Erlent
159 160 161 162 163 164 165 166 167 … 334 ›
Fjölskylda þeirrar látnu stefnir Baldwin Aðstandendur Halynu Hutchins, tökustjóra kvikmyndarinnar Rust, ætla að stefna Alec Baldwin þrátt fyrir að saksóknarar hafi fellt niður ákæru á hendur honum vegna dauða hennar. Lögmaður fjölskyldunnar segir leikarann ekki geta komið sér undan ábyrgð. Erlent 22.4.2023 09:46
Rússar sagðir vilja leiða saman hægri og vinstri Stjórnvöld í Kreml hafa það sem yfirlýst markmið sitt að grafa undan stuðningi í Þýskalandi við málstað Úkraínu með því að leiða saman vinstri og hægri jaðrana í þarlendum stjórnmálum. Flokkar hvor á sínum jaðrinum hafa haldið sameiginlega viðburði gegn stríðinu í Þýskalandi að undanförnu. Erlent 22.4.2023 08:17
Hæstiréttur Bandaríkjanna stöðvar bann við þungunarrofslyfi Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur ákveðið að leyfa áfram þungunarrofslyfið mifepristone á meðan málaferli standa yfir. Dómari í Texas ógilti markaðsleyfi matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna (FDA) fyrr í mánuðinum. Erlent 21.4.2023 23:22
Orban furðar sig á mögulegri inngöngu Úkraínu í NATO Viktor Orban forsætisráðherra Ungverjalands furðar sig á mögulegri inngöngu Úkraínumanna í Atlantshafsbandalagið. Orban deildi frétt um málið á Twitter-síðu sinni og sagði einfaldlega: „Ha?!“ Erlent 21.4.2023 23:07
Háskólaprófessor í lífstíðarfangelsi fjörutíu árum eftir sprenginguna Hassan Diab, 69 ára gamall háskólaprófessor búsettur í Ottowa í Kanada, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir hryðjuverk. Hann var sakfelldur fyrir að hafa sprengt sprengju fyrir utan bænahús í París árið 1980 þar sem fjórir létust og 46 særðust. Erlent 21.4.2023 22:00
Raab segir af sér vegna ásakana undirmanna um einelti Dominic Raab, dómsmálaráðherra og aðstoðarforsætisráðherra Bretlands, hefur sagt af sér. Ástæðan eru niðurstöður rannsóknar á ásökunum fjölda undirmanna hans um einelti og áreiti. Erlent 21.4.2023 10:30
Deildar meiningar um mögulega Nató-aðild Úkraínumanna Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, hefur ítrekað að Úkraína muni ganga í Nató. Þegar yfirstandandi átök taki enda verði að tryggja Úkraínumönnum fælingarmátt til að forða nýjum árásum. Erlent 21.4.2023 09:09
Tvær klappstýrur skotnar eftir að hafa sest upp í vitlausan bíl Tvær klappstýrur voru skotnar af manni eftir að önnur þeirra settist óvart upp í bílinn hans. Var hann handtekinn og hefur verið kærður af lögreglu. Erlent 21.4.2023 08:37
Lögregla rannsakar gullrán á flugvelli í Kanada Lögregluyfirvöld í Kanada hafa nú til rannsóknar gullþjófnað á Pearson-alþjóðaflugvellinum í Toronto. Samkvæmt erlendum miðlum hvarf gull og önnur verðmæti að andvirði 15 milljóna Bandaríkjadala á vellinum síðasta mánudag. Erlent 21.4.2023 08:10
Biden sagður munu tilkynna um framboð sitt á þriðjudag Joe Biden Bandaríkjaforseti er sagður stefna á að tilkynna það á þriðjudag að hann muni sækjast eftir endurkjöri. Fjögur ár verða þá liðinn frá því að hann tilkynnti um framboð sitt fyrir forsetakosningarnar 2020. Erlent 21.4.2023 07:16
