Erlent
323 324 325 326 327 328 329 330 331 … 334 ›
Sagði ráðsmanni að horfa ekki í augu Epsteins Ghislaine Maxwell, aðstoðarkona barnaníðingsins og auðjöfursins heitna, Jeffreys Epstein, sagði ráðsmanni hans að hún væri „lafði hússins“ og sagði honum að horfa ekki í augun á Epstein. Þetta kom fram í vitnisburði Juan Alessi, ráðsmanni Epstein í Flórída, fyrir dómi í dag. Erlent 2.12.2021 21:23
Fimmtán vikna viðmiðið fær líklega að standa en spurning um Roe gegn Wade Allt útlit er fyrir að Hæstiréttur Bandaríkjanna dæmi yfirvöldum í Mississippi í vil og láti löggjöf sem bannar þungunarrof eftir 15. viku meðgöngu standa óhreyfða. Því er þó ósvarað hvort dómstóllinn gengur svo langt að láta það í hendur einstakra ríkja að ákvarða alfarið hvernig lögum um þungunarrof er háttað. Erlent 2.12.2021 20:03
Meina óbólusettum aðgang að börum, kvikmyndahúsum og öðru Ríkisstjórn Þýskalands hefur sett fjölmargar og stórar þúfur í veg óbólusettra Þjóðverja. Angela Merkel, fráfarandi kanslari, og Olaf Scholz, verðandi kanslari, ræddu við ríkisstjóra Þýskalands í dag og samþykktu þau harðar aðgerðir gegn mikilli útbreiðslu Covid-19 í Þýskalandi um þessar mundir. Erlent 2.12.2021 18:07
Pfizer segir að fólk þurfi líklega árlega bólusetningu Dr. Albert Bourla, forstjóri lyfjafyrirtækisins Pfizer, segir líklegt að fólk komi til með að þurfa árlega bólusetningu gegn Covid-19 á næstu árum til að viðhalda góðri vörn gegn kórónuveirunni. Erlent 2.12.2021 10:39
Segir skilið við stjórnmálin Sebastian Kurz, fyrrverandi kanslari Austurríkis, hefur ákveðið að segja skilið við stjórnmálin. Hinn 35 ára Kurz sagði af sér sem kanslari í október í kjölfar ásakana um spillingu. Erlent 2.12.2021 09:43
Fjórir slösuðust þegar gömul sprengja sprakk í München Fjórir slösuðust í gær þegar 250 kílógramma sprengja frá tímum seinni heimsstyrjaldarinnar sprakk á byggingarsvæði nærri járnbrautarlínu í München í Þýskalandi. Minnst einn er alvarlega slasaður að sögn yfirvalda en atvikið olli samgöngutruflunum. Erlent 2.12.2021 08:45
Meðalfjöldi greindra á dag 300 í þarsíðustu viku en í gær greindist 8.561 Covid-19 tilfellum í Suður-Afríku hefur fjölgað verulega síðustu tvær vikur og en fjöldinn fór úr 300 að meðaltali á dag í þarsíðustu viku, í 1.000 í síðustu viku og stendur nú í um 3.500. Erlent 2.12.2021 08:34
Abrams gerir aðra tilraun til að verða næsti ríkisstjóri Georgíu Demókratinn Stacey Abrams hyggst gera aðra tilraun til að verða næsti ríkisstjóri Georgíuríkis í Bandaríkjunum. Í kosningum 2018 beið hún lægri hlut gegn Repúblikananum Brian Kemp, sem vann með 55 þúsund atkvæða mun. Erlent 2.12.2021 08:12
„Ég tók ekki í gikkinn,“ segir niðurbrotinn Baldwin „Ég myndi aldrei beina byssu að einhverjum og taka í gikkinn. Aldrei,“ segir Alec Baldwin í samtali við George Stephanopoulus. Um er að ræða fyrsta viðtalið sem leikarinn veitir um atvik á tökustað myndarinnar Rust, þar sem tökustjórinn Halyna Hutchins lést eftir að hafa orðið fyrir skoti úr byssu sem Baldwin hélt á. Erlent 2.12.2021 08:01
