Formúla 1
87 88 89 90 91 92 93 94 95 … 151 ›
Perez tognaður og með heilahristing Sauber Formúlu 1 liðið sendi frá sér fréttatilkynningu vegna óhapps Formúlu 1 ökumannsins Sergio Perez í tímatökunni í Mónakó í dag. Perez var fluttur á Princess Grace spítalann í Mónakó eftir að hann skall harkalega á varnarvegg í brautinni. Formúla 1 28.5.2011 15:45
Vettel fljótastur í tímatökum sem töfðust vegna óhapps Sebastian Vettel hjá Red Bull náði besta tíma í tímatökum á Mónakó kappakstursbrautinni í dag. Tímatakan tafðist mikið vegna óhapps sem henti Sergio Perez hjá Sauber í lok tímatökunnar. Perez skall harkalega á varnarvegg og stöðvaðist tímatakan í langan tíma af þeim sökum á meðan hugað var að Perez. Formúla 1 28.5.2011 14:49
Alonso fljótastur á lokaæfingunni, en Rosberg fékk harðan skell Fernando Alonso á Ferrari var með besta tíma á lokaæfingu Formúlu 1 liða í Mónakó í dag, en tímatakan fer fram í hádeginu og hefst bein útsending frá henni á Stöð 2 Sport kl. 11.45. Formúla 1 28.5.2011 10:26
Alonso: Verðum að taka áhættu Fernando Alonso var fljótasti ökumaðurinn á æfingum Formúlu 1 liða í Mónakó í gær, en lokaæfing og tímatakan fyrir Mónakó kappaksturinn sem fer fram á sunnudaginn verður á morgun. Ökumenn aka ekki í dag á brautinni í Mónakó, en hefð er fyrir því að aka fyrstu tvær æfingarnar á fimmtudögum í furstadæminu. Formúla 1 27.5.2011 12:51
Alonso fljótastur á seinni æfingunni Fernando Alonso á Ferrari var 0.105 sekúndum fljótari en Lewis Hamilton á á McLaren seinni æfingu Formúlu 1 liða í Mónakó í dag. Þriðji varð Nico Rosberg á Mercedes, 0.198 úr sekúndu á eftir. Formúlu 1 mótið í Mónakó fer fram á sunnudaginn, en samkvæmt hefð í Mónakó fara fyrstu æfingar fram á fimmtudögum. Formúla 1 26.5.2011 14:09
Vettel rétt á undan Alonso í Mónakó Sebastain Vettel á Red Bull náði besta tíma á fyrstu æfingu fyrir Mónakó kappaksturinn sem verður á sunnudaginn. Fyrsta og önnur æfing fer fram á fimmtudögum samkvæmt hefð i Mónakó, ekki á föstudögum eins og í öðrum mótum. Vettel var 0.113 sekúndum á undan Fernando Alonso á Ferrari æfingunni, en Nico Rosberg 'a Mercedes varð þriðji. Formúla 1 26.5.2011 10:08
Perez telur ökumanninn skipta meira máli í Mónakó, en á öðrum brautum Sergio Perez hjá Sauber Formúlu 1 liðinu telur að ökmaðurinn skipti meira máli í keppninni í Mónakó, en á öðrum brautum í Formúlu 1. Hann keppir á brautinni um næstu helgi ásamt liðsfélaga sínum Kamui Kobayashi. Perez er nýliði á þessu ári í Formúlu 1 en vann keppni í Mónakó í GP2 mótaröðinni í fyrra. Margir ökumenn hafa komið úr GP2 mótaröðinni í Formúlu 1. Formúla 1 23.5.2011 17:30
Vettel: Minnstu mistök dýrkeypt Sebastian Vettel hjá Red Bull Formúlu 1 liðinu er búinn að vinna fjögur mót á árinu og næsta viðfangsefni hans er keppnin í Mónakó um næstu helgi. Þar mætir hann ásamt liðsfélaganum Mark Webber, sem vann keppnina í Mónakó í fyrra. Vettel vann mótið á Katalóníu brautinni á Spáni í gær, eftir hörkueppni við Lewis Hamilton hjá McLaren. Formúla 1 23.5.2011 16:15
Hamilton og Button telja Mónakó brautina erfiðustu braut ársins Lewis Hamilton hjá McLaren varð annar í Formúlu 1 kappakstrinum á Spáni í gær, á eftir Sebastian Vettel hjá Red Bull. Hamilton keppir í Mónakó um næstu helgi með McLaren ásamt landa sínum Jenson Button, sem varð þriðji í gær. Formúla 1 23.5.2011 14:58
Schumacher og Rosberg njóta þess að keppa í furstadæminu Mónakó Næsta Formúlu 1 mót er á götum furstadæmisins Mónakó um næstu helgi og Mercedes liðið mætir að venju til keppni með Michael Schumacher og Nico Rosberg sér til fulltingis. Schumacher varð sjötti á Spáni í gær og Rosberg sjöundi, þegar keppt var á Katalóníu brautinni. Formúla 1 23.5.2011 14:13
