Fréttir
72 73 74 75 76 77 78 79 80 … 334 ›
Kristjana frá Rúv til Ásmundar Einars Kristjana Arnarsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra. Hún hefur undanfarin ár getið sér gott orð á íþróttafréttadeild Ríkisútvarpsins og sem stjórnandi Gettu betur. Innlent 1.10.2024 10:21
Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Dominique Pelioct, sem byrlaði eiginkonu sinni ólyfjan og fékk tugi manna til að nauðga henni um árabil, er til rannsóknar vegna fimm annarra mála og þar á meðal eins morðs. Málin þykja keimlík einni nauðgunartilraun sem Pelicot hefur játað og morði sem hann hefur verið ákærður fyrir. Erlent 1.10.2024 10:16
Bein útsending: Kynna niðurstöður um flugvöll og samgöngur Niðurstöður tveggja starfshópa um rannsóknir á byggingu flugvallar í Hvassahrauni og almenningssamgöngur milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar verða kynntar á blaðamannafundi klukkan 11 í Hafnarborg í Hafnarfirði. Innlent 1.10.2024 10:01
„Hefði alveg getað verið góði strákurinn í Sjálfstæðisflokknum“ Arnar Þór Jónsson, stofnandi hins nýja Lýðræðisflokks, segir málamiðlanir í stjórnmálum oft vera óheilindi í garð kjósenda. Innlent 1.10.2024 09:02
Fimmti hver ökumaður með óeðlileg afskipti við slysstað Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir þeim tilfellum fjölga þar sem almenningur hefur afskipti af störfum lögreglu við götulokanir við slysstað. Hann segir ríkar ástæður fyrir götulokun og alltaf reynt að búa til hjáleiðir. Rannsókn vegna alvarlegra slysa geti tekið tíma og þrifin sem fylgja. Framkoma fólks við slysstað á Sæbraut um helgina hafi verið dapurleg. Innlent 1.10.2024 08:48
Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Brennslu kola til rafmagnsframleiðslu er lokið í Bretlandi eftir 142 ára sögu. Slökkt var á síðasta kolaorkuveri landsins í nótt. Meiri en helmingur af raforku er nú framleidd með endurnýjanlegum hætti í Bretlandi. Erlent 1.10.2024 08:43
Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Í fyrra var meðalaldur ungs fólks í Evrópu þegar það flutti að heima í 26,3 ára. Það er minna en það var árinu áður þegar meðalaldurinn var 26,4 ára. Hæsti meðalaldurinn er í Króatíu þar sem ungt fólk er að meðaltali 31,8 ára þegar það flytur að heiman. Erlent 1.10.2024 08:17
Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, heldur í dag upp á hundrað ára afmæli sitt en hann hefur verið í líknandi meðferð í tæplega tvö ár. Forsetinn fyrrverandi hefur fengið kveðjur víðsvegar að úr heiminum. Erlent 1.10.2024 08:03
Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Donald Trump heimsótti í gær bæinn Valdosta í Georgíuríki en bærinn er sem rústir einar eftir að fellibylurinn Helena gekk þar yfir. Erlent 1.10.2024 07:24
Rannsókn lokið á veikindum á hálendi í sumar Rannsókn embættis sóttvarnalæknis og Heilbrigðiseftirlits Suðurlands á veikindum á hálendinu í sumar er lokið. Í öllum tilfellum þar sem fengust sýni greindist nóróveira. Líklegt er að hún hafi smitast með snerti- eða úðasmiti, af yfirborðsfleti eða manna á milli. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands er með eftirfylgd á Rjúpnavöllum en þar fundust saurgerlar í neysluvatni. Innlent 1.10.2024 07:22
Suðvestlæg átt og víða dálítil rigning Grunn lægð á Grænlandshafi og hæð fyrir sunnan land beina nú suðvestlægri átt til landsins og má gera ráð fyrir að verði víða kaldi eða strekkingur í dag, súld eða dálítil rigning. Þó verður þurrt að mestu um landið austanvert. Veður 1.10.2024 06:51
Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Ísraelsher hefur staðið í afmörkuðum hernaðaraðgerðum í Líbanon í alla nótt en lítið áhlaup var gert á landið í gær. Talsmenn hersins segja að verið sé að ráðast gegn ákveðnum skotmörkum innan landamæranna sem lúti stjórn Hezbollah-samtakanna. Erlent 1.10.2024 06:40
Rutte tekur við af Stoltenberg Hinn norski Jens Stoltenberg mun láta af embætti framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, NATO, í dag eftir tíu ár í embætti. Mark Rutte, fyrrverandi forsætisráðherra Hollands, tekur við stöðunni. Erlent 1.10.2024 06:34
Fluttur á sjúkrahús eftir hópslagsmál Einn var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans til aðhlynningar eftir að tilkynnt var um hópslagsmál í hverfi 105 í Reykjavík. Innlent 1.10.2024 06:09
Bein útsending: Assange lætur í sér heyra Julian Assange ávarpar laga- og mannréttindanefnd Evrópuráðsins klukkan hálf sjö að íslenskum tíma. Þetta er í fyrsta sinn sem hann kemur opinberlega fram síðan hann var fangelsaður fyrir fimm árum. Innlent 1.10.2024 05:31
