Erlent
78 79 80 81 82 83 84 85 86 … 334 ›
Meint framhjáhald gæti tafið málaferli gegn Trump um ár Fani Willis, héraðssaksóknari í Fulton-sýslu i Georgíu í Bandaríkjunum, hefur verið sökuð um að halda við saksóknarann sem hún réð til að halda utan um málaferli ríkisins gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta. Ásakanirnar gætu leitt til margra ára tafa á málaferlunum gegn Trump og öðrum sem voru ákærðir með honum. Erlent 23.1.2024 13:48
Fjórir fundust látnir í húsi í Noregi Lögregla í Noregi hefur hafið rannsókn vegna gruns um manndráp eftir að fjórir einstaklingar fundust látnir í húsi í Nes í Akershus, norðaustur af Osló. Erlent 23.1.2024 12:59
Börn geti ekki leikið sér nógu mikið úti Börn og ungmenni í Bretlandi verða fyrir mikilli heilsufarsskerðingu þar sem þeim stendur ekki til boða að leika sér úti í sama mæli og áður í landinu. Hagsmunasamtök segja bresk stjórnvöld ekki horfa til mikilvægi þessa þegar kemur að skipulagsmálum. Erlent 23.1.2024 10:47
Felldu tuttugu og einn hermann í umsátri Ráðamenn í Ísrael segja 24 ísraelska hermenn hafa fallið í átökum við Hamas-liða á Gasaströndinni í gær. Þar af féllu 21 þeirra í sömu árás Hamas en gærdagurinn var sá mannskæðasti fyrir ísraelska herinn frá 7. október. Erlent 23.1.2024 10:15
Haley tryggði sér öll atkvæðin í Dixville Notch Bandaríski forsetaframbjóðandinn Nikki Haley tryggði sér öll atkvæði í forvali Repúblikana í bænum Dixville Notch í New Hampshire í nótt. Forvali flokksins í New Hampshire fer fram í dag. Erlent 23.1.2024 07:42
Skaut átta til bana í Illinois Byssumaður sem grunaður er um að hafa skotið átta til bana í borginni Joliet í Illinois í Bandaríkjunum í nótt er látinn eftir átök við lögreglu í Texas ríki, í tvöþúsund kílómetra fjarlægð. Erlent 23.1.2024 07:05
Eitt mála Depardieu um kynferðisbrot fyrnt og fellt niður Saksóknari í Frakklandi hefur látið falla niður kæru um kynferðisbrot gegn leikaranum Gérard Depardieu vegna þess að málið var fyrnt. Erlent 23.1.2024 06:58
Réðust aftur gegn Hútum í Jemen í nótt Bandaríkjamenn og Bretar skutu aftur á skotmörk í Jemen sem þeir telja tengjast Hútum. Í tilkynningu frá varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna í Pentagon í gær kom fram að skotið hefði verið á átta skotmörk. Erlent 23.1.2024 06:23
Ruddust inn í ísraelska þingið meðan árásir á Gasa héldu áfram Aðstandendur gísla í haldi Hamas ruddust inn í ísraelska þingið til að mótmæla aðgerðarleysi stjórnvalda. Þrýstingur eykst á Netanjahú innan- sem utanlands. Utanríkismálastjóri ESB segir að núverandi leið Ísraela til að útrýma Hamas muni ekki virka og það þurfi að koma á friði. Nú þegar hafi um 25 þúsund manns fallið á Gasa. Erlent 23.1.2024 00:14
Vígði nýtt hindúahof þar sem áður stóð moska Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, hóf í dag vígsluathöfn stórs hindúahofs í Ayodhya á reit þar sem áður stóð moska. Miklar deilur hafa staðið um staðinn síðustu aldirnar, en BJP-flokkur Modi, þjóðefnisflokkur hindúa, hefur gert mikið úr vígsluathöfninni, nú þegar styttist í þingkosningar. Erlent 22.1.2024 07:58
