Fréttir
80 81 82 83 84 85 86 87 88 … 334 ›
Tugmilljóna þýfi úr Elko enn ófundið Í hádegisfréttum verður rætt við Seðlabankastjóra sem segir að viðskiptabankarnir hafi farið heldur bratt í vaxtahækkanir á verðtryggðum íbúðalánum. Innlent 25.9.2024 11:44
Býst við að Bjarni bæti úr óheyrilegum meðferðartíma Umboðsmaður Alþingis telur málsmeðferðartíma Úrskurðarnefndar upplýsinga almennt lengri en góðu hófi gegnir. Nefndin hefur lofað bót og betrun og Umboðsmaður mun ekki beita sér frekar í málin. Hann gerir þó ráð fyrir því að forsætisráðherra leggi lóð sín á vogaskálarnar. Innlent 25.9.2024 11:41
Arnar Þór og Miðflokkur náðu ekki saman Viðræður Arnars Þórs Jónssonar, fyrrverandi forsetaframbjóðanda, og Miðflokksins hafa fjarað út. Hann segist íhuga alvarlega að stofna nýjan stjórnmálaflokk. Innlent 25.9.2024 11:34
Unnu spellvirki á finnska þinghúsinu til að mótmæla móvinnslu Á annan tug umhverfisverndarsinna var handtekinn eftir að spellvirki voru unnin á finnska þinghúsinu í Helsinki í morgun. Fólki skvetti rauðleitum vökva á tröppur og súlur hússins til þess að mótmæla móvinnslu finnsks fyrirtækis í Svíþjóð. Erlent 25.9.2024 11:23
Lögregluþjónn frá Hong Kong lést við Fossá á Skaga Maðurinn sem lést í bílslysi við Fossá á Skaga í gær var lögregluþjónn frá Hong Kong. Eiginkona hans, sem slasaðist, er einnig lögregluþjónn. Innlent 25.9.2024 10:26
Hútar vilja háþróaðar stýriflaugar frá Rússum Erindrekar frá Íran hafa komið að viðræðum milli yfirvalda í Rússlandi og Húta í Jemen, sem vilja fá háþróaðar eldflaugar frá Rússum til að sökkva skipum á Rauðahafi. Hútar hafa gert ítrekaðar árásir á skip á svæðinu og óttast er að umræddar eldflaugar gætu aukið getu þeirra til muna. Erlent 25.9.2024 10:15
Talinn hafa stungið mann eftir að hafa skemmt bílinn hans Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að valda skemmdum á bíl annars manns, brjótast inn til hans og stinga hann í tvígang. Atvikið sem málið varðar átti sér stað í Kópavogi árið 2022. Innlent 25.9.2024 09:01
Dregur úr vindi og ofankomu Í dag er búist við því að það dragi smám saman úr vindi og ofankomu. Víða verði norðan gola síðdegis og dálítil væta á norðaustanverðu landinu, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Veður 25.9.2024 08:58
Combs sakaður um enn eina kynferðisárásina Enn einn einstaklingurinn hefur stigið fram og ásakað tónlistar- og athafnamanninn Sean „Diddy“ Combs um kynferðisofbeldi. Kona að nafni Thalia Graves hefur höfðað mál gegn rapparanum, sem hún segir hafa nauðgað sér í New York árið 2001. Erlent 25.9.2024 08:32
Infowars á uppboð í nóvember upp í skuld við syrgjandi fjölskyldur Vefsíðan Infowars og tengdar eignir verða seldar á uppboði um miðjan nóvember, upp í skuld samsæriskenningasmiðsins Alex Jones við fjölskyldur barna sem létust í skotárásinni í Sandy Hook. Erlent 25.9.2024 07:46
Fjórar tilkynningar um innbrot og þjófnaði og þrír handteknir Þrír voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi eða nótt í tengslum við innbrot í verslun. Eru þeir grunaðir um að hafa brotið rúðu í versluninni og haft vörur á brott með sér. Innlent 25.9.2024 07:06