Vettel ánægður eftir erfiðan dag Sebastian Vettel vann sinn fjórða sigur í Formúlu 1 ár þessu keppnistímabili í dag, eftir harða keppni við Lewis Hamilton á McLaren allt til loka mótsins á Katalóníu brautinni á Spáni. Munaði aðeins 0.630 úr sekúndu á þeim í endamarkinu. Formúla 1 22.5.2011 18:51
Vettel vann spennandi mót á Spáni Sebastian Vettel hjá Red Bull vann fjórða mót sitt á árinu, þegar hann kom fyrstur í endamark í Formúlu 1 mótinu á Spáni í dag. Hann varð aðeins 0.630 sekúndum á undan Lewis Hamilton á McLaren, en Jenson Button á McLaren varð þriðji. Formúla 1 22.5.2011 15:30
Webber telur mögulegt að geta stefnt á sigur Mark Webber hjá Red Bull Formúlu 1 liðinu verður fremstur á ráslínu þegar spænski kappaksturinn fer fram á morgun, á Katalóníu brautinni. Hann náði í dag besta tíma í tímatökum í fyrsta skipti á þessu ári. Sebastian Vettel er annar á ráslínu á Red Bull, Lewis Hamilton á McLaren þriðji og Fernando Alonso fjórði á Ferrrari. Formúla 1 21.5.2011 21:11
Mark Webber fremstur á ráslínu í fyrsta skipti á árinu Webber á Red Bull náði besta tíma í tímatökum á Katalóníu brautinni á Spáni í dag. Hann varð 0.200 úr sekúndu á undan liðsfélaga sínum Sebastian Vettel, en Lewis Hamilton á McLaren varð þriðji 0.980 á eftir Webber. Formúla 1 21.5.2011 13:39
Vettel rétt á undan Webber á lokaæfingunni fyrir tímatökuna Formúlu 1 ökumaðurinn Sebastian Vettel hjá Red Bull náði besta tíma á lokaæfingu keppnisliða á Katalóníu brautinni á Spáni í morgun, en tímatakan fer fram í hádeginu og verður hún sýnd í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í opinni dagskrá. Formúla 1 21.5.2011 10:22
Webber rétt á undan Hamilton á seinni æfingunni á Spáni Mark Webber á Red Bull var 0.039 úr sekúndu fljótari en Lewis Hamilton á seinni æfingu Formúlu 1 keppnisliða á Katalóníu brautinni á Spáni í dag. Sebastian Vettel á Red Bull varð þriðji, 0.356 úr sekúndu á eftir, en Jenson Button varð fjórði á McLaren. Formúla 1 20.5.2011 14:24
Webber fljótastur á fyrstu æfingu Mark Webber á Red Bull náði besta tíma á fyrstu æfingu keppnisliða á Katalóníu Formúlu 1 brautinni á Spáni í morgun. Hann var rúmlega sekúndu fljótari en liðsfélagi hans, Sebastiann Vettel. Webber vann mótið á Spáni í fyrra. Nico Rosberg á Mercedes varð þriðji á Mercedes og Fernando Alonso á á Ferrari fjórði, en hann er heimamaður. Landi Alonso, Jamie Alguersuari á Torro Rosso varð átjándi. Formúla 1 20.5.2011 10:33
Alguersuari stefnir á vera meðal tíu fremstu á heimavelli Spánverjinn Jamie Alguersuari er á heimavelli á Katalóníu Formúlu 1 brautinni á Spáni um helgina, rétt eins og landi hans Fernando Alonso, sem er ætíð hylltur af heimamönnum. Alguersuari ekur með Torro Rosso og fær trúlega ekki sömu athygli og Alonso sem er í toppslagnum ár frá ári, en Alguersuari hefur keppt frá árinu 2009 í Formúlu 1. Formúla 1 19.5.2011 16:48
Ferrari framlengdi samning við Alonso til ársloka 2016 Ferrari liðið hefur framlengt samning sinn við Fernando Alonso til ársloka 2016, samkvæmt fréttatilkynningu frá Ferrari liðinu, en fyrri samningurinn var til 2012 samkvæmt frétt á autosport.com Formúla 1 19.5.2011 15:33
Webber vill komast á efsta þrep verðlaunapallsins á Spáni á ný Mark Webber vann spænska kappaksturinn á Katalóníu brautinni á Spáni í fyrra og keppir á ný með Red Bull um helgina ásamt forystumanni stigamótsins, Sebastian Vettel. Webber var fremstur á ráslínu á brautinni fyrir kappaksturinn í fyrra og nýtti það vel, en síðustu 10 sigurvegarar mótins á Spáni hafa verið fremstir á ráslínu í upphafi kappakstur Formúla 1 19.5.2011 14:43