Rússnesk herþota skaut á rússnesku borgina Belgorod Rússnesk herþota skaut af vopnum sínum á rússnesku borgina Belgorod seint í gærkvöldi. Tvær konur slösuðust og fjögur íbúðahús og fjórir bílar skemmdust, að sögn yfirvalda. Erlent 21.4.2023 06:38
Baldwin laus allra mála Leikarinn Alec Baldwin verður ekki ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Baldwin skaut kvikmyndatökustjórann Halyna Hutchins til bana við tökur á myndinni Rust árið 2021. Erlent 20.4.2023 20:30
Sakaður um að hafa skotið sex ára stúlku út af körfubolta Lögreglan í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum leitar nú að manni sem grunaður er um að hafa skotið sex ára stúlku eftir að körfubolti hennar rúllaði yfir í garð hans. Hann er sagður hafa farið inn í hús sitt, sótt byssu og skotið stúlkuna og föður hennar. Nágranni segir málið skelfilegt. Erlent 20.4.2023 18:37
„Þetta er afturför um heilan áratug“ Mikið bakslag hefur orðið í bólusetningum barna víða um heim en 67 milljónir barna hafa misst af einni eða fleiri bólusetningum á síðustu þremur árum. Tortryggni í garð bólusetninga eftir heimsfaraldur spilar þar stórt hlutverk. Framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi segir þetta afturför um heilan áratug en sé ekkert gert gæti tíðni barnadauða aukist. Erlent 20.4.2023 15:00
Grunsamlegur ljósblossi á himni yfir Kænugarði Grunsamlegur ljósblossi sem birtist á himni yfir Kænugarði höfuðborg Úkraínu í gærkvöldi, og Úkraínumenn grunaði að væri mögulega bandarískur gervihnöttur, var að öllum líkindum loftsteinn. Erlent 20.4.2023 13:58
Sprengdu Starship eftir bilun í aðskilnaðarbúnaði Fyrirtækið SpaceX mun reyna aftur í dag að koma stærstu eldflaug sögunnar út í geim. Stefnt er að því að skjóta flauginni klukkan hálf tvö í dag. Erlent 20.4.2023 11:09
21 ár í fangelsi fyrir að gefa tvífara sínum eitraða ostaköku Viktoria Nasyrova, 47 ára gömul rússnesk kona, hefur verið dæmd í 21 árs fangelsi fyrir að eitra fyrir tvífara sínum í ágúst árið 2016. Gaf hún henni eitraða ostaköku en tvífarinn, sem einnig er rússnesk kona, lifði atvikið af. Erlent 20.4.2023 10:08
Nýja Airbus A321-þotan flugprófuð í fimbulkulda Hin nýja langdræga Airbus A321XLR-þota gengst um þessar mundir undir viðamiklar flugprófanir og var hún á dögunum reynd í fimbulkulda. Prófanirnar fóru fram á Iqaluit-flugvellinum við Frobisher-flóa í Norður-Kanada þar sem Airbus segir að frostið hafi farið niður í allt að -40 gráður. Erlent 20.4.2023 09:29
Áttatíu látnir eftir mikinn troðning í Jemen Að minnsta kosti áttatíu létu lífið í Sanaa, höfuðborg Jemen, í nótt í miklum troðningi. Fólkið hafði verið að reyna að fá ölmusu frá verslunum í nágrenni við sig. Erlent 20.4.2023 08:01
TikTok bregst við Benadryl-áskorun eftir andlát drengs Samfélagsmiðillinn TikTok hefur gefið út tilkynningu um hina svokölluðu Benadryl-áskorun í kjölfar andláts drengs í Ohio sem hafði tekið þátt í áskoruninni á forritinu. Áskorunin gekk út á það að innbyrða óhóflegt magn af ofnæmislyfinu Benadryl en TikTok hefur nú lokað fyrir mögulega leit notenda að áskoruninni. Erlent 19.4.2023 21:04