Evrópuráðherrar funda með utanríkisráðherrum Ísrael og Palestínu Evrópskir utanríkisráðherrar funda í dag með utanríkisráðherrum Ísrael og Palestínu. Fundað verður með þeim í sitthvoru lagi. Ræða á við þá á um möguleika á friði í Ísrael og Palestínu og hvernig megi koma honum á eftir að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, hafnaði hugmyndum um tveggja ríkja lausn. Erlent 22.1.2024 07:54
Uppgötvuðu tugi nýrra sjávarlífvera við Tenerife Hópur vísindamanna hefur uppgötvað tugi nýrra sjávarlífvera undan ströndum Tenerife. Fjöldi nýrra tegunda kom vísindamönnunum á óvart. Erlent 21.1.2024 23:38
Ron DeSantis dregur framboð sitt til baka Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, er hættur við að bjóða sig fram til embættis Bandaríkjaforseta. Hann lýsir yfir stuðningi við Donald Trump sem fulltrúa Repúblikana í forsetakosningunum sem fram fara í nóvember Erlent 21.1.2024 20:22
Búa sig undir langvarandi aðgerðir gegn Hútum Meðlimir ríkisstjórnar Joe Biden, forseta Bandaríkjanan, eru að undirbúa áætlanir fyrir mögulegar langvarandi hernaðaraðgerðir gegn Hútum í Jemen. Markmið Bandaríkjamanna er að stöðva árásir Húta á fraktskip sem verið er að sigla um Rauða hafið og gegnum Súesskurðinn. Erlent 21.1.2024 14:49
Láta ekki ógna sér með stórri æfingu NATO Steadfast Defender 24, sem eru stærstu heræfingar Atlantshafsbandalagsins í áratugi, marka afturför til tíma kalda stríðsins milli Nato og Sovétríkjanna, samkvæmt Alexander Grushko, aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands. Hann segir æfingarnar auka hættuna á átökum en að Rússum verði ekki ógnað með þessum hætti. Erlent 21.1.2024 14:15
Drónaárásir í Rússlandi í nótt Úkraínumenn eru sagðir hafa gert drónaárásir í Rússlandi í nótt en ein þeirra olli miklum eldi á olíuvinnslustöð nærri Pétursborg. Hin árásin ku hafa verið gerð á verksmiðju þar sem loftvarnarkerfi eru framleidd. Erlent 21.1.2024 09:34
Skaut fast á Trump, sem ruglaðist á henni og Pelosi Nikki Haley, forsetaframbjóðandi í Repúblikanaflokknum, velti í gær vöngum yfir því hvort Donald Trump gæti setið annað kjörtímabil sem forseti Bandaríkjanna, eftir að hann ruglaðist ítrekað á henni og Nancy Pelosi, fyrrverandi þingforseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, í ræðu sem hann hélt á föstudagskvöldið. Erlent 21.1.2024 08:00
Allt að fimmtán þúsund manns drepin í einni borg Allt að fimmtán þúsund manns hafa verið drepin í einni borg í Darfur héraði í Súdan, þar sem gífurlegt ofbeldi hefur átt sér stað. Fólkið er sagt hafa verið drepið af vígamönnum hóps sem kallast Rapid Support Forces eða RSF í umfangsmiklu þjóðernisofbeldi. Erlent 21.1.2024 06:55
Aukin átök og hækkandi spennustig í Mið-Austurlöndum Minnst fjórir meðlimir byltingarvarða íranska hersins voru drepnir í loftárás Ísraels á Damaskus, höfuðborgar Sýrlands í morgun. Nokkrir sýrlenskir hermenn voru einnig drepnir í árásinni að sögn íranskra yfirvalda. Erlent 20.1.2024 23:43
Bæjarstjóri sagði samsæringi að fara í rassgat Len Slat, bæjarstjóri Thames- Coromandel í Nýja-Sjálandi, segist hafa fundið fyrir mjög jákvæðum viðbrögðum, eftir að hann sagði samsæringi sem sýndi opinberum starfsmönnum ógnandi hegðun að „fara í rassgat“. Það gerði hann í formlegum pósti borgarstjóra eftir að maðurinn hafði beðið um nöfn starfsfólks bæjarstjórnarinnar og heimilisföng þeirra. Erlent 20.1.2024 11:30
