Erlent
27 28 29 30 31 32 33 34 35 … 334 ›
Þúsundir gagn-mótmælenda kæfðu boðaðar óeirðir Þúsundir Breta söfnuðust saman í borgum víða um Bretland í gær og tóku höndum saman til að vernda miðstöðvar fyrir flóttamenn og aðra staði þar sem óttast var að óeirðarseggir myndu koma saman. Erlent 8.8.2024 06:40
Tónleikum Taylor Swift frestað: „Best að þessu sé slaufað þó að það sé rosalega sárt“ Þrennum tónleikum poppstjörnunnar Taylor Swift í Vín í Austurríki hefur verið frestað vegna mögulegrar öryggis- og hryðjuverkaógnar. Fyrstu tónleikarnir áttu að fara fram á morgun, aðrir á föstudag og þriðju á laugardag. Erlent 7.8.2024 21:33
Stjúpsonur norska prinsins handtekinn um helgina Marius Borg Høiby stjúpsonur Hákonar krónprins af Noregi var handtekinn um helgina vegna líkamsárásar og skemmdarverka sem áttu sér stað síðastliðinn laugardag. Samkvæmt upplýsingum norskra fjölmiðla þekkir Høiby þann sem varð fyrir árásinni. Erlent 7.8.2024 11:37
Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi og brottvísað fyrir árásina á Mette Pólskur maður á fertugsaldri hefur verið dæmdur í héraðsdómi Kaupmannahafnar til fjögurra mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa veist að Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, í júní síðastliðinn Erlent 7.8.2024 10:24
Mikill viðbúnaður vegna mögulegra óeirða í dag Þúsundir lögreglumanna eru í viðbragðsstöðu vegna hættu á frekari óeirðum á Englandi í dag. Boðað hefur verið til að minnsta kosti þrjátíu mótmæla víðsvegar um landið en þau hafa ítrekað leyst upp í uppþot og ofbeldi í kjölfar hnífaárásar í Southport í síðustu viku. Erlent 7.8.2024 09:57
Höfuðpaurinn á bakvið árásirnar á Ísrael nýr pólitískur leiðtogi Hamas Hamas samtökin í Palestínu hafa útnefnt Yahya Sinwar sem nýjan pólitískan leiðtoga sinn eftir að Ismail Haniyeh var ráðinn af dögum í Tehran í síðustu viku. Erlent 7.8.2024 07:02
Walz hjólaði í Trump og Vance á fyrsta kosningafundinum í gær Kamala Harris og Tim Walz, forseta- og varaforsetaefni Demókrataflokksins, stigu saman á svið í Pennsylvaníu í gær við mikinn fögnuð viðstaddra. Erlent 7.8.2024 06:44
Walz sniðugur veiðimaður sem höfði til karla á miðjum aldri Það á eftir að koma í ljós hvort Tim Walz, ríkisstjóri Minnesotaríkis og varaforsetaefni Kamölu Harris forsetaframbjóðanda Demókrata í Bandaríkjunum sé betra val en Josh Shapiro, ríkisstjóri Pennsylvaníuríkis, en þeir tveir höfðu komið helst til greina. Erlent 6.8.2024 23:42
Harris velur ríkisstjóra Minnesota sem varaforsetaefni Tim Walz, ríkisstjóri Minnesota, verður varaforsetaefni Kamölu Harris, forsetaframbjóðanda Demókrataflokksins, fyrir bandarísku forsetakosningarnar í haust. Erlent 6.8.2024 13:05
Slítur þingi eftir að forsætisráðherrann flúði Forseti Bangladess sleit þingi í dag eftir að Sheikh Hasina, forsætisráðherra, flúði land í skugga harðra mótmæla gegn stjórn hennar. Jafnframt tilkynnti forsetinn að erkiandstæðingur Hasina hefði verið frelsaður úr stofufangelsi. Erlent 6.8.2024 11:26