Starfsmenn Boeing sagðir hafna tilboði um 30 prósent launahækkun Forsvarsmenn International Association of Machinists and Aerospace Workers (IAM), sem talar máli þúsunda starfsmanna Boeing, segja félagsmenn sína ekki hafa áhuga á því að ganga að nýjasta tilboði flugvélaframleiðandas. Erlent 25.9.2024 06:57
Þurfa að skila útprentuðum eyðublöðum því ekki tókst að uppfæra Völu Sú breyting var gerð hjá Reykjavíkurborg í haust að ætli foreldrar að hafa börn sín í leikskóla í haust- og vetrarfríi grunnskóla og jólafríi þurfa foreldrar að skrá börnin sérstaklega í vistun. Foreldrum var tilkynnt um þessa breytingu um miðjan september. Innlent 25.9.2024 06:51
Sakar Hezbollah um að leiða Líbanon „að hyldýpinu“ Ísraelsher hélt árásum sínum á skotmörk í suðurhluta Líbanon áfram í nótt og í morgun en 569 eru sagðir hafa látið lífið í aðgerðunum hingað til, þar á meðal 50 börn. Erlent 25.9.2024 06:40
Vilja ályktun um stjórnarslit á dagskrá hjá VG „Landsfundur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn í Reykjavík 4. til 6. október 2024 ályktar að tímabært sé að horfa til þess að slíta ríkisstjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk.“ Innlent 24.9.2024 23:32
Skyldur vinnuveitenda gífurlegar í erfiðum málum „Varðandi MeToo-umræðuna. Að mörgu leyti hefur regluverkið ekki mikið breyst í gegnum tíðina. Kannski hefur verið skerpt aðeins á því hvað telst einelti og hvað er ofbeldi og slíkt en fyrirtækin eru að taka þetta miklu miklu fastari tökum og miklu meira formfast og rannsaka þetta með skipulögðum hætti. Málin eru bara svo flókin, það er engin ein leið rétt.“ Innlent 24.9.2024 22:47
Staðan miklu alvarlegri þegar vígvöllurinn er stærri Magnús Þorkell Bernharðsson, trúarbragðafræðingur og prófessor í sögu Mið-Austurlanda segir stöðuna mun alvarlegri og verri í Mið-Austurlöndum en hún hefur verið frá því að stríðið hófst á Gasa í október í fyrra. Innlent 24.9.2024 22:45
Móðir ákærð fyrir stórfellda líkamsárás Móðir um fjögurra ára drengs hefur verið ákærð fyrir stórfellda líkamsárás og heimilisofbeldi fyrir að láta umskera son sinn í heimahúsi sinn fyrir tveimur árum. Þá var drengurinn um 17 mánaða gamall. Héraðssaksóknari staðfestir að ákæra hafi verið gefin út. Hann segir líklegt að þinghald verði lokað í málinu. Innlent 24.9.2024 21:53
Smíði Ölfusárbrúar í uppnámi vegna skilyrðis fyrir ríkisábyrgð Smíði nýrrar Ölfusárbrúar er í uppnámi vegna skilyrðis um að gjaldtaka fyrir akstur yfir brúna standi undir kostnaði. Sérfræðingar ríkisábyrgðarsjóðs efast um að dæmið gangi upp. Fjármálaráðherra og innviðaráðherra leita leiða til að koma verkefninu í gang. Innlent 24.9.2024 21:42
„Við getum ekki treyst Hagkaup í Skeifunni fyrir unglingunum“ Foreldrar barna í hverfum 104, 105 og 108 kalla eftir því að opnunartími félagsmiðstöðva og sundlauga verði rýmkaður. Þá vilja þau að starf félagsmiðstöðva sé eflt. Fjölmennur foreldrafundur fór fram í kvöld í Safamýri. Þar kom einnig fram vilji til að efla foreldrarölt og foreldrasamstarf. Innlent 24.9.2024 21:07
„Þegar ég hugsa til baka þá fæ ég bara kökk í hálsinn“ Kona sem þurfti að bíða í næstum ár eftir NPA-þjónustu segir brotið á mannréttindum fatlaðs fólks, barna þeirra og fjölskyldu. Biðin bitnaði illa á manni hennar og dóttur og hún finnur til með þeim sem hafa þurft að bíða enn lengur. Hún er þakklát fyrir þá þjónustu sem hún fær nú, sem þó dugar ekki til. Innlent 24.9.2024 21:01
