Erlent
207 208 209 210 211 212 213 214 215 … 334 ›
Kann að enda með að boðað verði til þingkosninga Færeyski Miðflokkurinn hefur sagt skilið við ríkisstjórn landsins eftir að Bárður á Steig Nielsen, lögmaður Færeyja, ákvað að reka formann Miðflokksins, Jenis av Rana, úr embætti utanríkis- og menntamálaráðherra í gær. Miklar líkur eru á að boðað verði til þingkosninga í Færeyjum til að leysa úr þeirri stöðu sem upp er komin í færeyskum stjórnmálum. Erlent 9.11.2022 13:51
Sviss útvistar loftslagsmarkmiðum til snauðari þjóða Stjórnvöld í Sviss hafa gert samninga við nokkur fátækari ríki um að þau dragi úr losun gróðurhúsalofttegunda en að Sviss fái heiðurinn af samdrættinum. Sérfræðingar vara við því að samningar af þessu tagi gætu tafið loftslagsaðgerðir í auðugri ríkjum heims. Erlent 9.11.2022 13:49
Penn lánar Selenskí Óskarsverðlaunin Leikarinn og leikstjórinn Sean Penn er staddur í Úkraínu, þar sem hann fundaði meðal annars með Vólódímír Selenskí Úkraínuforseta og lánaði honum annan af tveimur Óskarsverðlaungripum sínum. Bað hann Selenskí að skila styttunni til Malibu þegar Úkraínumenn hefðu haft sigur af Rússum. Erlent 9.11.2022 12:25
Meiri líkur á að demókratar geti stöðvað Trump-málin Prófessor í sagnfræði segir varnarsigur demókrata í nýafstöðnum þingkosningum í Bandaríkjunum hafa komið sér talsvert á óvart. Demókratar gætu vel haldið meirihluta í öldungadeildinni, einkum í ljósi mikilvægs sigurs í Pennsylvaníu, en repúblikanar taka líklegast yfir fulltrúadeildina, sem verður Biden þungur baggi. Erlent 9.11.2022 12:12
Sagðir sækja fram úr nokkrum áttum í Kherson Hersveitir Úkraínu hafa náð árangri gegn Rússum í Kherson-héraði í dag og í gær. Rússar eru sagðir hafa verið sigraðir í nokkrum þorpum á vesturbakka Dniproár og hafa sprengt upp nokkrar brýr til að gera Úkraínumönnum erfitt um vik. Erlent 9.11.2022 11:48
Kjósendur í þremur ríkjum samþykkja að binda rétt kvenna til þungunarrofs í stjórnarskrá Verðbólga og þungunarrof voru efst á blaði meðal þeirra málefna sem höfðu hvað mest áhrif þegar kjósendur í Bandaríkjunum gengu til þingkosninga í gær. Í þremur ríkjum samþykktu kjósendur aðgerðir til að standa vörð um rétt kvenna til þungunarrofs. Erlent 9.11.2022 10:01
Vaktin: Talið upp úr kössunum vestanhafs Bandaríkjamenn gengu til þingkosninga í gær og eru yfirráð í báðum deildum þingsins í húfi. Vísir fylgist með helstu vendingum vestanhafs í Vaktinni í dag. Erlent 9.11.2022 09:50
Útlit fyrir varnarsigur demókrata í þingkosningunum Vonir repúblikana um að svonefnd „rauð alda“ fleytti þeim til sigurs í báðum deildum Bandaríkjaþings virðist hafa fjarað út í kosningum sem fóru fram í gær. Útlit er fyrir að demókratar gætu landað varnarsigri við aðstæður sem hefðu átt að hygla andstæðingum þeirra verulega. Það gæti þó tekið nokkra daga að fá endanleg úrslit í sumum ríkjum. Erlent 9.11.2022 09:18
Trump hótar DeSantis Donald Trump fyrrverandi forseti kaus Ron DeSantis í ríkisstjórakosningunum sem fram fóru í gær en notaði þó tækifærið í viðtali við Fox sjónvarpsstöðina til að vara DeSantis við mögulegu framboði til forseta eftir tvö ár. Erlent 9.11.2022 07:55
