Erlent
141 142 143 144 145 146 147 148 149 … 334 ›
Áttu „opinskáar“ og „uppbyggilegar“ viðræður Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fundaði með Wang Yi, framkvæmdastjóra utanríkismála í miðstjórn kínverska Kommúnistaflokksins, í morgun. Blinken er í formlegri heimsókn í Kína en ekki liggur fyrir hvort hann mun hitta forsetann, Xi Jinping. Erlent 19.6.2023 07:15
Segja gögn benda til þess að grísk yfirvöld hafi sagt ósatt Breska ríkisútvarpið segist hafa gögn undir höndum sem bendi til að gríska strandgæslan hafi ekki sagt rétt frá þegar yfirfullur flóttamannabátur sökk unan grísku ströndinni með þeim afleiðingum að hundruð fórust. Erlent 19.6.2023 06:53
Lést sjö dögum eftir að hafa lifnað við í eigin jarðarför Kona sem lifnaði við í eigin jarðarför í síðustu viku er látin, viku eftir að atburðurinn átti sér stað. Hún lést af völdum heilablóðfalls, 76 ára. Erlent 18.6.2023 18:37
Vinsælasta tónlistarkona heims hætt að halda tónleika? Vinsælasta tónlistarkona heims ætlar ekki að halda neina tónleika á næstu misserum og kannski aldrei framar. Æ fleiri tónlistarmenn aflýsa nú tónleikum sínum vegna þess hversu mikið álag það er á andlega heilsu þeirra. Erlent 18.6.2023 16:00
Biðst afsökunar á „skelfilegu“ myndbandi af gleðskap í Covid Ráðherra Íhaldsflokksins baðst í dag afsökunar á myndbandi sem sýnir gleðskap í höfuðstöðvum flokksins á meðan strangt samkomubann var í gildi í kórónuveirufaraldrinu. Á myndbandinu sjást flokksmenn drekka og dansa á sama tíma og fólk gat ekki verið með ástvinum á dánarbeði vegna takmarkananna. Erlent 18.6.2023 10:12
Myrtu hátt í fjörutíu nemendur í skóla í Úganda Uppreisnarmenn með tengsl við hryðjuverkasamtökin Ríki íslams eru sakaðir um að myrða 41 mann, þar af 38 nemendur, í heimavistarskóla í Úganda nærri landamærunum að Austur-Kongó á föstudagskvöld. Sum fórnarlambanna voru brennd til bana. Erlent 18.6.2023 08:51
Reynir að lægja öldurnar í heimsókn til Kína Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er mættur til Kína í opinbera heimsókn sem er ætlað að lægja öldurnar í samskiptum þjóðanna. Þetta er í fyrsta skipti sem bandarískur utanríkisráðherra heimsækir Kína í fimm ár. Erlent 18.6.2023 08:03
Margrét Þórhildur hætt að reykja Margrét Þórhildur Danadrottning er hætt að reykja. Það mega heita nokkuð stór tíðindi en drottningin hefur löngum verið mikil reykingamanneskja, eða frá því hún var 17 ára gömul. Erlent 17.6.2023 15:43
Vinstri stjórn Spánar heldur velli samkvæmt skoðanakönnunum Nýjar skoðanakannanir benda til þess að ríkisstjórn sósíalista haldi velli í þingkosningunum eftir mánuð. Fyrir viku bentu skoðanakannanir til hins gagnstæða. Erlent 17.6.2023 14:31
Fimm hundruð enn saknað og aðdragandi óljós Um fimm hundruð manns er enn saknað eftir að fiskibát, sem ferjaði nokkur hundruð flóttamenn, hvolfdi úti fyrir ströndum Grikklands á miðvikudag. Þriggja daga þjóðarsorg í Grikklandi var lýst yfir á fimmtudag. Erlent 17.6.2023 12:24