Felldu háttsettan byltingarvörð í loftárás í Damaskus Ísraelar gerðu í morgun loftárás á Damaskus, höfuðborg Sýrlands, og eru þeir sagðir hafa fellt minnst einn háttsettan meðlim byltingarvarða íranska hersins. Ísraelar gera reglulega árásir í Sýrlandi, sem beinast iðulega gegn Írönum þar, en árásir að degi til eru sjaldgæfar. Erlent 20.1.2024 10:03
Rússneskir hakkarar náðu tölvupóstum leiðtoga Microsoft Rússneskir hakkarar, sem taldir eru á vegum rússnesku leyniþjónustunnar ZVR, eru sagðir hafa brotið sér leið inn í tölvukerfi Microsoft þar sem þeir komu höndum yfir tölvupósta frá fólki í leiðtogateymi fyrirtækisins auk starfsmanna netöryggis- og lögmannadeilda þess. Tölvuþrjótarnir eru þeir sömu og komu að SolarWinds árásinni, sem lýst hefur verið sem þeirri verstu í sögu Bandaríkjanna. Erlent 20.1.2024 09:05
Stærstu heræfingar NATO í áratugi Hermenn Atlantshafsbandalagsins og Svíþjóðar munu á næstu mánuðum halda umfangsmestu heræfingar bandalagsins í áratugi. Æfingarnar hefjast í næstu viku og munu standa yfir þar til í maí og í heildina munu um níutíu þúsund hermenn koma að þeim. Erlent 20.1.2024 07:55
Alec Baldwin aftur ákærður fyrir manndráp af gáleysi Leikarinn Alec Baldwin hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi í annað sinn vegna voðaskots sem reið af á tökustað kvikmyndarinnar Rust. Erlent 19.1.2024 20:14
Ein starfhæf fæðingardeild á Gasa Sameinuðu þjóðirnar ítreka ákall um vopnahlé á Gaza. Einungis ein fæðingardeild er starfhæf á svæðinu og starfsfólk segir ástandið grafalvarlegt. Erlent 19.1.2024 19:15
Gífurlegt magn af ís undir yfirborði Mars Mögulegt er að finna megi gífurlegt magn af ís undir yfirborðinu á Mars. Talið er að ef ísinn yrði bræddur gæti hann þakið reikistjörnuna með 1,5 til 2,7 metra djúpu hafi. Erlent 19.1.2024 14:22
Nýfætt barn fannst í innkaupapoka í London Nýfætt stúlkubarn fannst pakkað inn í handklæði í innkaupapoka í austurhluta Lundúna. Barninu heilsast vel á sjúkrahúsi þökk sé hundaeiganda sem fann það og hélt á því hita. Leit að móðurinni stendur yfir. Erlent 19.1.2024 14:20
Prófuðu neðansjávardróna sem getur borið kjarnorkuvopn Yfirvöld í Norður-Kóreu segjast hafa gert tilraun með neðansjávardróna sem borið getur kjarnorkuvopn. Tilraunin er sögð hafa verið gerð í mótmælum við sameiginlegum heræfingum Bandaríkjanna, Japan og Suður-Kóreu sem fara fram í þessari viku. Erlent 19.1.2024 12:37
Segist tuttugu árum yngri, vitsmunalega séð Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, stærði sig af því á kosningafundi í New Hampshire á miðvikudagskvöld að hafa þekkt hval frá öðrum dýrum, eins og gíraffa og tígrisdýri, þegar hann var forseti. Hann sagðist líða eins og hann væri 35 ára gamall, en ekki 77 ára. Erlent 19.1.2024 09:59
Engan bilbug á Hútum að finna þrátt fyrir árásir Bandaríkjanna Bandaríski herinn hélt árásum sínum á Húta í Jemen áfram í nótt. Joe Biden Bandaríkjaforseti segir árásirnar, sem nú eru orðnar fimm á einni viku, ekki hafa borið tilætlaðan árangur. Erlent 19.1.2024 08:03