Innlent
163 164 165 166 167 168 169 170 171 … 334 ›
Vanhæfur þegar hann dæmdi mann til að greiða 142 milljónir Héraðsdómarinn Ingi Tryggvason var vanhæfur þegar hann dæmdi mann til fimmtán mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar og greiðslu 142,5 milljóna króna sektar vegna brota á skattalögum. Hann olli eigin vanhæfi með því að tjá sig óvarlega um sakarefnið undir rekstri málsins. Innlent 8.6.2024 21:51
Tvö þúsund manns heimsóttu Guðna í síðasta sinn Fullt var út úr dyrum á Bessastöðum í dag, þar sem Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Eliza Reid forsetafrú tóku á móti gestum á síðasta opna húsinu í forsetatíð þess fyrnefnda. Innlent 8.6.2024 21:27
Ekki lagaheimild fyrir einhliða viðskiptaþvingunum gegn Ísrael Íslensk stjórnvöld hafa ekki lagaheimild til að beita einhliða viðskiptaþvingunum gegn Ísrael. Þetta segir utanríkisráðherra sem segir ljóst að Ísraelsher hafi gengið of langt í aðgerðum sínum á Gasa. Íslenskir mótmælendur kalla eftir róttækari aðgerðum. Innlent 8.6.2024 21:00
Sækja tvo slasaða eftir bílveltu Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar tók á loft frá Reykjavík laust fyrir klukkan 20 í kvöld og hélt austur fyrir fjall. Lögreglan á Suðurlandi óskaði eftir aðstoð sveitarinnar vegna bílveltu nálægt Kirkjubæjarklaustri. Innlent 8.6.2024 20:33
Telur að lokast hafi fyrir gíginn að hluta Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur telur að lokast hafi tímabundið fyrir flæði úr sunnanverðum gígnum á Sundhnúksgígaröðinni í dag, með þeim afleiðingum að hraunrennsli breyttist. Innlent 8.6.2024 20:18
Grunaður um að hafa brotið á konu um borð í Polar Nanoq Skipverji á grænlenska togaranum Polar Nanoq var handtekinn í morgun, grunaður um að hafa farið með konu um borð í togarann og brotið á henni kynferðislega. Innlent 8.6.2024 18:22
Blóðbað við björgun gísla og bein útsending frá Grindavíkurvegi Íslensk stjórnvöld hafa ekki lagaheimild til að beita einhliða viðskiptaþvingunum gegn Ísrael. Þetta segir utanríkisráðherra sem segir þó ljóst að Ísraelsher hafi gengið of langt í aðgerðum sínum á Gasa. Íslenskir mótmælendur kalla eftir róttækari aðgerðum. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við mótmælendur sem komu saman í fjölmennri kröfugöngu í miðborginni í dag. Innlent 8.6.2024 18:19
Áhlaupinu lokið en annað ekki útilokað Í nótt, aðfaranótt laugardags, tók að auka á hraunstreymið norður fyrir Sýlingarfell og klukkan hálf ellefu í morgun náði hrauntungan veginum rétt norðan við varnargarðinn. Álykta má að áhlaupinu sé lokið en búast má við að það mjatlist eitthvað áfram. Innlent 8.6.2024 15:54
„Verið að ráðast á lýðræðið og boðar aldrei gott“ Maðurinn sem réðist á Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur í miðborg Kaupmannahafnar í gær hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 20. júní. Utanríkisráðherra Íslands segir uppákomuna alvarlega. Árás á lýðræðislega kjörna fulltrúa sé árás á lýðræðið. Innlent 8.6.2024 14:16
„Hver sofnaði á verðinum?“ Stúkan í Laugardalslaug er að hruni komin, samkvæmt nýrri skýrslu, og algjör óvissa ríkir um framtíð hennar. Íbúi í hverfinu til áratuga segir sárt að horfa upp á þetta merka kennileiti Laugardalsins grotna niður og vill draga stjórnvöld til ábyrgðar. Innlent 8.6.2024 14:01
Vinstri græn geti farið í sögubækurnar Það er raunveruleg hætta á að Vinstri græn kveðji íslensk stjórnmál og fari í sögubækurnar, nái flokkurinn sér ekki á strik fyrir næstu kosningar. Þetta segir stjórnmálafræðingur sem segir einnig athyglisvert að landsfundur verði ekki haldinn fyrr en í október. Innlent 8.6.2024 13:01
„Þetta er nánast allt eins og við áttum von á“ Jarðverkfræðingur hjá Eflu segir atburðarrás morgunsins við Svartsengi hafa verið viðbúna. Helstu vandræðin núna séu gróðureldar sem kviknað hafa út frá hrauninu og slökkviliðið berst við. Hann segir Bláa lónið ekki í hættu. Innlent 8.6.2024 12:29
Grindavíkurvegur undir hraun og alvarleg árás á forsætisráðherra Rennsli og hraði hraunsins úr eldgosinu í Sundhnúkagígum jókst verulega í morgun. Hraun er tekið að renna yfir Grindavíkurveg norðan varnargarðanna við Svartsengi. Þá var tekin ákvörðun um að opna ekki í Bláa lóninu og gestum hótelsins gert að yfirgefa svæðið. Við ræðum við jarðverkfræðing á vettvangi í Svartsengi sem lýsir því sem fyrir augu ber í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan 12. Innlent 8.6.2024 11:56