Fetterman lagði Oz CNN, Fox News og fleiri miðlar hafa lýst John Fetterman sigurvegara í öldungadeildarþingkosningunum í Pennsylvaníu, þar sem mótframbjóðandi hans var sjónvarpslæknirinn Dr. Mehmet Oz. Erlent 9.11.2022 06:45
Bein útsending: Ná Repúblikanar tökum á Bandaríkjaþingi? Bandaríkjamenn hafa nýtt daginn í dag til að greiða atkvæði í þingkosningum, ríkisstjórakosningum sem og fjölmörgum kosningum um smærri embætti víðs vegar um landið. Talið er líklegt að Repúblikanar muni ná völdum í báðum deildum Bandaríkjaþings. Erlent 8.11.2022 23:01
Vann stærsta lottóvinning sögunnar Stálheppinn Kaliforníu-búi í Bandaríkjunum vann stærsta lottóvinning sögunnar í dag í hinu svokallaða Powerball-lottói þar í landi. Viðkomandi hefur ekki gefið sig fram en vann tvo milljarða dollara. Erlent 8.11.2022 21:54
Tugir gætu átt yfir höfði sér dauðadóm vegna þátttöku í mótmælunum Opið bréf sem undirritað var af miklum meirihluta þingheims í Íran hvetur dómarastétt landsins til þess að beita mótmælendur meiri hörku og sýna enga vægð. Erlent 8.11.2022 21:18
Biden segir tvö hræðileg ár framundan gangi spár eftir Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, virðist ekki mjög spenntur fyrir næstu tveimur árum gangi spár fyrir þingkosningarnar í Bandaríkjunum sem haldnar eru í dag eftir. Erlent 8.11.2022 20:59
Vill að heimurinn þvingi Pútín til raunverulegra viðræðna Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, tók í gærkvöldi harða afstöðu varðandi mögulegar viðræður við Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Hann sagði að viðræður myndu ekki eiga sér stað nema Rússar létu af tilkalli til landsvæðis Úkraínu og hét hann því að Úkraínumenn myndu ekki hætta að berjast gegn innrás Rússa ef bakhjarlar ríkisins létu af stuðningi þeirra. Erlent 8.11.2022 16:14
Barn konunnar einnig látið Barn konunnar sem myrt var í bænum Holbæk í Danmörku á fimmtudaginn er nú einnig látið. Konan var komin sjö mánuði á leið þegar hún var myrt. Karl og kona sem hafa verið handtekin vegna morðsins neita bæði sök. Erlent 8.11.2022 15:01
Vilja taka eins á jarðefnaeldsneyti og kjarnavopnum Hópur eyríkja leggur til að ríkis heims semji um að takmarka útbreiðslu jarðefnaeldsneytis líkt og gert var með kjarnavopn. Áætlað er að þróunarríki þurfi um tvær biljónir dollara á ári til að fjármagna orkuskipti og aðlögun og til að bæta tjón af völdum loftslagshamfara. Erlent 8.11.2022 14:41
Lætur utanríkisráðherrann Jenis av Rana gossa Bárður á Steig Nielsen, lögmaður Færeyja, hefur ákveðið að nýta heimild í lögum til að reka Jenis av Rana úr embætti utanríkis- og menntamálaráðherra. Bárður segir að umburðarlyndi sitt í garð ráðherrans sé á þrotum. Erlent 8.11.2022 11:49
„Forsetakosningarnar byrja í raun og veru á morgun“ Repúblikanar ná líklega meirihluta í bæði fulltrúa- og öldungadeild Bandaríkjaþings í kosningunum sem haldnar eru í dag, samkvæmt síðustu könnunum. Mikil andstaða við störf Bidens er því í kortunum næstu árin, að sögn prófessors í stjórnmálafræði. Niðurstöðurnar gefi tóninn fyrir forsetakosningarnar eftir tvö ár - og sú kosningabarátta hefjist á morgun Erlent 8.11.2022 11:34