„Til fjandans með þá“ Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sagði í dag að til greina kæmi að beita kjarnorkuvopnum, ef öryggi Rússlands væri ógnað. Þá sagði Pútín að Rússar myndi ekki fækka kjarnorkuvopnum sínum, sama hvurslags samkomulag Vesturlönd reyndi að gera við Rússland. Erlent 16.6.2023 22:30
Mismunaði svörtum og frumbyggjum kerfisbundið fyrir dauða Floyd Lögreglan í Minneapolis í Bandaríkjunum sýndi almenna tilhneigingu til þess að brjóta stjórnarskrárbundin réttindi og mismuna svörtum og frumbyggjum. Þetta er niðurstaða rannsóknar dómsmálaráðuneytisins sem var hrint af stað eftir að lögreglumenn urðu George Floyd að bana árið 2020. Erlent 16.6.2023 15:40
Segir Selenskí vera skömm fyrir gyðinga Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir efnahag Rússlands sterkan og hafnar því að ríkið sé orðið einangrað vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Þá sagði Pútín að Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, væri ekki gyðingur. Þetta sagði forsetinn á fjárfestaráðstefnu í Pétursborg, sem gengur út á það laða erlenda fjárfesta til Rússlands. Erlent 16.6.2023 14:59
Risavaxin grjótskriða staðnæmdist steinsnar frá þorpi Þorp í svissnesku Ölpunum slapp naumlega þegar gríðarmikil grjótskriða féll úr fjallshlíð í gærkvöldi. Engar skemmdir urðu á byggingum en þorpið var rýmt fyrir rúmum mánuði vegna hættunar á grjóthruni. Erlent 16.6.2023 12:54
Segja fordóma í kerfinu og óttast um unga fólkið Stór meirihluti svartra Bandaríkjamanna telja innbyggða fordóma í efnahagslega kerfinu og meirihluti telur að rasismi muni aukast á þeirra líftíma. Þetta eru niðurstöður skoðanakönnunar Washington Post og Ipsos. Erlent 16.6.2023 11:52
Forsetar þurftu að leita sér skjóls vegna eldflauga Háværar sprengingar heyrðust í Kænugarði í morgun eftir að Rússar skutu eldflaugum á borgina. Nokkrir forsetar Afríkuríkja eru staddir í Kænugarði, þar sem þeir munu ræða við ráðamenn um mögulegar friðarviðræður við Rússa. Því næst munu þeir fara til Pétursborgar í Rússlandi og hitta Vladimír Pútín, forseta. Erlent 16.6.2023 11:52
Teixeira sagði það „töff“ að vita meira en aðrir Jack Teixeira hefur verið ákærður fyrir að leka leynilegum hernaðarupplýsingum á netið um langt skeið. Hann birti tugi mynda af leynilegum skjölum á spjallborði í samskiptaforritinu Discord í nokkra mánuði, áður en upp um hann komst og hann var handtekinn í apríl. Erlent 16.6.2023 10:48
Þau látnu eldri borgarar á leið í spilavíti Fimmtán eru nú sagðir hafa látist í árekstri flutningabíls og rútu á hraðbraut í Manitoba í Kanada í gær. Flestir þeirra sem létust voru eldri borgarar sem voru farþegar í rútunni. Tíu til viðbótar eru slasaðir eftir slysið. Erlent 16.6.2023 10:39
Stjórnarsáttmáli í höfn tveimur og hálfum mánuði eftir kosningar Fjórir flokkar af hægri vængnum tilkynntu að þeir hefðu náð saman um sáttmála nýrrar ríkisstjórnar Finnlands í gærkvöldi, tveimur og hálfum mánuði eftir þingkosningar í landinu. Petteri Orpo, leiðtogi Sambandsflokksins, verður forsætisráðherra í samsteypustjórninni. Erlent 16.6.2023 09:04