Hefur sakamálarannsókn á stjórnarandstöðunni Ríkissaksóknari Venesúela hóf sakamálarannsókn á leiðtoga og forsetaframbjóðanda stjórnarandstöðunnar fyrir að vefengja opinber úrslit forsetakosninganna og að hvetja lögreglu og her til lögbrota. Yfirvöld hafa enn ekki birt öll kjörgögn sem kallað hefur verið eftir. Erlent 6.8.2024 10:29
Harris orðin frambjóðandi demókrata og kynnir varaforsetaefni sitt Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, tryggði sér formlega útnefningu Demókrataflokksins sem forsetaefni hans í gær. Hún hyggst kynna varaforsetaefni sitt á kosningafundi í Pennsylvaníu í dag. Erlent 6.8.2024 07:49
Viðbúnaður aukinn vegna mögulegra átaka milli Íran og Ísrael Joe Biden Bandaríkjaforseti fundaði með þjóðaröryggisráði landsins í gær vegna mögulegra hefndaraðgerða Íran gegn Ísrael. Viðbúnaður Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndum hefur verið aukinn. Erlent 6.8.2024 07:23
Níu starfsmenn UNRWA reknir vegna aðildar að árásunum 7. október Níu starfsmenn Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) kunna að hafa tekið þátt eða átt aðild að árásum Hamas á byggðir í Ísrael 7. október síðastliðinn. Erlent 6.8.2024 06:51
Kennedy yngri losaði sig við bjarnarhúnshræ í Central Park Bandaríski forsetaframbjóðandinn Robert F. Kennedy yngri viðurkennir í myndbandi á X að hafa losað sig við bjarnarhúnshræ í almenningsgarðinum Central Park í New York fyrir tíu árum síðan. Atvikið vakti mikla athygli og furðu á sínum tíma. Erlent 5.8.2024 19:22
Ræddu falsfréttir og samfélagsmiðla á neyðarfundi Á annað hundrað hafa verið handteknir og fjöldi lögreglumanna slasast, í mótmælum hægri öfgamanna sem beinast gegn komu hælisleitenda til Bretlands. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, hélt neyðarfund í morgun með svokallaðri Cobra-nefnd, vegna óeirðanna, en boðað er til Cobra-fundar þegar neyðarástand af einhverju tagi ríkir í Bretlandi. Upplýsingaóreiða á samfélagsmiðlum er meðal þess sem verður rætt á fundinum. Erlent 5.8.2024 12:27
Segir af sér og flýr land Sheikh Hasina, forsætisráðherra Bangladess, hefur sagt af sér embætti og yfirgefið landið. Yfirmaður hermála þar í landi staðfestir að hann muni taka við stjórn landsins og mynda bráðabirgðaríkisstjórn. Blóðug mótmæli hafa geysað síðan snemma í síðasta mánuði og hafa fleiri en 280 manns látið lífið. Erlent 5.8.2024 11:46
Minnst níutíu mótmælendur drepnir í Bangladess Minnst níutíu mótmælendur voru drepnir í Bangladess í gær, í blóðugum mótmælum sem ekki sér fyrir endann á. Meira en 280 manns hafa nú látið lífið síðan mótmælin brutust út í júlí. Erlent 5.8.2024 09:19
Starmer heldur neyðarfund vegna óeirðanna Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, hefur boðað til neyðarfundar með Cobra nefndinni í dag vegna óeirðanna sem hafa verið í Bretlandi síðustu daga. Á annað hundrað hafa verið handteknir vegna og fjöldi lögreglumanna slasast í mótmælunum, sem beinast gegn hælisleitendum. Erlent 5.8.2024 08:46
Báru eld að miðstöð fyrir hælisleitendur Enn er allt á suðupunkti víða um Bretland vegna óeirða og mikilla mótmæla, leidd af hægri öfgamönnum. Mótmælin beinast að komu hælisleitenda til Bretlands. Í dag báru mótmælendur í Rotherham eld að hóteli sem hýsir hælisleitendur. Erlent 4.8.2024 23:01
