Fréttir
30 31 32 33 34 35 36 37 38 … 334 ›
Sigurður hafi mögulega fengið sig fullsaddan Eldræða formanns Framsóknarflokksins um útlendingamál hefur vakið mikla athygli. Formaður hjálparsamtaka segir ekkert við framferði hans gefa til kynna að flokkurinn standi fyrir mannúð en stjórnmálafræðingur telur formanninn mögulega hafa fengið sig fullsaddan af andúð annarra flokka. Innlent 2.11.2024 21:02
Sendir tíu þúsund manna herlið til Valensía Tugþúsundir sjálfboðaliða hafa farið inn á hamfarasvæðin í Valensíahéraði á Spáni til aðstoðar vegna hamfaraflóða sem gengu þar yfir í byrjun vikunnar. Erlent 2.11.2024 20:15
Brauðtertur til umræðu á haustfundi Landsvirkjunar Brauðtertur með skinkusalati, mútur og brjálaðir verkfræðingar voru meðal annars til umræðu á haustfundi Landsvirkjunar, sem fór fram á Selfossi. Innlent 2.11.2024 20:06
Sjúkratryggingar sektaðar um 40 milljónir: „Hér er verið að mismuna fyrirtækjum“ Sjúkratryggingum Íslands hefur verið gert að greiða 41 milljón króna í stjórnvaldssekt vegna ólögmætra samninga við myndgreiningarfyrirtæki, samkvæmt nýjum úrskurði. Framkvæmdastjóri Intuens, segulómunarfyrirtækis sem kærði Sjúkratryggingar, segir stofnunina mismuna fyrirtækjum og hindra eðlilega samkeppni. Innlent 2.11.2024 19:02
Fjörutíu milljóna sekt Sjúkratrygginga og hrekkjavökupartí aldarinnar Sjúkratryggingum Íslands hefur verið gert að greiða fjörutíu og eina milljón króna í stjórnvaldssekt vegna ólögmætra samninga við myndgreiningarfyrirtæki, samkvæmt nýjum úrskurði. Forstjóri Intuens, segulómunarfyrirtækis sem kærði Sjúkratryggingar, segir stofnunina mismuna fyrirtækjum og hindra eðlilega samkeppni. Innlent 2.11.2024 18:19
Litlaus regnbogi yfir borginni í dag Óalgeng tegund regnboga gnæfði yfir Reykjavík í dag en regnboginn var nærri alveg litlaus. Innlent 2.11.2024 18:02
„Auðvitað er ég að vísa í þá flokka sem stjórna hjá borginni“ Ragnar Þór Ingólfsson, frambjóðandi Flokks fólksins, segir ríkisstjórnarflokkana ekki bera höfuðábyrgð á stöðu verðbólgunnar heldur þá sem hafa verið við stjórn í Reykjavíkurborg. Húsnæðisskortur sé rót verðbólguvandans og verði ekki leystur nema með því að brjóta nýtt land. Innlent 2.11.2024 17:22
Ostaþjófnaður skekur heim matgæðinga: „Hver vill svona mikinn ost?“ Lögreglan í Bretlandi rannsakar nú þjófnað á 22 tonnum af osti frá mjólkurbúinu Neal’s Yard Dairy. Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið handtekinn, en hann er grunaður um að villa á sér heimildir til að koma höndum sínum yfir ostinn. Erlent 2.11.2024 16:02
„Margt að óttast“ en ameríski draumurinn lifir „Ég er bara komin með nóg af þessu,“ svarar ung kona á bak við afgreiðsluborðið á veitingastað nærri hótelinu mínu, þegar ég spyr hvers vegna hún ætlar ekki að kjósa. Erlent 2.11.2024 15:03
Þrjú börn á gjörgæslu og eitt í öndunarvél Þrjú börn eru enn á gjörgæslu á Landspítalanum vegna E.coli-sýkingar sem kom upp á leikskólanum Mánagarði. Eitt barnið er í öndunarvél. Sjö börn til viðbótar liggja inni á almennri deild vegna sýkingarinnar. Innlent 2.11.2024 14:23
Matarsmakk á fjölmenningarhátíð í Aratungu Það stendur mikið til í félagsheimilinu Aratungu í Bláskógabyggð á morgun sunnudag þegar fjölmenningarhátíð uppsveita Árnessýslu verður haldin. Þar munu fulltrúar sautján þjóðlanda, sem búa á svæðinu kynna menningu síns lands og bjóða upp á matarsmakk. Innlent 2.11.2024 14:04