Páfi laus af sjúkrahúsi eftir skurðaðgerð Frans páfi var útskrifaður af sjúkrahúsi í Róm þar sem hann gekkst undir aðgerð vegna kviðslits í dag. Skurðlæknir páfa segir að hann sé nú betri en hann var fyrir aðgerðina. Erlent 16.6.2023 08:49
Kynferðislegur lágmarksaldur færður úr 13 árum í 16 Stjórnvöld í Japan hafa gert breytingar á lögum er varða kynferðisbrot, sem fela meðal annars í sér að kynferðislegur lágmarksaldur hefur nú verið færður úr 13 árum í 16 ár. Þá hafa skilyrði „nauðgunar“ verið skýrð og gægjuhneigð gerð refsiverð. Erlent 16.6.2023 08:17
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Maraþon en ekki spretthlaup“ Harðir bardagar hafa geisað í suður- og austurhluta Úkraínu undanfarnar daga, þar sem gagnsókn Úkraínumanna er hafin. Nokkur þorp hafa verið frelsuð úr höndum Rússa en Úkraínumenn hafa sótt tiltölulega grunnt inn í varnir Rússa en á víðu svæði. Erlent 16.6.2023 08:01
Handtóku níu grunaða smyglara eftir harmleikinn á Miðjarðarhafi Lögreglan á Grikklandi hefur handtekið níu aðila sem grunaðir eru um að hafa staðið að smygli á fólki frá Líbíu til Evrópu um borð í yfirfulla fiskibátnum sem sökk á miðvikudaginn. Erlent 16.6.2023 07:44
Segja að 150 börnum hafi verið rænt og þau flutt til Rússlands Yfirvöld í Úkraínu segja að 150 börnum hafi verið rænt í Starobilsk í Luhansk 8. júní síðastliðinn og flutt á tvær stofnanir í Prikuban í Karachay-Cherkess í Rússlandi. Erlent 16.6.2023 07:02
Þriggja daga þjóðarsorg í Grikklandi Stjórnvöld í Grikklandi hafa fyrirskipað þriggja daga þjóðarsorg eftir að 79 manns á flótta fórust þegar báti þeirra hvolfdi úti fyrir ströndum landsins í gær. Óttast er um afdrif hundraða annarra sem voru á bátnum. Erlent 15.6.2023 22:30
Tíu látnir hið minnsta eftir bílslys í Kanada Minnst tíu eru látnir eftir að vöruflutningabíll og ferðaþjónustubíll aldraðra skullu saman um 160 kílómetra vestur af Winnipeg í Manitoba-fylki í Kanada í kvöld. Erlent 15.6.2023 22:13
Rússar skutu eldflaugum á Kherson í dag Rússar héldu áfram loftárásum á borgir í suðurhluta Úkraínu í dag. Flugskeyti hæfðu skrifstofubyggingu miðborg Kherson sem Rússar höfðu hertekið en var stökkt á flótta þaðan í nóvember. Erlent 15.6.2023 21:17
Lykilhráefni lífs í neðanjarðarhafi tungls Satúrnusar Ofgnótt af frumefninu fosfór, sem er nauðsynleg byggingareining lífs eins og við þekkjum það, er líklega að finna í neðanjarðarhafi undir ísskorpi Enkeladusar, tungls Satúrnusar. Efnasambönd sem innihalda frumefnið fundust í einum hringja Satúrnusar sem íshverir Enkeladusar fóðra. Erlent 15.6.2023 20:02
Stal líkum barna sem fæddust andvana Alríkissaksóknarar í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum segja umsjónarmann líkhúss læknadeildar Harvard skólans hafa selt líkamsparta líka sem gefin voru skólanum. Hann er sakaður um að hafa leyft kaupendum að koma í líkhúsið og velja sér líkamsparta til að kaupa en kaupendur hans og aðrir hafa verið ákærðir vegna málsins. Erlent 15.6.2023 14:46
Kona látin eftir árás við Neuschwanstein-kastala Kona er látin og önnur særð eftir árás manns nærri Neuschwanstein-kastala í suðurhluta Þýskalands, einum vinsælasta ferðamannastað landsins. Erlent 15.6.2023 13:25