Einn virtasti vísindamaður heims rekinn úr starfi Háskólinn í Córdoba á Spáni hefur rekið einn sinn virtasta vísindamann úr starfi fyrir að leyfa háskólum í Sádi Arabíu og Rússlandi að tengja sig við nafn hans. Vísindamaðurinn gefur út fræðigreinar á tveggja daga fresti að meðaltali og viðurkennir að hann notist við gervigreindarforrit til að flýta fyrir sér. Erlent 19.4.2023 15:01
Leyniþjónustan gómaði barn Barn náði að troða sér í gegnum girðinguna hjá Hvíta húsinu, bústað forseta Bandaríkjanna, í gær. Viðvörunarkerfi leyniþjónustu Bandaríkjanna fór við það í gang. Fulltrúum hennar tókst að hafa uppi á barninu og koma því aftur til foreldra sinna. Erlent 19.4.2023 14:26
Tugir sjúklinga látnir í bruna á sjúkrahúsi í Beijing Að minnsta kosti 29 manns eru látnir, þar á meðal 26 sjúklingar, eftir að eldur kom upp á sjúkrahúsi í Beijing í Kína í gær. Tugir manna hafa verið handteknir vegna brunans, þar á meðal forstjóri og næstráðandi sjúkrahússins. Erlent 19.4.2023 08:57
Segja Rússa undirbúa skemmdarverk í Norðursjó Samkvæmt rannsókn ríkismiðlanna DR í Danmörku, NRK í Noregi, SVT í Svíþjóð og Yle í Finnlandi áforma Rússar að vinna skemmdarverk á sæstrengjum og vindorkubúum í Norðursjó ef til átaka kemur við Vesturlönd. Erlent 19.4.2023 08:33
Bílastæðahús á Manhattan hrundi Bílastæðahús hrundi á Manhattan í New York-borg í gær. Einn lést og fimm slösuðust er bílar á efstu hæð hússins hrundu niður. Ekki er talið að neinn sé enn grafinn í rústunum. Erlent 19.4.2023 08:28
Fox greiðir Dominion 107 milljarða vegna lyga um kosningasvindl Fyrirtækið Dominion, sem framleiðir kosningavélar sem notaðar eru víða í Bandaríkjunum, hefur komist að samkomulagi við sjónvarpsstöðina Fox um greiðslu skaðabóta vegna ósanninda sem haldið var fram á sjónvarpsstöðinni um búnað fyrirtækisins eftir forsetakosningarnar 2020. Fox féllst á að greiða Dominion 787 milljónir bandaríkjadala í skaðabætur, sem nemur um 107 milljörðum íslenskra króna. Erlent 18.4.2023 20:22
Halda bandarískum blaðamanni áfram bak við lás og slá Rússneskur dómari úrskurðaði að Evan Gershkovich, bandarísku blaðamaður Wall Street Journal, verði áfram í varðhaldi eftir að hann var sakaður um njósnir í Rússlandi. Gershkovich og bandarísk stjórnvöld vísa ásökunum á bug. Erlent 18.4.2023 15:43
Stjórnvöld á Indlandi mótmæla harðlega hjónbandi samkynja einstaklinga Stjórnvöld á Indlandi hafa sett sig harðlega upp á móti umleitan hinsegin fólks til að fá að gangast í hjónaband. Málið hefur ratað til hæstaréttar landsins, sem hefur áður úrskurðað gegn vilja stjórnvalda og felldi til að mynda úr gildi bann gegn samkynhneigð árið 2018. Erlent 18.4.2023 12:24
Samþykktu löggjöf um breyttar losunarheimildir í flugi Þingmenn Evrópuþingsins samþykktu í morgun löggjöf um breyttar reglur um losunarheimildir í flugi en íslensk stjórnvöld hafa mótmælt þessum fyrirætlunum harðlega. Málið var samþykkt með 521 atkvæðum, en 75 greiddu akvæði gegn og 43 sátu hjá. Erlent 18.4.2023 12:02
Maður á níræðisaldri ákærður fyrir að skjóta ungling sem fór húsavillt Lögreglan í Kansas-borg í Missouri í Bandaríkjunum hefur ákært 84 ára gamlan hvítan karlmann fyrir að skjóta svartan unglingsdreng sem fór húsavillt þegar hann ætlaði að sækja yngri bræður sína. Drengurinn var meðal annars skotinn í höfuðið en hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi. Erlent 18.4.2023 08:35