Erlent
22 23 24 25 26 27 28 29 30 … 334 ›
Berjaforkólfar fyrir dóm vegna mansals Réttarhöld yfir forstjóra stærsta berjafyrirtækis Finnlands og taílenskum viðskiptafélaga hans vegna mansals á berjatínslufólki hófust í Lapplandi í dag. Slæmur aðbúnaður farandverkamanna í finnska berjaiðnaðinum hefur verið í brennidepli síðustu ár. Erlent 3.9.2024 10:22
Vill rétta Musk niðurskurðarhnífinn Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, er sagður hafa um nokkuð skeið rætt við ráðgjafa sína um að skipa auðjöfra og þekkta forstjóra í starfshóp sem finna á leiðir til niðurskurðar hjá alríkisstjórn Bandaríkjanna. Elon Musk, einn auðugasti maður heims, er meðal þeirra sem gæti setið í starfshópnum og hefur hann lýst því yfir að hann sé tilbúinn til starfa. Erlent 3.9.2024 09:35
Handtökuskipun á mótframbjóðanda Maduro gefin út Dómari í Venesúela gaf út handtökuskipun á hendur forsetaframbjóðanda stjórnarandstöðunnar í gær. Leiðtogum hennar hefur ítrekað verið hótað fangelsun eftir umdeildar forsetakosningar í sumar. Erlent 3.9.2024 08:49
Frans páfi á faraldsfæti Frans páfi mætti í morgun til Jakarta, höfuðborgar Indónesíu en hann mun næstu daga heimsækja fjölmörg ríki við á og við Kyrrahafið. Erlent 3.9.2024 07:57
Nýsjálendingar þrefalda ferðamannagjaldið Ríkisstjórn Nýja-Sjálands hefur ákveðið að þrefalda gjald sem ferðamenn þurfa að greiða við komu til landsins. Gjaldið fer úr 35 nýsjálenskum dölum í hundrað, sem jafngildir um þrjú þúsund íslenskum krónum í tæpar níu þúsund krónur. Erlent 3.9.2024 07:48
Mongólía hunsar handtökuskipun Alþjóðlega sakamáladómstólsins Stjórnvöld í Mongólíu hafa sætt harðri gagnrýni fyrir að bjóða Vladimir Pútín Rússlandsforseta velkominn til landsins með heiðursverði, í stað þess að handtaka hann. Erlent 3.9.2024 07:33
Bretar afturkalla sum leyfi fyrir vopnaútflutningi til Ísrael Stjórnvöld á Bretlandseyjum hafa ákveðið að afturkalla heimildir til vopnaútflutnings til Ísrael, vegna hættunnar á því að vopnin verði notuð við brot á alþjóðalögum. Erlent 3.9.2024 06:26
Bað ísraelsku þjóðina afsökunar Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels baðst afsökunar á að hafa ekki beitt sér nægilega fyrir lausn gísla í haldi Hamas á blaðamannafundi fyrr í kvöld. Erlent 3.9.2024 00:19
Lögðu hald á einkaþotu Venesúelaforseta Bandarísk yfirvöld lögðu hald á einkaþotu sem Nicolas Maduro forseti Venesúela hefur nýverið flogið með í Dóminíska lýðveldinu í dag. Flugvélinni var í framhaldinu flogið til Flórída en bandamenn Maduro eru grunaðir um að hafa fest kaup á henni með ólögmætum hætti. Erlent 2.9.2024 21:11
Eldflaugum frá Norður-Kóreu skotið að Úkraínu Rússar sendu í nótt fjölda dróna og eldflauga að skotmörkum í Úkraínu. Notast var við 35 stýri- og skotflaugar auk 26 Shahed-dróna, samkvæmt Úkraínumönnum, og segjast þeir hafa skotið niður níu skotflaugar, þrettán stýriflaugar og tuttugu dróna. Erlent 2.9.2024 16:09