„Við skulum ekki endurtaka gömlu mistökin“ Jón Gnarr segir „útlendingavandann“ minna um margt á gamla „unglingavandann“. Hvort tveggja byggist á fordómum og ranghugmyndum frekar en staðreyndum. Ekki eigi að kenna ákveðnum hópum um úrræðaleysi stjórnvalda og endurtaka þannig gömul mistök. Innlent 2.11.2024 13:50
Sigurður hafi fært Framsókn fjær Bjarna og Sigmundi Stjórnmálafræðiprófessor telur eldræðu formanns Framsóknarflokksins vera að einhverju leyti til að fjarlægja flokkinn stefnu Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins. Framsókn geri sig líklega til að mynda ríkisstjórn af miðjunni til vinstri. Innlent 2.11.2024 12:36
Badenoch nýr leiðtogi Íhaldsflokksins Kemi Badenoch var kjörin nýr leiðtogi Íhaldsflokksins í dag. Hún er fyrsta hörundsdökka konan til að gegna þessu hlutverki. Erlent 2.11.2024 12:10
„Tvær undirskriftir sem vantaði“ Forsvarsmenn Lýðræðisflokksins og Ábyrgrar framtíðar segja stjórnmálasamtökin vera búin að lagfæra framboð sín í komandi Alþingiskosningum eftir að hafa fengið aðfinnslur frá Landskjörstjórn. Sósíalistaflokkurinn fékk líka aðfinnslur en skrifstofustjóri flokksins segir þær tilkomnar vegna tæknilegra örðugleika. Innlent 2.11.2024 11:59
Umdeild eldræða formanns Framsóknar Stjórnmálafræðiprófessor telur eldræðu formanns Framsóknarflokksins um útlendingamál að einhverju leyti til þess fallna að fjarlægja flokkinn stefnu Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins. Framsókn geri sig líklega til að mynda ríkisstjórn af miðjunni til vinstri. Við rýnum í pólitíkina í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. Innlent 2.11.2024 11:57
Nauðgaði sofandi konu í jólateiti Rúmlega þrítugur karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Austurlands fyrir að nauðga ungri konu um nótt um miðjan desember í fyrra. Innlent 2.11.2024 11:02
Ekkert sem gefi til kynna að Framsókn standi fyrir mannúð Formaður hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk segir Framsóknarflokkinn hafa innleitt mannfjandsamlegustu stefnu í málefnum flóttafólks frá seinni heimsstyrjöld. Ekkert við framferði flokksins síðustu ár gefi til kynna að hann standi fyrir mannúð þrátt fyrir orð formannsins um annað. Innlent 2.11.2024 10:57
„Ég myndi frekar kasta mér fram af kletti en að kjósa Donald Trump“ Donald Trump er ákaflega óvinsæll meðal Bandaríkjamanna sem fréttastofa tók tali í miðborg Reykjavíkur í fyrradag. Einn sagðist frekar myndu stökkva fram af kletti en að kjósa hann. Flestir sögðust kvíða niðurstöðum kosninganna. Erlent 2.11.2024 10:38
Búist við austlægri átt Búist er við austlægri átt, sem verður þrír til átta metrar á sekúndu, og dálítilli rigningu eða slyddu á sunnanverðu landinu í dag, en þó mun létta síðdegis. Talið er að það verði nokkuð bjart á norðanverðu landinu. Hiti tvö til sex stig sunnanlands en um eða undir frostmarki fyrir norðan. Veður 2.11.2024 08:26
Kallar eftir umboði þjóðarinnar til breytinga Hún kom eins og óskrifað blað inn í íslensk stjórnmál fyrir alþingiskosningarnar 2021 og var orðin formaður Samfylkingarinnar um ári síðar. Fljótlega varð ljóst að hún var stjórnmálamaður af annarri skúffu en flestir. Hún ferðaðist um landið með opna fundi og upp úr þeim ferðum mótaði hún nýja stefnu fyrir Samfylkinguna sem var nálægt því að þurrkast út í kosningunum 2016. Innlent 2.11.2024 08:02