Banaslys við Fossá Ökumaður bifreiðarinnar sem ók út af og valt við Fossá á Skaga, norðan Skagastrandar, um klukkan tvö í dag lést í slysinu. Farþegi í ökutækinu var fluttur með sjúkrabifreið á Sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar. Innlent 24.9.2024 20:59
Erlend glæpagengi fá Íslendinga til að ræna reiðhjólaverslanir Brotist hefur verið inn í fjölmargar reiðhjólaverslanir á árinu, síðast fyrir helgi. Lögreglumaður segir innbrot í slíkar verslanir nokkuð ný af nálinni. Algengt sé að erlendir glæpahópar greiði Íslendingum fyrir að ræna verslanir og dæmi um að reynt hafi verið að senda þýfið úr landi. Innlent 24.9.2024 20:00
Miðflokkurinn marktækt stærri en Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn heldur áfram að bæta við fylgi sitt og nýtur nú marktækt meira fylgis en Sjálfstæðisflokkurinn samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Svandís Svavarsdóttir, sem tilkynnti framboð sitt til formanns Vinstri grænna í dag, telur eðlilegt að framtíð stjórnarsamstarfsins verði rædd á landsfundi hreyfingarinnar í næstu viku. Innlent 24.9.2024 18:32
Tíðindi í glænýrri könnun, innbrotafaraldur og biðin sem sligar fjölskyldur Talsverð tíðindi eru í glænýrri könnun Maskínu; þeirri fyrstu sem birtist eftir upphaf síðasta þingvetrar kjörtímabilsins. Heimir Már Pétursson rýnir í könnunina í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðir við Svandísi Svavarsdóttur, formannsefni VG, sem telur rétt að stefna að kosningum í vor. Þá heyrum við í formönnum Miðflokksins og Flokks fólksins í beinni útsendingu. Innlent 24.9.2024 18:00
Fjögur í varðhaldi vegna innbrota í Elko Fjögur voru í dag úrskurðuð í gæsluvarðhald til næsta föstudags vegna innbrota í tvær verslanir á höfuðborgarsvæðinu seint á sunnudagskvöld og aðfaranótt mánudags. Auk þeirra eru þrjú í haldi. Öll eru þau erlendir ríkisborgarar. Innlent 24.9.2024 17:59
Tveir í bílnum sem hafnaði utan vegar Tveir voru í ökutæki sem ók út af og valt við Fossá á Skaga, norðan Skagastrandar, um klukkan tvö í dag. Viðbragðsaðilar eru enn að störfum á vettvangi og hefur rannsóknarnefnd samgönguslysa verið kölluð til. Innlent 24.9.2024 17:55
Nokkur vitni að banaslysi við Brúará Þó nokkrir urðu vitni að því þegar karlmaður féll í Hlauptungufoss í Brúará um klukkan 13 í dag. Maðurinn fannst látinn skömmu síðar. Um var að ræða erlendan ferðamenn. Innlent 24.9.2024 17:46
Sonur tilræðismannsins handtekinn vegna barnaníðsefnis Oran Routh, sonur Ryan Routh, sem grunaður er um að hafa ætlað að bana Donald Trump á dögunum, var handtekinn í dag. Hann er grunaður um vörslu barnaníðsefni og var handtekinn í kjölfar leitar sem gerð var á heimili hans í Norður-Karólínu. Erlent 24.9.2024 16:41
Stefnt að hertara eftirliti á landamærunum í nóvember Dómsmálaráðherra segir að nánara eftirlit verði fljótlega tekið upp á Schengen landamærunum í samræmi við önnur ríki samstarfsins. Þá væri til athugunar að taka upp andlitsgreiningarbúnað að ósk lögreglustjórans á Suðurnesjum. Innlent 24.9.2024 16:34