Verkföllin úrskurðuð ólögleg Dómstóll í Ísrael hefur komist að þeirri niðurstöðu að verkföll þar í landi, sem farið hefur verið í samhliða mótmælum þar sem fjöldi fólks hefur kallað eftir því að gert verði vopnahlé við leiðtoga Hamas í skiptum fyrir þá gísla sem vígamenn samtakanna halda enn, séu ólögleg. Erlent 2.9.2024 13:00
Geimfarið snýr aftur til jarðar en geimfararnir verða eftir Starliner geimfari Boeing verður flogið aftur til jarðar á föstudaginn en geimfararnir sem fóru með því til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar (ISS) í júní verða eftir. Upprunalega átti geimferð þeirra Butch Wilmore og Suni Williams eingöngu að taka átta daga en vonast er til að þau geti snúið aftur til jarðar í febrúar. Erlent 2.9.2024 11:13
Játaði á sig hundruð brota gegn 60 barnungum stúlkum Barnaníðingur að nafni Ashley Paul Griffith hefur játað að hafa brotið gegn um það bil 60 stúlkum í Brisbane í Ástralíu og á Ítalíu á árunum 2007 til 2022. Hann hefur þegar verið dæmdur sekur en bíður þess að vera gerð refsing. Erlent 2.9.2024 08:55
Handtekin grunuð um innbrot á 22 lúxus heimili á Ibiza Lögregluyfirvöld á Spáni hafa handtekið þrjá, tvo menn og konu, sem eru grunuð um að hafa brotist inn í fjölda íbúða á Ibiza og notað gas til að slæva heimilisfólk. Erlent 2.9.2024 08:01
Hringirnir áfram á Eiffel og sitt sýnist hverjum Ágreiningur er kominn upp í Frakklandi eftir að Anne Hidalgo, borgarstjóri Parísar, sagðist hafa tekið þá ákvörðun að hafa Ólympíuhringina áfram á Eiffel-turninum. Erlent 2.9.2024 07:30
Ben Gurion lokað og ýmis starfsemi lömuð Boðað hefur verið til umfangsmikilla verkfallsaðgerða í Ísrael í dag til að knýja fram vopnahlé við Hamas. Aðgerðir Histadrut, stærsta verkalýðsfélags Ísrael, hófust snemma í morgun og munu hafa víðtæk áhrif. Erlent 2.9.2024 06:31
Hóta að breyta kjarnorkuvopnastefnu vegna stuðnings við Úkraínu Stjórnvöld í Kreml hóta því nú að breyta stefnu sinni um hvenær þau eru tilbúin að beita kjarnavopnum vegna stuðnings vestrænna ríkja við Úkraínu. Þau saka Vesturlönd um að „ganga of langt“ í stríði sem Rússland hóf. Erlent 1.9.2024 23:20
Fyrsti kosningasigur öfgahægriflokks frá seinna stríði Öfgahægriflokkurinn Valkostur fyrir Þýskaland (AfD) vann sínar fyrstu sambandslandskosningar í dag. Þrátt fyrir að ólíklegt sé að flokkurinn komist í stjórn er þetta fyrsti sigur hægriöfgaflokks í Þýskalandi eftir síðari heimsstyrjöldina. Erlent 1.9.2024 21:38
Fjöldamótmæli gegn Netanjahú vegna gíslanna Mótmælaalda hefur gengið yfir Ísrael eftir að sex gíslar í haldi Hamas fundust látnir. Reiðin beinist einkum að forsætisráðherra Ísraels og boðað hefur verið til allsherjarverkfalls á morgun. Erlent 1.9.2024 20:33
„Gríðarlega krefjandi“ verkefni við hræðilegar aðstæður Kapphlaup við tímann er nú hafið á Gasa, þar sem byrjað er að bólusetja við lömunarveiki. Barnalæknir segir verkefnið gríðarerfitt og að bólusetningarnar einar og sér dugi ekki. Sex gíslar Hamas-samtakanna fundust látnir í hernaðaraðgerð Ísraelsmanna í dag og eru sagðir hafa verið drepnir skömmu áður en herinn náði til þeirra. Erlent 1.9.2024 16:19