Tvö erfið ár í vændum fyrir Biden Repúblikanar eru líklegir til að ná tökum á báðum deildum Bandaríkjaþings eftir kosningarnar sem hefjast í dag, sé mið tekið af könnunum vestanhafs. Það myndi hafa mjög slæm áhrif á næstu tvö árs Joe Biden í Hvíta húsinu og mögulega gera út af við þær vonir sem Biden ber til annars kjörtímabils. Erlent 8.11.2022 11:02
Marta Lovísa hættir að koma fram í nafni konungsfjölskyldunnar Marta Lovísa Noregsprinsessa mun ekki koma fram opinberlega í nafni norsku konungsfjölskyldunnar framar. Erlent 8.11.2022 10:27
Trudeau sakar Kínverja um gróf kosningaafskipti Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, sakaði kínversk stjórnvöld um að reyna að hafa áhrif á kosningar í landinu. Ásakanir forsætisráðherrans koma í kjölfar uppljóstrana um að kommúnistastjórnin hafi stutt fjölda frambjóðenda á laun í kosningum árið 2019. Erlent 8.11.2022 09:48
Segir ofdrykkju ungra kvenna ástæðu lágrar fæðingartíðni Ummæli leiðtoga stjórnarflokksins Lög og réttlæti í Póllandi hafa vakið hörð viðbrögð en hann sagði um helgina að lága fæðingatíðni í landinu mætti rekja til ofdrykkju ungra kvenna. Erlent 8.11.2022 09:45
Deila um hver borgi brúsann fyrir loftslagstjón Kostnaðurinn við afleiðingar loftslagsbreytinga og hver á að bera hann er ofarlega á baugi á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Egyptalandi. Þróunarríki vilji aukið fé frá iðnríkjum til að hjálpa sér að aðlagast breyttum heimi og þá eru kröfur um að olíufyrirtæki sem græða á tá og fingri greiði fyrir tjón sem þau hafa valdið. Erlent 8.11.2022 09:08
Ólík sýn, ofbeldi á kjörstað og sjónvarpslæknir í framboði Þingkosningar fara fram í Bandaríkjunum í dag. Hindranir leynast víða í nálægð við kjörklefann og er möguleiki á því að endanlegar niðurstöður kosninganna liggi ekki fyrir fyrr en í janúar á næsta ári. Erlent 8.11.2022 08:01
Trump boðar „mjög stóra tilkynningu“ Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti fór um víðan völl í aðdraganda kosninganna í dag og kom fram á fjöldafundum til að styðja við sitt fólk. Erlent 8.11.2022 07:54
33 ára kona handtekin vegna morðsins í Holbæk Lögregla á Sjálandi í Danmörku hefur handtekið 33 ára konu vegna gruns um að tengjast morðinu á 37 ára barnshafandi konu í Holbæk á fimmtudagskvöldið. Erlent 8.11.2022 07:45
Kosningar hefjast í Bandaríkjunum Milljónir Bandaríkjamanna ganga að kjörborðinu í dag. Kosið er um alla fulltrúadeild þingins, um þriðjung af öldungardeildarsætum og þá eru ríkisstjórakosningar víða, svo nokkuð sé nefnt. Erlent 8.11.2022 06:56
Lögsóknir á báða bóga í aðdraganda þingkosninganna Baráttan um þingmeirihluta á bandaríska þinginu í aðdraganda þingkosninganna þar í landi fer ekki bara fara fram á kosningafundum og í kappræðum. Fulltrúar beggja flokka í Bandaríkjunum hafa að undanförnu tekist harkalega á í dómsölum víða um Bandaríkin í málum sem snerta það hvernig og hvaða atkvæði verða talin. Erlent 7.11.2022 22:48
Vilja að einn milljarður dollara í Bitcoin verði gerður upptækur Bandarísk yfirvöld hafa gert kröfu um að um einn milljarður dollara í rafmyntinni Bitcoin sem stolið var frá sölusíðunni Silk Road, sem hýsti markaðssvæði með ólögleg fíkniefni og aðra ólögmæta starfsemi, verði gerður upptækur Erlent 7.11.2022 21:45