Fréttir
303 304 305 306 307 308 309 310 311 … 334 ›
Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Bjart verður að mestu um landið sunnanvert í dag. Dálítil él verður á Norður- og Austurlandi og hvassast suðaustan til. Annað kvöld bætir heldur í vind. Veður 28.3.2024 07:36
Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um að múrsteini hefði verið kastað í glugga hótels í Reykjavík á fyrsta tímanum í nótt. Málið er í rannsókn. Innlent 28.3.2024 07:19
Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Fjölskylda sem ætlaði sér að horfa á norðurljósin á slóða rétt hjá Litlu kaffistofunni var rekin í burtu af starfsmönnum ferðaþjónustufyrirtækis. Mennirnir sökuðu fjölskylduna um að ónáða fólk sem hefði borgað dýrum dómi fyrir norðurljósaferð. Innlent 27.3.2024 22:18
Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Dómsmálaráðherra hefur lagt fram frumvarp sem ætlað er að auka kröfur á forsvarsmenn trúfélaga, lífsskoðunarfélaga, sjóða og stofnana varðandi utanumhald reksturs. Það regluverk sem gildir um slík félög hér á landi þykir skapa verulega hættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Innlent 27.3.2024 21:41
Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Nú þegar páskarnir eru handan við hornið flykkjast Íslendingar í ferðalög. Á Keflavíkurflugvelli eru öll langtímastæði full þrátt fyrir að 300 hafi bæst við á síðustu dögum. Í Ártúnsbrekkunni síðdegis var stöðugur straumur bíla út á land. Innlent 27.3.2024 20:17
Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Alexander Lúkasjenka, einræðisherra Belarús, segir mennina sem gerðu árásina í tónleikahúsinu í Crocus, úthverfi Moskvu um helgina, hafa fyrst reynt að flýja til Belarús. Öryggisgæsla þar hafi verið svo mikil að þeir beygðu í átt að landamærum Úkraínu. Erlent 27.3.2024 20:11
Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Lögregla leitar enn að tveimur þjófum sem stálu tugum milljóna króna úr bíl Öryggismiðstöðvarinnar í fyrradag. Þónokkrar vísbendingar hafa borist en lögregla virðist engu nær. Forstjóra Happdrættis Háskóla Íslands, sem á féð, er verulega brugðið og reiknar með að verklagi verði breytt vegna málsins. Innlent 27.3.2024 19:20
Tilkynnt um hátt í hundrað alvarleg atvik þar sem dauðsföll urðu Hátt í hundrað tilkynningar hafa borist til Landlæknis um alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu þar sem dauðsföll hafa orðið síðustu ár. Tilkynningum um alvarleg atvik fjölgaði um fimmtung á síðasta ári borið saman við árið á undan samkvæmt upplýsingum frá Landlæknisembættinu. Innlent 27.3.2024 18:34
Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Vinningshafi sem var einn með allar tölur réttar í lottó um síðustu helgi er loksins fundinn. Íslensk getspá hafði í nokkra daga reynt að ná í sigurvegarann. Þegar viðkomandi frétti af leitinni gaf hann sig fram og er tæpum níu milljón krónum ríkari. Innlent 27.3.2024 18:16
Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Hæstiréttur hefur fellt úr gildi friðlýsingu vatnasviðs Jökulsár á Fjöllum fyrir orkuvinnslu og sneri þar með við ákvörðun Héraðsdóms Austurlands sem hafði staðfest friðlýsinguna. Dómurinn mat fyrrverandi ráðherra ekki vanhæfan vegna fyrri starfa hans hjá Landvernd. Innlent 27.3.2024 18:02
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hátt í hundrað manns hafa látist vegna alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustu á síðustu þremur árum. Tilkynningum um alvarleg atvik fjölgaði um fimmtung á síðasta ári borið saman við árið á undan samkvæmt upplýsingum frá Landlæknisembættinu. Innlent 27.3.2024 18:00
Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Liudmilu „Lucy“ Shtein, meðlimur Pussy Riot og íslenskur ríkisborgari, hefur verið dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi. Shtein, sem er 27 ára gömul, er ekki í Rússlandi en hún var dæmd vegna færslna á samfélagsmiðlum þar sem hún talaði gegn innrás Rússa í Úkraínu. Innlent 27.3.2024 17:36
Eldur í Hafnarfirði Eldur kviknaði í gámi á Óseyrarbraut í Hafnafirði rétt fyrir klukkan fimm í dag. Eldurinn var minniháttar og er búið að slökkva hann. Innlent 27.3.2024 16:54
Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Embætti ríkislögreglustjóra þarf að greiða fjórum yfirlögregluþjónum laun í takti við samkomulag sem þáverandi ríkislögreglustjóri, Haraldur Johannessen, gerði við þá um endurskoðun launakjara árið 2019. Hæstiréttur telur Harald hafa skort heimild til að hækka laun lögregluþjónanna en þeir hafi tekið við hækkun í góðri trú og því mætti ekki lækka launin á ný. Innlent 27.3.2024 16:12
Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðstoðar Læknafélag Íslands er mótfallið frumvarpi um dánaraðstoð sem nú liggur fyrir Alþingi. Þetta sagði Steinunn Þórðardóttir, formaður félagsins, í Pallborðinu á Vísi fyrr í dag. Innlent 27.3.2024 16:09