Fimmtán ára byssumaður ákærður fyrir hryðjuverk Fimmtán ára drengur sem skaut fjóra samnemendur sína til bana og særði sjö í skóla nærri Detroit í Bandaríkjunum í gær hefur verið ákærður fyrir hryðjuverk, morð, morðtilraunir, vopnalagabrot og fleira. Réttað verður yfir honum sem fullorðnum manni. Erlent 1.12.2021 23:42
Vilja rússneska hermenn frá landamærum Úkraínu Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvatti ráðamenn í Rússlandi til að flytja hermenn sína á brott frá landamærum Úkraínu. Hann sagði að innrás í Úkraínu myndi hafa afleiðingar og meðal annars yrðu hinum ströngustu refsiaðgerðum beitt gegn Rússlandi. Erlent 1.12.2021 21:46
Eþíópar á Íslandi hvetja stjórnvöld til stuðnings við stjórn lands síns Hópur fólks frá Eþíópíu sem býr á Íslandi kom saman á Austurvelli í dag til að mótmæla afskiptum vestrænna þjóða af innanríkismálum í Eþíópíu og stuðningi við TPLF hreyfinguna sem fer með völd í Tigray héraði í landinu. Erlent 1.12.2021 19:41
Verður fyrsta konan til að gegna embætti forseta í Hondúras Xiomara Castro mun taka við embætti forseta Mið-Ameríkuríkisins Hondúras. Stjórnarflokkurinn í landinu hefur þegar lýst yfir ósigri í forsetakosningunum sem fram fóru á sunnudaginn. Erlent 1.12.2021 09:02
CNN lætur Chris Cuomo fjúka vegna aðstoðar hans við bróður sinn Stjórnendur CNN hafa sagt upp sjónvarpsmanninum Chris Cuomo eftir að í ljós kom að hann aðstoðaði bróður sinn, ríkisstjórann Andrew Cuomo, þegar síðarnefndi var sakaður um kynferðisbrot. Erlent 1.12.2021 09:01
Höfundur The Lovely Bones biður manninn sem var dæmdur fyrir að nauðga henni afsökunar Bandaríski rithöfundurinn Alice Sebold hefur beðist afsökunar fyrir að hafa átt þátt í því að maður var ranglega dæmdur fyrir að hafa nauðgað henni árið 1981. Anthony Broadwater var handtekinn og fundinn sekur og varði 16 árum í fangelsi. Erlent 1.12.2021 08:25
Elstu tilvik Omíkron í sýnum í Hollandi Omíkron-afbrigði kórónuveirunnar dreifist nú hratt um heimsbyggðina en í morgun var tilkynnt um að fyrstu tilfellin hefðu verið staðfest í Brasilíu og Japan. Erlent 1.12.2021 07:44
Segir Maxwell hafa tekið þátt í kynferðislegum athöfnum Kona sem sakar Jeffrey Epstein um að misnotað sig kynferðislega þegar hún var unglingur bar vitni um að Ghislaine Maxwell hefði tekið þátt í sumum kynferðislegum athöfnum þeirra fyrir dómi í New York í dag. Erlent 30.11.2021 23:55
Skaut þrjá samnemendur sína til bana og særði átta Fimmtán ára nemandi í framhaldsskóla í úthverfi Detroit í Bandaríkjunum skaut þrjá til bana og særði átta í skólanum í dag. Drengurinn var handtekinn af lögreglu og var hald lagt á hálfsjálfvirka skammbyssu sem hann notaði við árásina. Erlent 30.11.2021 23:43
Reikna með óvenjuhlýjum vetri á norðurskautinu vegna áhrifa La niña Reiknilíkön benda til þess að óvenjuhlýr vetur verði nyrst og norðaustast á norðurskautinu og í Asíu vegna La niña-veðurfyrirbrigðisins í Kyrrahafi. Þó að La niña tengist yfirleitt tímabundinni lækkun meðalhita jarðar er reiknað með að hiti verði víða yfir meðaltali vegna hnattrænnar hlýnunar af völdum manna. Erlent 30.11.2021 23:20
