaárás á dansnámskeiði í Southport í Englandi í gær. Erlent 30.7.2024 12:15
Helgi segir lítinn sóma að framgöngu ríkissaksóknara Vararíkissaksóknari furðar sig á ósk yfirmanns síns um að dómsmálaráðherra taki mál hans til skoðunar, vegna ummæla sem hann lét falla í fjölmiðlum. Hann viðurkennir að hann hefði getað orðað hlutina öðruvísi, en telur ummælin ekki hafa verið yfir strikið. Innlent 30.7.2024 12:07
Gæti gosið á næstu dögum Spenna heldur áfram að aukast á Reykjanesi en nú hafa rúmlega 16 milljón rúmmetrar af kviku safnast undir Svartsengi. Veðurstofa Íslands varar við því að kvikuhlaup án eldgoss nægi til að skapa hættu og valda tjóni í Grindavík en því fylgi jarðskjálftar og sprungur. Innlent 30.7.2024 11:58
Samtök atvinnulífsins blása á gagnrýni formanns VR Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins gefur lítið fyrir yfirlýsingar formanns VR að atvinnulífið hafi brugðist í baráttunni við verðbólgudrauginn. Við ræðum við Sigríði Margéti Oddsdóttur í hádegisfréttum Bylgjunnar. Innlent 30.7.2024 11:53
Fjöldamorðingi í My Lai látinn Bandarískur liðsforingi úr Víetnamstríðinu sem var sá eini sem var látinn sæta ábyrgð á fjöldamorðinu alræmda í þorpinu My Lai er látinn, áttræður að aldri. Bandarískir hermenn drápu hundruð óbreyttra borgara í My Lai, þar á meðal konur og börn. Erlent 30.7.2024 11:48
Illvænlegar vendingar á veðurspánni fyrir helgina Illvænlegar vendingar hafa orðið á veðurspánni fyrir verslunarmannahelgina að mati Einar Sveinbjörnssonar veðurfræðings. Veður 30.7.2024 11:47
Segir Helga ekki hafa bætt ráð sitt Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari telur að rétt hafi verið staðið að tilkynningu til Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara og annarra starfsmanna embættisins. Hún segir Helga Magnús ekki hafa bætt ráð sitt eftir áminningu. Innlent 30.7.2024 11:34
Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Hlúð er að manni á Landspítalanum sem slasaðist alvarlega í ísbjarnarárás á Traill-eyju á norðanverðri austurströnd Grænlands á föstudaginn síðasta. Innlent 30.7.2024 11:09
Bilið aldrei meira milli karla og kvenna Tæplega þriðjungur íslenskra karlmanna á aldrinum 25 til 34 ára eru með háskólamenntun á meðan hlutfallið er vel yfir aðra hverja konu. Bilið hefur aldrei verið meira. Töluverður munur er á milli menntunar fólks eftir því hvort það býr á höfuðborgarsvæðinu eða utan þess. Innlent 30.7.2024 11:09
Lúxussnekkja Ratcliffe í Reykjavíkurhöfn Sherpa, lúxussnekkja breska auðkýfingsins Jim Ratcliffe, liggur við Grandabakka í Reykjavíkurhöfn. Innlent 30.7.2024 11:04
Bugaðar á bak við eldavélina að baka fyrir TikTok Reyndur mannauðsráðgjafi merkir bakslag hvað varðar jafnrétti kynjanna í fyrsta sinn á ævi sinni. Hámenntaðar konur séu að bugast við endurkomu í vinnu vegna nýrra krafna meðal annars frá samfélagsmiðlum. Innlent 30.7.2024 10:53
Grunar vinstriöfgamenn um græsku Innanríkisráðherra Frakklands segir að grunur beinist að herskáum hópum vinstriöfgamanna vegna skemmdarverka sem voru unnin á hraðlestakerfi fyrir opnunarhátíð Ólympíuleikanna í París. Frekari skemmdarverk voru unnin í gær. Erlent 30.7.2024 10:16
Þolinmæði Færeyinga gagnvart Norðurlandaráði á þrotum Aksel V. Johannesen lögmaður Færeyja flutti ávarp sitt við þingsetningu á Ólafsvöku í Þórshöfn í gær og ítrekaði að Færeyjar ættu að fá fulla aðild að Norðurlandaráði. Erlent 30.7.2024 08:37
Um þúsund bréfberar misst fingur eða framan af fingri á fimm árum Um þúsund bréfberar á Bretlandseyjum hafa misst fingur eða framan af fingri á síðustu fimm árum eftir að hafa verið bitnir af hundi þegar þeir voru að setja bréf inn um póstlúgu. Erlent 30.7.2024 08:33
Hægt veður í dag en myndarleg lægð á leiðinni Spáð er hægri vestlægri átt og úrkomulitlu veðri á landinu í dag. Myndarleg og óvenju djúp lægð er hins vegar sögð taka völdin á morgun og næstu daga. Veður 30.7.2024 08:20