Erlent
331 332 333 334 ›
Telja ríki heims vanmeta losun um milljarða tonna Vafasamar bókhaldsreglur, ófullkomin skil einstakra landa og vísvitandi misskráning er sögð ástæða þess að ríki heims vanmeta losun sína á gróðurhúsalofttegundum um milljarða tonna á hverju ári. Samkvæmt varfærnu mati gæti umframlosunin verið meiri en árslosun Bandaríkjanna. Erlent 8.11.2021 14:12
Pólverjar saka Hvítrússa um að smala fólki að landamærunum Pólverjar sökuðu í morgun stjórnvöld Hvíta-Rússlands um að undirbúa umfangsmikla ögrun með því að smala stórum hópi flótta- og farandfólks að landamærum Póllands. Fjöldi hermanna hafa verið sendir að landamærunum. Erlent 8.11.2021 13:06
Byggðu eftirlíkingar af bandarískum herskipum til að skjóta eldflaugum á Kínverjar hafa byggt eftirlíkingar af bandarískum herskipum og skotmörk í eyðimörk þar sem tilraunir eru gerðar með eldflaugar. Erlent 8.11.2021 13:01
Ekki fleiri inniliggjandi vegna Covid-19 í Noregi síðan í apríl Tæplega tvö hundruð manns eru nú inniliggjandi á sjúkrahúsum í Noregi vegna Covid-19 og hefur fjöldinn ekki verið hærri síðan í apríl. Erlent 8.11.2021 12:40
Stefnir í yfirburðasigur Ortega í „látbragðskosningum“ Fyrstu tölur í forsetakosningunum í Níkaragva benda til stórsigurs Daniels Ortega forseta. Hann lét handtaka flesta mótframbjóðendur sínar fyrir kosningarnar og hefur Bandaríkjastjórn lýst kosningunum sem látbragðsleik. Erlent 8.11.2021 10:24
Talsmenn kola- gas- og olíuiðnaðarins fjölmennir á COP26 Talsmenn kola- gas- og olíuiðnaðarins í heiminum eru fjölmennir á COP26 ráðstefnunni í Glasgow þar sem loftslagsmálin eru rædd. Raunar eru þeir svo fjölmennir að ekkert einstakt ríki sendir fleiri fulltrúa á ráðstefnuna. Erlent 8.11.2021 07:25
Slaka á ferðabanni til Bandaríkjanna Frá og með miðnætti aðfaranótt mánudags, að staðartíma í Bandaríkjunum, verður ferðabanni til landsins aflétt. Það hefur verið í gildi síðustu 20 mánuði vegna faraldurs kórónuveirunnar. Með afléttingu verður fullbólusettum ferðalöngum heimilt að fara til Bandaríkjanna. Erlent 7.11.2021 23:28
Rómantískir Rússar minnast byltingarinnar á Rauða torginu Rússneskir kommúnistar fylktu liði á Rauða torginu í Moskvu í dag til að minnast þess að 104 ár eru liðin frá októberbyltignunni svo kölluðu árið 1917. Erlent 7.11.2021 21:23
Löfven stígur úr stóli í byrjun viku Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar mun láta af embætti í byrjun vikunnar. Þetta tilkynnti upplýsingafulltrúi hans í dag. Erlent 7.11.2021 16:47
Fannst nakinn inni í vegg á karlaklósetti Slökkviðið í Syracuse í New York-ríki í Bandaríkjunum lenti í einkennilegu útkalli á föstudag þar sem þeir þurftu að bjarga nöktum manni út úr vegg í leikhúsi þar í borg. Erlent 7.11.2021 15:16
Kosið í Níkaragva í skugga ofsókna og gerræðis Kosningar fara fram í Níkaragva í dag þar sem ekkert bendir til annars en að forsetinn Daniel Ortega verði hlutskarpastur og muni sitja í forsetastóli fjórða kjörtímabilið í röð. Erlent 7.11.2021 11:22
Argentína fyrst ríkja Suður-Ameríku til að setja lög um kynhlutlaus skilríki Þúsundir tóku þátt í Gleðigöngu í Buenos Aires höfuðborg Argentínu í gær en að þessu sinni fór gangan fram aðeins nokkrum vikum eftir að lög um kynhlutlaus skilríki tóku gildi í landinu. Erlent 7.11.2021 10:03
Tugir þúsunda syrgja vinsælustu söngkonu Brasilíu Tugir þúsunda aðdáenda brasilísku söngkonunnar Marília Mendonça komu saman í heimaborg hennar Goiania í morgun til að minnast hennar en hún fórst í flugslysi á föstudag aðeins 26 ára gömul. Erlent 7.11.2021 09:45
Lögregla rannsakar dauða átta sem tróðust undir á tónleikum Lögreglan í Houston í Texas hefur hafið rannsókn á dauða átta sem tróðust undir á tónleikum á tónleikahátíðinni Astroworld á föstudag. Hinir látnu voru á aldrinum fjórtán til 27 ára. Erlent 7.11.2021 09:00
Banatilræði við forsætisráðherra Írak misheppnaðist Mustafa al-Kadhimi forsætisráðherra Íraks lifði af banatilræði sem gert var gegn honum á heimili hans í morgun. Sjö öryggisverðir slösuðust í árásinni en notast var við tvo vopnaða dróna í henni. Erlent 7.11.2021 08:01
„Hjarta hennar sló líka!“ „Hjarta hennar sló líka!“ hrópuðu þúsundir mótmælenda í Póllandi í dag, í mótmælum sem efnt var til eftir að ólétt kona lést á sjúkrahúsi. Fjölskylda hennar segir heilbrigðisstarfsmenn hafa neitað henni um lífsnauðsynlega umönnun af ótta við að vera sótt til saka vegna strangar þungunarrofslöggjafar landsins. Erlent 6.11.2021 23:34