Tók á móti fyrstu F-16 þotunum Úkraínumenn hafa tekið á móti fyrstu F-16 herþotunum. Þetta staðfesti Volódómír Selenskí Úkraínuforseti á blaðamannafundi þar sem tvær slíkar þotur voru í bakgrunni. Erlent 4.8.2024 21:52
Tók þátt í mótmælum þrátt fyrir hótun Maduro um handtöku Leiðtogi venesúelsku stjórnarandstöðunnar tók þátt í fjöldamótmælum vegna umdeildra forsetakosninga í höfuðborginni Caracas þrátt fyrir að Nicolás Maduro forseti hafi hótað að láta handtaka hann. Opinberar tölur um úrslit kosninganna liggja enn ekki fyrir að fullu. Erlent 4.8.2024 13:58
Tugir hægriöfgamanna handteknir í óeirðum í Bretlandi Fleiri en níutíu hægriöfgamenn voru handteknir í óeirðum sem brutust út á mótmælafundum hægriöfgamanna víðs vegar um Bretland í gær. Sem fyrr grýttu óeirðarseggirnir lögreglumenn og unnu eignaspjöll. Erlent 4.8.2024 09:52
Hvetja vestræna borgara til að koma sér frá Líbanon Bandarísk og fleiri vestræn stjórnvöld hafa gefið út viðvaranir til ríkisborgara sinna um að koma sér hið snarasta frá Líbanon af ótta við að stríðsátök fyrir botni Miðjarðarhafs dreifist út. Spenna á milli Ísraels annars vegar og Íran og Líbanon hins vegar stigmagnast. Erlent 4.8.2024 07:45
Trump bakkar frá samkomulagi um kappræður Donald Trump segir það ekki koma til greina að mæta Kamölu Harris í kappræðum á sjónvarpsstöðinni ABC. Hann krefst þess að kappræðurnar fari fram á Fox News, þeim sjónvarpsmiðli sem er vinsælastur meðal stuðningsmanna hans. Erlent 3.8.2024 23:15
Ósáttir við að vera vísað frá Rússlandi gegn vilja sínum Rússneskir andófsmenn sem voru látnir lausir úr fangelsum í heimalandinu í fangaskiptum á fimmtudag segjast ósáttir við að hafa verið vísað ólöglega úr landi. Einn þeirra segir erfitt að sætta sig við að vera frjáls vegna þess að morðingi var látinn laus. Erlent 3.8.2024 13:38
Hætt við samkomulag við höfuðpaur hryðjuverkanna 11. september Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur dregið til baka samkomulag sem gert var við Khalid Sheikh Mohammed sem sakaður eru um að hafa lagt á ráðin um hryðjuverkaárásirnar á Tvíburaturnana þann 11. september 2001. Áður hafði verið greint frá því að samkomulag væri í höfn við mennina um að játa aðkomu sína að árásunum gegn því að verða ekki dæmdir til dauða. Erlent 3.8.2024 09:38
„Skrýtinn“ höggstaður á Trump sem snýr sér að kynþætti Harris Brotthvarf Joes Biden úr forsetaframboði hefur neytt bæði demókrata og repúblikana til þess að endurhugsa kosningabaráttu sína. Demókratar reyna að útmála repúblikana sem „skrýtna“ en Donald Trump kýs að beina spjótum sínum að kynþætti Kamölu Harris. Erlent 3.8.2024 09:01
Enn einar óeirðirnar í Bretlandi í kjölfar hnífaárásarinnar Þrír lögreglumenn slösuðust og kveikt var í byggingum þegar hundruð manna stóðu fyrir óeirðum í borginni Sunderland á norðaustur Englandi í gærkvöldi. Óeirðir hafa brotist út í nokkrum borgum eftir að hnífamaður stakk þrjár ungar stúlkur til bana í Southport í vikunni. Erlent 3.8.2024 08:26
Handtekin nokkrum dögum eftir að hún sagði af sér Misty Roberts, sem sagði af sér sem Borgarstjóri DeRidder í Louisiana-ríki Bandaríkjanna á dögunum, hefur verið handtekin grunuð um að nauðga einstaklingi undir lögaldri. Erlent 2.8.2024 16:57