Umdeild sameining sánuklefa: „Mér finnst allir vera óánægðir með þetta“ Vesturbæingar eru margir ósáttir með sameiningu sánuklefa karla og kvenna í Vesturbæjarlauginni. Einhverjar segja að verið sé að fæla fastagesti í burtu. Aðrir telja breytinguna til bóta í ljósi þess að innrauð sána komi í stað gömlu karlasánunnar. Innlent 1.10.2024 00:21
Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Ísraelsher hefur sent hermenn inn í Líbanon og lokað þar af ýmis svæði. Herinn segir áhlaupin beinast gegn hernaðarmannvirkjum Hezbollah í nokkrum þorpum nærri landamærunum. Erlent 30.9.2024 23:28
Flugfreyjan frestaði íbúðakaupum og fórnaði sparnaðinum í flugnám Hún var orðin flugfreyja, sá svo að hún gæti allt eins orðið flugmaður og fórnaði húsnæðissparnaðinum í flugnám. Núna stýrir hún stærstu þotum íslenska flugflotans. Innlent 30.9.2024 22:11
Bjóða upp á sértíma í líkamsrækt fyrir trans og kynsegin fólk Hópur trans fólks, kynsegin, og fólks sem er að máta kynvitund sína stundar vikulega líkamsrækt saman á æfingastöð sem býður upp á búningsklefa fyrir öll kyn. Tilgangurinn með hóptímunum er að búa til öruggt rými fyrir hópana til að hreyfa sig og styrkja sig líkamlega. Innlent 30.9.2024 22:09
Ólafur Ragnar um Davíð Oddsson: „Hugsar og hegðar sér eins og fasisti“ „Atburðarásin [hefur] verið ótrúleg - og óþörf ef Davíð Oddsson og ríkisstjórnin hefðu viljað taka skynsamlega á málum. Heiftin og löngunin til að sýna valdið hefur knúið hann áfram og svo ógnar hann öllum öðrum í sínu liði.“ Innlent 30.9.2024 21:15
Flogið yfir Goðabungu eftir stóra skjálftann Jarðskjálfti að stærð 3,7 reið yfir í Mýrdalsjökli snemma í morgun. Skjálftinn átti upptök sín um 6,4 kílómetra norðaustur af Goðabungu og er sá stærsti sem mælst hefur í jöklinum á þessu ári. Innlent 30.9.2024 20:38
Fundi frestað til morgundags: „Það kostar að vera með fólk í vinnu“ Fundi samninganefndar Eflingar og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu hefur verið frestað fram til morgundags. Formaður Eflingar segir að ef mönnunarmódelið verði lagað þá muni félagið ekki láta önnur atriði koma í veg fyrir samninga. Innlent 30.9.2024 19:50
Ræðismaður segir mikinn baráttuanda í Úkraínumönnum Ræðismaður Íslands í Úkraínu segir að Úkraínumenn muni berjast gegn innrás Rússa þar til landið hljóti fullt frelsi á ný. Stuðningur Íslands við landið væri mjög mikilvægur. Innlent 30.9.2024 19:31
Gríðarlega umfangsmikið matskerfi á leið inn í skólakerfið Það er neyðarástand í skólakerfinu vegna þess að hætt var að nota samræmd próf sem viðmiðun fyrir fimmtán árum. Þetta er mat Viðskiptaráðs sem vill taka upp samræmd próf á ný. Menntamálaráðherra segir að nýtt matskerfi verði tekið upp næsta skólaár. Kennarasambandið styður nýja kerfið heilshugar. Innlent 30.9.2024 19:01
„Töluverður og alvarlegur“ misbrestur við vinnslu mála Brotið var ítrekað gegn málsmeðferðarreglum barnaverndarlaga hjá barnaverndarþjónustu Borgarbyggðar, leiðbeiningar til starfsfólks skorti, verkferlar voru óskýrir og samskipti við aðila mála voru ekki í samræmi við lög og reglugerðir. Innlent 30.9.2024 18:20
Heimila íshellaferðir á ný Íshellaferðir í Vatnajökulsþjóðgarði verða leyfðar á ný frá og með morgundeginum að uppfylltum nýjum öryggiskröfum. Hlé var gert á slíkum ferðum eftir að bandarískur ferðamaður lést þegar ísveggur hrundi á hann í slíkri ferð í sumar. Innlent 30.9.2024 18:04
Bylting í skólakerfinu og flugfreyja sem eyddi húsnæðissparnaðinum í flugnám Menntamálaráðherra boðar nýtt og gríðarumfangsmikið matskerfi, sem taka á upp í grunnskólum á næsta skólaári. Kennarasambandið styður nýja kerfið heilshugar. Viðskiptaráð segir einfalt að gera breytingar á kerfinu, það þurfi að taka upp samræmd próf á ný. Innlent 30.9.2024 18:00
JL húsið verður búsetuúrræði fyrir flóttafólk Vinnumálastofnun og forsvarsmenn HB121 ehf., nýs eiganda JL hússins, hafa náð samkomulagi um að stór hluti húsnæðisins verði nýttur til að hýsa gistirými fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Innlent 30.9.2024 17:43
Eyvindur settur landsréttardómari Dómsmálaráðherra hefur sett Eyvind G. Gunnarsson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, í embætti dómara við Landsrétt frá og með 1. október 2024 til og með 28. febrúar 2029. Innlent 30.9.2024 16:56
Nýtt björgunarskip komið til landsins Björg, nýtt björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, var hífð frá borði Brúarfoss, skipi Eimskipafélagsins í Sundahöfn í um hádegi í dag. Björg mun leysa af hólmi skip með sama nafni á Rifi á Snæfellsnesi, sem er orðið 38 ára gamalt. Innlent 30.9.2024 16:18