Eiginkona „þess stutta“ dæmd í þriggja ára fangelsi Emma Coronel Aispuro, eiginkona mexíkóska fíkniefnajöfursins Joaquín „þess stutta“ Guzmán var dæmd í þriggja ára fangelsi í Bandaríkjunum í dag. Hún játaði sig seka um að hafa aðstoðað Sinaloa-fíkniefnahringinn alræmda. Erlent 30.11.2021 20:23
Fyrsta trans manneskjan til að gegna ráðherraembætti í Svíþjóð Magdalena Andersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, kynnti ríkisstjórn sína í morgun, daginn eftir að sænska þingið samþykkti hana sem forsætisráðherra landsins. Erlent 30.11.2021 13:13
Hafa aldrei fundið eins náið par risasvarthola svo nálægt jörðu Par risasvarthola sem hópur stjörnufræðinga fann nýlega er það þéttasta og nálægasta jörðinni sem fundist hefur til þessa. Stjörnufræðingar telja að svarholin tvö muni sameinast í náinni framtíð á stjarnfræðilegan mælikvarða. Erlent 30.11.2021 13:00
Bein útsending: Málþing um ofbeldi og morð á konum í Mexíkó Íslandsdeild Amnesty International stendur að málþingi um stöðu kvenna í Mexíkó í dag milli klukkan 12 og 13. Erlent 30.11.2021 11:30
Óskaarftaki Duterte hættir við forsetaframboð Christopher „Bong“ Go, öldungadeildarþingmaðurinn sem Rodrigo Duterte forseti Filippseyja vildi að tæki við af sér hefur ákveðið að bjóða sig ekki fram til forseta. Nú er því enginn í framboði sem núverandi ríkisstjórn styður. Erlent 30.11.2021 09:43
Myndband virðist sýna herþotu hrapa í sjóinn örskömmu eftir flugtak Myndband sem virðist sýna eina af F-35 herþotu breska hersins hrapa í sjóinn eftir flugtak af flugmóðurskipinu HMS Queen Elizabeth hefur verið birt á samfélagsmiðlum. Erlent 30.11.2021 09:10
„Donald Trump Frakklands“ býður sig fram til forseta Franski sjónvarpsmaðurinn Eric Zemmour, sem þekktur er fyrir hægri öfgaskoðanir sínar, hyggst bjóða sig fram til forseta í Frakklandi í kosningunum á næsta ári. Erlent 30.11.2021 08:02
Barbados slítur tengsl við bresku krúnuna og verður lýðveldi Eyríkið Barbados er orðið lýðveldi. Á miðnætti á staðartíma, eða klukkan fjögur í nótt að íslenskum tíma sleit Barbados öll tengsl við Elísabetu Englandsdrottningu og er hún því ekki lengur þjóðhöfðingi landsins. Erlent 30.11.2021 07:28
Segir ekki tilefni til að grípa til harðra aðgerða í bili Joe Biden Bandaríkjaforseti segir nýtt afbrigði kórónuveirunnar, Omíkron, tilefni til varúðar en ekki hræðslu. Þá segir hann ekki nauðsynlegt að grípa til harðra aðgerða á borð við útgöngubanns, að því gefnu að fólk sinni því að bera grímu og láta bólusetja sig. Erlent 30.11.2021 06:56
Sagði Maxwell gerða að blóraböggli fyrir slæma hegðun Epstein Verjandi Ghislaine Maxwell sagði að hún væri gerð að blóraböggli fyrir slæma hegðun karlmanns líkt og fjölmargar aðrar konur í mannkynssögunni. Saksóknari sagði Maxwell meðseka í kynferðisofbeldi Jeffreys Epstein gegn ungum stúlkum. Erlent 29.11.2021 23:30
Biðja hæstarétt að snúa ógildingu dóms yfir Bill Cosby við Saksóknarar í máli Bills Cosby hafa beðið Hæstarétt Bandaríkjanna að snúa ákvörðun Hæstaréttar Pennsylvaníu, um að ógilda fangelsisdóm yfir honum, við. Erlent 29.11.2021 23:28