Skorinn með hníf á skemmtistað í miðbænum Lögreglan var kölluð út að skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur í nótt vegna slagsmála. Lögreglu barst tilkynning um að hnífur hefði verið dreginn upp og einn einstaklingur skorinn með honum. Innlent 2.11.2024 07:26
Alþjóðastarf þingmanna álitið sem „fyllerís- og fríferðir“ Þingmenn og embættismenn segja alþjóðastarf ekki nægilega samræmt störfum Alþingis. Ferðalög í þágu alþjóðastarfs séu álitnar „fyllerís- og fríferðir“ í stað vinnuferða. Neikvætt álit almennings og þingmanna á alþjóðastarfi hefur áhrif á hvata alþingismanna að taka þátt. Innlent 2.11.2024 07:02
Sigurði Inga heitt í hamsi þegar hann flutti eldræðu um útlendinga Líflegar og hvassar umræður sköpuðust um útlendingamál í fyrstu kappræðum formanna stjórnmálaflokkanna fyrir komandi alþingiskosningar á RÚV í kvöld. Sigmundur Davíð spyr hvort við eigum að hjálpa Rússum að tæma Úkraínu. Sigurði Inga var heitt í hamsi þegar hann spurði hvort kosningabaráttan ætti að snúast um svokölluð útlendingamál, og sagði að umræðan ætti að snúast um staðreyndir en ekki vera ofan í drullupotti. Hann segir suma stjórnmálamenn hræddari við lítinn strák í hjólastól en erlenda auðkýfinga sem kaupa upp jarðir. Innlent 1.11.2024 23:36
„Staðan er bara sú að það verður slys hérna“ Íbúar í Hlíðarendahverfi í Reykjavík hafa miklar áhyggjur af umferð stórvirkra vinnuvéla um götur hverfisins. Fjöldi barna streymir inn og út úr hverfinu á hverjum degi og neyðist stundum til að ganga á götunni. Innlent 1.11.2024 21:05
Afstaða ríkisins hleypi illu blóði og hörku í viðræðurnar Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands óttast að afstaða ríkisins gagnvart verkfallsboðun lækna muni hleypa illu blóði og aukinni hörku í kjaraviðræðurnar. Ríkið telur að verkfallsboðunin sé ólögmæt. Steinunn segir að verið sé að þrýsta læknum í harðari aðgerðir. Innlent 1.11.2024 20:53
Framboðslisti Ábyrgrar framtíðar í Reykjavík norður Stjórnmálaflokkurinn Ábyrg framtíð hefur nú birt framboðslista sinn í eina kjördæminu sem þau bjóða fram, Reykjavíkurkjördæmi norður. Jóhannes Loftsson stofnandi flokksins er í fyrsta sæti og Guðmundur Karl Snæbjörnsson læknir í öðru. Innlent 1.11.2024 19:51
Fagnar 400 nýjum störfum við Hvammsvirkjun Stóru málin á Suðurlandi eru samgöngur og orkumál með sérstaka áherslu á að arður af orkunni verði að hluta til eftir heima í héraði. Þetta segir formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, sem fagnar í leiðinni fjögur hundruð nýjum störfum við Hvammsvirkjun, sem hann segir að verði meira og minna skipuð erlendu vinnuafli. Innlent 1.11.2024 19:44
Tíu mánaða strákur fær byltingarkennt lyf fyrstur Íslendinga Foreldrar tíu mánaða stráks sem fæddist með sjaldgæfan taugahrörnunarsjúkdóm vonast til að lyfjagjöf í Svíþjóð muni gjörbreyta lífi hans. Hann verður fyrsta íslenska barnið til að fá lyfin. Veröldin hrundi þegar þeim var tilkynnt símleiðis að sonurinn væri með sjúkdóminn en við tók löng bið eftir að hitta lækni. Innlent 1.11.2024 19:39
Þau verða fulltrúar Íslands á COP29 í Aserbaídsjan Næsta loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna, COP29, fer fram í Baku í Aserbaídsjan dagana 11. til 22. nóvember. Skráðir þátttakendur frá Íslandi eru 44 að þessu sinni. Innlent 1.11.2024 18:41