Paul di Resta: Verðum að taka framfaraskref Formúlu 1 nýliðinn Paul di Resta hlakkar til mótsins á Spáni um helgina, sem fer fram á Katalóníu brautinni sem er í 35 km fjarlægð frá Barcelona, höfuðborg Katalóníu héraðsins. Di Resta og Adrian Sutil aka með Force India á braut sem var notuð til æfinga í vetur og hefur verið notuð frá árinu 1991. Formúla 1 19.5.2011 14:07
Annasamur tími framundan hjá nýliðanum Belginn Jerome d'Ambrosio hjá Virgin Formúlu 1 liðinu telur að næstu næstu tvær vikur verði spennandi í augum áhorfenda, en keppt verður á Spáni um næstu helgi og í Mónakó helgina eftir. Hann hóf að keppa í Formúlu 1 á þessu keppnistímabili og ekur með Timo Glock í liði Virgin sem er að hluta til í eigu Marussia bílaframleiðandans í Rússlandi. Formúla 1 18.5.2011 15:10
Heidfeld telur Renault geta keppt við toppliðin Formúlu 1 ökumaðurinn Nick Heidfeld hjá Renault telur að ef lið sitt nær betri árangri í tímatökum, þá geti það keppt við liðin sem eru ofar að stigum, en það eru Red Bull, McLaren og Ferrari. Heidfeld varð sjöundi í síðustu keppni, sem var í Tyrklandi. Hann er með 21 stig í stigakeppni ökumanna eins og liðsfélaginn Vitaly Petrov, en sex ökumenn eru með fleiri stig. Þeir Renault félagar keppa á Spáni um helgina. Formúla 1 18.5.2011 13:45
Reglubreyting FIA gæti breytt gangi mála í Formúlu 1 FIA hefur ákveðið að breyta reglum um útbúnað Formúlu 1 bíla til að sporna við þróun sem bílasambandið telur ekki góða til eftirbreytni í Formúlu 1 mótum ársins. FIA hefur sent keppnisliðum skilaboð vegna málsins, en keppt verður á Katalóníu brautinni, sem er nærri Barcelona á Spáni um næstu helgi Formúla 1 17.5.2011 19:26
Barrichello vongóður um framfaraskref Williams liðið hefur ekki riðið feitum hesti frá mótum ársins, en reynsluboltinn Rubens Barrichello sem ekur með liðinu ásamt nýliðanum Pastor Maldonado vonast eftir að Williams bíllinn verði betri á Katalóniu brautinni á Spáni um næstu helgi, en í fyrstu fjórum mótum ársins. Formúla 1 17.5.2011 18:23
Sauber með endurbættan bíl á Spáni Sauber liðið frá Sviss mætir með verulega endurbættan bíl í Formúlu 1 mótið á Spáni um næstu helgi. Keppt verður á Katalóníu brautinni sem er nærri Barcleona. Sauber hefur náð í átta stig í fyrstu fjórum mótunum og Kamui Kobayashi náði þeim árangri að ná í stig í síðasta móti þó hann ræsti af stað úr síðsta sæti, eftir að bíll hans bilaði í tímatökunni. Formúla 1 17.5.2011 16:26
Sutil á yfir höfði sér ákæru vegna líkamsárásar Formúlu 1 ökumaðurinn, Adrian Sutil á yfir höfði sér ákæru fyrir líkamsáras, sem er sögð hafa verið eftir kappaksturinn í Kína á dögunum. Atvikið varð á næturklúbbi í Sjanghæ, en engar opinberar skýringar hafa verið gefnar á atvikinu samkvæmt fréttum á autosport.com í dag. Sutil er meðal keppenda í Formúlu 1 mótinu á Spáni um næstu helgi. Formúla 1 16.5.2011 21:13
Button: Lærðum að vinna sem lið í síðustu keppni Jenson Button telur að McLaren hafi lært sína lexíu varðandi gerð keppnisáætlanna í síðasta móti, en aðferðafræðin hefur breyst nokkuð útaf nýjum dekkjum sem notuð eru á þessu keppnistímabili. McLaren keppir á Spáni um næstu helgi. Formúla 1 16.5.2011 15:28
Spennandi tímar framundan hjá Lotus að mati nýja tæknistjórans Mark Smith hefur verið ráðinn tæknistjóri hjá Lotus liðinu, sem keppir um næstu helgi á Spáni í fimmta Formúlu 1 móti ársins. Smith hefur m.a. unnið með Jordan, Renault, Red Bull og Force India og hefur verið í sigurliðum af þeim sökum. Ráðning hans er fengur fyrir liðið og ökumennina Heikki Kovalainen og Jarno Trulli. Formúla 1 16.5.2011 14:40
Schumacher sigursælastur á Spáni Fimmta umferð Formúlu 1 meistaramótsins er um aðra helgi á Spáni og Mercedes liðið ætlar sér góðan árangur, eftir að liðinu óx nokkuð ásmeginn í síðustu keppni. Michale Schumacher hefur oftast unnið á brautinni, eða sex sinnum en hann ekur Mercedes. Formúla 1 13.5.2011 16:10