„Trúði því ekki að þetta væri ég“ Karlmaður á flótta sem dvelur í Neyðarskýli Rauða krossins segist ekki hafa trúað eigin augum þegar hann horfði á myndband af sjálfum sér með hróp og köll á þingpöllum Alþingis. Innlent 27.3.2024 16:08
Ekki viss hvort nokkru þurfi að breyta eftir tug milljóna króna þjófnað Of snemmt að segja til um hvort uppfæra þurfi verkferla hjá Öryggismiðstöðvarinnar vegna þjófnaðs sem átti sér stað í Hamraborg í Kópavogi á mánudagsmorgun. Þetta segir Ómar Brynjólfsson, framkvæmdastjóri mannaðra lausna hjá Öryggismiðstöðinni. Innlent 27.3.2024 16:04
546 Grindvíkingar vilja selja Þórkötlu húsið sitt Alls hafa 546 Grindvíkingar óskað eftir því að selja Fasteignafélaginu Þórkötlu ehf. íbúðarhúsnæði sitt. Þrátt fyrir mikinn fjölda umsókna stefnir félagið enn að því að hefja kaupin í byrjun apríl. Innlent 27.3.2024 15:04
Steinunn Ólína hálfu skrefi frá því að bjóða sig fram Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir hefur birt grein sem ekki er hægt að skilja öðru vísi en svo að ekki þurfi mikið til að koma svo hún stigi fram og gefi kost á sér í framboði til forseta lýðveldisins. Innlent 27.3.2024 14:50
Baldur mælist með langmest fylgi Baldur Þórhallsson mælist með 37 prósent fylgi í könnun Prósents um hvern frambjóðanda fólk vilji að verði næsti forseti Íslands. Næsti frambjóðandi, Halla Tómasdóttir, mælist með 15 prósent fylgi en 34 prósent svarenda segjast ekki vita hvern þeir vilja í embætti forseta. Innlent 27.3.2024 14:19
Stálu áli í Grindavík en gómaðir af lögreglu Óprúttnir aðilar gerðu tilraun til að stela brotajárni og áli frá Vélsmiðju Grindavíkur í gærkvöldi. Ómar Davíð Ólafsson, eigandi Vélsmiðjunnar, segir að lögreglan hafi nappað þjófana þegar þeir voru komnir með tvö kör af áli inn í bílinn hjá sér. Innlent 27.3.2024 14:19
Útlit fyrir að gasmengun berist til vesturs og suðvesturs Enn er hætta á gasmengun og er útlit fyrir að mengunin berist til vesturs og suðvesturs í dag, meðal annars yfir Svartsengi, Hafnir og Grindavík. Huga þarf að loftgæðum. Virkni eldgossins er enn stöðug og hefur verið þar frá mánudegi. Enn mælist landris en það er hægara en áður. Innlent 27.3.2024 14:07
Hæstiréttur bannar síþrotamanni að stunda rekstur Hæstiréttur hefur staðfest þriggja ára atvinnurekstrarbann manns sem hefur verið í forsvari fyrir níu félög sem enduðu í gjaldþroti. Þrotabú einkahlutafélags sem maðurinn átti einn fór fram á bannið en lýstar kröfur í búið nema ríflega 300 milljónum króna. Innlent 27.3.2024 13:58
Flestir öryggishnappar vegna heimilisofbeldis Eftir því sem næst verður komist eru 106 öryggishnappar í umferð hér á landi og eru ýmsar ástæður fyrir notkun þeirra af ýmsum toga. Fólk sem er með slíka hnappa á það þó sameiginlegt að óttast um öryggi sitt. Innlent 27.3.2024 13:47
Fá 82 þúsund fyrir að vinna frá átta til 23 Reykjavíkurborg leitar nú að fólki til að taka að sér setu í undirkjörstjórnum við forsetakosningarnar sem fram fara 1. júní. Vaktin hefst klukkan átta og lýkur í fyrsta lagi klukkan 23 en kjörstöðum er lokað klukkan 22. Launin eru 82 þúsund krónur fyrir skatt. Innlent 27.3.2024 13:39
Mikilvægt að upplýsa málið svo aðrir sjái sér ekki leik á borði Þjófarnir sem stálu milljónum úr bíl Öryggismiðstöðvarinnar í Hamraborg í fyrradag ganga enn lausir. Féð sem þeir höfðu á brott með sér er sömuleiðis ófundið. Afbrotafræðingur segir mjög mikilvægt að málið verði upplýst, svo þeim skilaboðum verði komið á framæri að rán sem þessi borgi sig ekki. Innlent 27.3.2024 13:19
Helga hellir sér í forsetaslaginn Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar ætlar að gefa kost á sér til embættis forseta Íslands. Helga upplýsti um þetta á blaðamannafundi á heimili sínu í Fossvoginum í hádeginu. Innlent 27.3.2024 12:05
Pallborðið: Eiga læknar að aðstoða fólk við að deyja? Umsögnum um nýtt frumvarp um dánaraðstoð fjölgar nú dag frá degi en það miðar að því að tryggja einstaklingum réttinn til að velja að deyja með aðstoð lækna. Dánaraðstoð verður til umræðu í Pallborðinu klukkan 14 í dag, í beinni útsendingu á Vísi. Innlent 27.3.2024 11:58
Hættuleg gasmengun kemur í veg fyrir opnun Bláa lónsins Bláa lónið hefur samtals verið lokað í rúmlega áttatíu daga frá því að jarðhræringarnar við Grindavík hófust fyrir fimm mánuðum. Óvíst er hvenær hægt verður að opna á ný vegna hættulegrar gasmengunnar. Innlent 27.3.2024 11:57
„Galið að fara svona með opinbert fé“ Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, gagnrýnir harðlega samning Sambands íslenskra sveitarfélaga við Höllu Gunnarsdóttur upplýsingafulltrúa. Innlent 27.3.2024 11:43