Sex gíslar fundust látnir Sex einstaklingar sem voru teknir í gíslingu Hamas 7. október fundust látnir á Gasaströndinni í gær. Ísraelski herinn sagðist hafa fundið líkin í hernaðaraðgerð í neðanjarðargöngum í Rafah. Erlent 1.9.2024 08:39
Slysið hörmulega muni ekki hafa áhrif á vopnasendingar Flugsérfræðingur segist fullviss um að harmræn örlög flugmanns F-16 herþotu, sem Úkraínumenn fengu nýverið afhenta, muni ekki hafa áhrif á frekari vopnasendingar vesturvelda til Úkraínu. Enn er á huldu hvað nákvæmlega olli slysinu, sem fengið hefur mjög á úkraínsku þjóðina. Erlent 31.8.2024 22:01
Hneig niður á miðjum tónleikum Bandaríski rapparinn Fatman Scoop er látinn, 53 ára að aldri. Scoop hneig niður á sviði á miðjum tónleikum sínum í Conneticut í Bandaríkjunum í gær. Hann var fluttur með sjúkrabíl á nærliggjandi sjúkrahús og síðar úrskurðaður látinn. Erlent 31.8.2024 17:33
Njósnamjaldurinn Hvaldimir allur Mjaldurinn geðþekki Semjon, betur þekktur sem Hvaldimir, er allur. Sá komst í heimsfréttirnar fyrir nokkrum árum fyrir að vera sérlega gæfur, en mögulega ekki allur þar sem hann var séður. Erlent 31.8.2024 15:09
Rekur yfirmann flughersins Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur rekið yfirmann úkraínska flughersins eftir að ein af herþotum flughersins fórst. Flugmaður F-16 herþotu, sem Úkraínuher fékk nýlega að gjöf, lést þegar vélin hrapaði. Erlent 31.8.2024 07:30
Trump ætlar að kjósa gegn rétti til þungunarrofs Donald Trump, forsetaframbjóðandi repúblikana, segist ætla að greiða atkvæði gegn breytingu á stjórnarskrá Flórída sem tryggði konum rétt til þungunarrofs. Nýleg lög þar leggja bann við þungunarrofi áður en margar konur vita að þær eigi von á sér. Erlent 30.8.2024 23:13
Lokar fyrir aðgang að X í Brasilíu Hæstiréttardómari í Brasilíu fyrirskipaði að aðgangi að samfélagsmiðlinum X skyldi lokað í landinu eftir að fyrirtækið hunsaði tilskipun hans um að tilnefna löglegan fulltrúa þar. Málið tengist því að X neitaði að verða við dómsúrskurðum um að loka skyldi á notendur sem dreifa fölskum upplýsingum á miðlinum. Erlent 30.8.2024 21:08
Hefðu getað komið í veg fyrir árásina með leyfi bandamanna Forseti Úkraínu segir að hægt hefði verið að koma í veg fyrir mannskæða sprengjuárás Rússa á Kharkív í dag ef vestrænir bandamenn leyfðu Úkraínumönnum að gera árásir á rússneska herflugvelli. Börn létust og særðust í árásinni. Erlent 30.8.2024 18:24
Stúlka á leikvelli lést í sprengjuárás Fjórtán ára gömul stelpa sem stödd var á leikvelli er meðal fimm látinna í Kharkiv borg í Úkraínu eftir sprengjuárásir Rússa. Fjörutíu til viðbótar hafa slasast vegna árásanna það sem af er degi. Erlent 30.8.2024 15:40
Útgáfufyrirtækin höfða mál gegn Flórída vegna bókalaga Penguin Random House, stærsta útgáfufyrirtæki Bandaríkjanna, og fleiri útgefendur hafa höfðað mál á hendur menntamálayfirvöldum í Flórída vegna laga sem banna kynferðislegt efni á skólabókasöfnum. Erlent 30.8.2024 11:09