70 dæmdir í gríðarlega umfangsmiklum réttarhöldum gegn Ndrangheta Sjötíu meðlimir Ndrangheta, valdamestu og auðugustu glæpasamtaka Ítalíu, voru fundir sekir í umfangsmestu réttarhöldum sem um getur í sögu landsins. 355 bíða enn niðurstöðu í málum sínum en þeir sem voru dæmdir í dag höfðu samþykkt hraðari málsmeðferð gegn því að fá þriðjung mögulegs dóms niðurfelldan. Erlent 6.11.2021 21:52
Kröfðust aðgerða en hafa litla trú á að staðið verði við stóru orðin Fjöldi fólks kom saman í Glasgow, Lundúnum og víða annars staðar á þessum laugardegi, sem helgaður hefur verið kröfugöngum um aðgerðir í loftslagsmálum í tilefni loftlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem nú er hálfnuð í Glasgow. Erlent 6.11.2021 20:11
Koma bleyjuklæddir heim vegna salernisbilunar Geimfarar sem nú dvelja um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni en hyggja á heimferð á morgun neyðast til að vera með bleyju á leiðinni heim, þar sem salernið um borð í SpaceX farinu sem mun flytja þá til jarðar er bilað. Erlent 6.11.2021 19:07
Þrír alvarlega særðir eftir stunguárás um borð í hraðlest Þrír eru alvarlega særðir eftir hnífaárás sem átti sér stað um borð í hraðlest í Þýskalandi. Lögregla hefur handtekið meintan árásarmann, 27 ára sýrlenskan mann. Ekki liggur fyrir hvað honum gekk til. Erlent 6.11.2021 18:11
Ung baráttukona skotin til bana í Afganistan Ung kona sem barist hefur ötullega fyrir réttindum kvenna í Afganistan fannst skotin til bana í borginni Mazar-i-Sharif í fyrradag. Erlent 6.11.2021 16:54
Þúsundir mótmæla aðgerðaleysi á COP26 Þúsundir mótmælenda gengu fylktu liði um götur Glasgow í dag til að krefjast sterkari aðgerða í loftslagsmálum, en Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna, COP26, fer fram þar í borg þessa dagana. Erlent 6.11.2021 15:20
99 fórust þegar eldsneytisflutningabíll sprakk Minnst 99 fórust og meira en 100 særðust þegar eldsneytisflutningabíll sprakk í kjölfar áreksturs í höfuðborg Síerra Leóne í gærkvöldi. Erlent 6.11.2021 14:41
Fulltrúadeildin samþykkti innviðafrumvarp Bidens Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í nótt frumvarp um meiriháttar innviðauppbyggingu og samgönguumbætur. Verður um 1.000 milljörðum varið í það verkefni á komandi áratug. Er þetta talinn áfangasigur fyrir Joe Biden forseta, en þetta er annað af tveimur lykilmálum forsetans, sem hefur lent í vandræðum með að sannfæra félaga sína í Demókrataflokknum. Erlent 6.11.2021 08:52
Átta dóu þegar þeir urðu undir í troðningi á tónlistarhátíð Travis Scott Minnst átta eru látnir og hundruðir eru slasaðir eftir opnunarkvöld Astroworld-tónlistarhátíðar rapparans Travis Scott í Houston í Bandaríkjunum, sem fór fram í gærkvöldi. Erlent 6.11.2021 07:30
Greta Thunberg segir loftslagsráðstefnuna mislukkaða Loftslagsbaráttukonan unga Greta Thunberg sagði í ávarpi til þátttakenda í kröfugöngu í Glasgow að yfirstandandi loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna, COP26, hefði mislukkast. Erlent 6.11.2021 00:31
„Njósnari“ fannst dáinn við sendiráð Rússlands í Berlín Rússneskur erindreki fannst látinn fyrir utan sendiráð Rússlands í síðasta mánuði. Maðurinn er sagður hafa fallið út um glugga í sendiráðinu áður en hann fannst að morgni 19. október. Erlent 5.11.2021 18:01
Andstæðingar ríkisstjórnar Eþíópíu fylkja liði Her Eþíópíu hefur kallað hermenn sem sest hafa í helgan stein aftur til starfa. Það var gert eftir að hópur fylkinga landsins sem eru andvíg ríkisstjórn Abiy Ahmed, forsætisráðherra, fylktu liði og vilja koma honum frá völdum. Erlent 5.11.2021 16:50
Hægriöfgamaður grunaður um að skipuleggja voðaverk í Svíþjóð Sænska lögreglan handtók í gær karlmann á þrítugsaldri sem er grunaður að hafa ætlað að valda eyðileggingu sem ógnaði almenningi. Maðurinn er talinn hafa tengsl við Norrænu mótstöðuhreyfinguna, hreyfingu norrænna nýnasista sem teygir anga sína meðal annars til Íslands. Erlent 5.11.2021 14:49
Nær öruggt að Ortega ríghaldi í völdin eftir forsetakosningar Daniel Ortega, forseti Níkaragva, mætir lítilli raunverulegri mótspyrnu í forsetakosningum sem fara fram í landinu um helgina en hann hefur gengið á milli bols og höfuðs á stjórnarandstöðunni og frjálsum fjölmiðlum undanfarin misseri. Búist er við að hann herði enn tökin eftir kosningarnar. Erlent 5.11.2021 13:09