Skrifaði á sig í gríð og erg og fær engar bætur eftir uppsögn Maður sem var sagt upp störfum fær ekki greiddar bætur fyrir fyrstu tvo mánuðina eftir uppsögn en það er vegna þess að hann átti sjálfur sök á því að vera sagt upp. Maðurinn hafði fengið fjölda áminninga í starfi en jafnframt voru vöruúttektir hans ekki rétt skráðar. Innlent 8.6.2024 11:00
Hraun runnið að Grindavíkurvegi Hraun úr eldgosinu á Reykjanesskaga er komið að Grindavíkurvegi norðan varnargarðanna við Svartsengi. Búið er að loka gati í varnargarðinum auk þess sem búið er að loka Bláa lóninu. Innlent 8.6.2024 09:54
Enginn ávinningur annar en einfaldlega hrært vatn Meistaranemi í næringarfræði segir vörur sem snúast um að hræra upp í vatni enn eitt tískufyrirbrigðið sem sé drifið áfram af markaðsöflum með gylliboðum. Ávinningurinn sé enginn, auk þess sem loforð um virkni séu efnafræðilega ómöguleg. Hún brýnir fyrir fólki að flækja ekki líf sitt að óþörfu en þau sem vilji geti einfaldlega hrært í vatninu sínu sjálf án þess að borga krónu fyrir það. Innlent 8.6.2024 09:20
Borgarstjórinn tekinn í listflug á flugsýningu Borgarstjórinn í Reykjavík, Einar Þorsteinsson, fer í listflug á Reykjavíkurflugvelli í dag. Þetta verður meðal sýningaratriða á flugsýningu Flugmálafélags Íslands, sem stendur yfir milli klukkan 13 og 16. Innlent 8.6.2024 08:40
Engin orð sem lýsa deginum örlagaríka í Grindavík Kona á níræðisaldri segir ekki hægt að lýsa atburðunum í Grindavík þann 10. nóvember með orðum. Þrátt fyrir erfiðleika undanfarna mánuði dreymir hana um að komast aftur heim. Innlent 8.6.2024 08:01
Siggi stormur stendur við spána Besta veðrið um helgina verður á sunnanverðu landinu að sögn Sigga storms, sem segist standa við spá sína um sólríkt sumar þó það eigi sennilega ekki við um júnímánuð. Hann bindur vonir við að júlí og ágúst verði landanum hliðhollari. Innlent 8.6.2024 07:58
Lyfjarisinn veitir offitufræðslu: „Hvaðan á þetta að koma?“ Sprenging hefur orðið í sölu á megrunarlyfinu Ozempic hér á landi síðustu ár. Lyfjarisinn Novo nordisk, sem framleiðir lyfið, auglýsir fræðslusíðu um ofþyngd á samfélagsmiðlum, án þess að minnst sé á lyfið. Sérfræðingur segir greiðsluþátttökuskilyrði sjúkratrygginga of ströng. Innlent 8.6.2024 07:01
Telur kjördæmin of stór og vill jafna vægi atkvæða Forsætisráðherra telur að kjördæmi séu of stór og að jafna ætti vægi atkvæða á milli þeirra. Hann boðaði formenn flokkanna á Alþingi til fundar í dag til þess að ræða stjórnarskrárbreytingar. Innlent 7.6.2024 23:24
Þyngri dómur fyrir að nauðga barnungri mágkonu Landsréttur þyngdi fangelsisdóm yfir karlmanni sem nauðgaði barnungri systur sambýliskonu sinnar í fimm ár í dag. Maðurinn var sakfelldur fyrir að nauðga stúlkunni endurtekið á nokkurra ára tímabili. Innlent 7.6.2024 21:25
Dómar vegna manndrápsins í Hafnarfirði þyngdir Landsréttur þyngdi refsingu karlmanns sem var dæmdur sekur fyrir að stinga pólskan karlmann til bana á bílastæði við Fjarðarkaup í Hafnarfirði og tveggja annarra sem áttu hlutdeild í því. Dómur yfir stúlku sem myndaði atlöguna var mildaður. Innlent 7.6.2024 19:20
Krísufundur VG, ónýt stúka og tónleikar í beinni Stjórn Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs ákvað í dag að flýta landsfundi til þess að velja nýja forystu og móta nýja stefnu. Fylgi flokksins hefur verið í frjálsu falli og VG-liðar boða róttækari vinstristefnu. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verðum við í beinni frá stjórnarfundi Vinstri Grænna og ræðum við flokksfélaga sem hafa áhyggjur af stöðunni. Innlent 7.6.2024 18:01
„Finnum að það er upplifun einhverra íbúa að okkur sé alveg sama“ Almar Guðmundsson bæjarstjóri í Garðabæ segir að í nýrri tillögu að deiliskipulagi fyrir Arnarland í Garðabæ sé tekið tillit til margra athugasemda frá íbúum. Samráðsferlið sé enn opið. Hann hvetur íbúa til að rýna nýja tillögu og til að skila athugasemdum. Innlent 7.6.2024 17:45
Fluttur á sjúkrahús eftir árekstur nærri Hvalfjarðargöngum Einn var fluttur til skoðunar á sjúkrahúsi á Akranesi eftir árekstur tveggja fólksbíla á gatnamótum Vesturlandsvegar og Hvalfjarðarvegar nú síðdegis. Fimm manns voru í bílunum sem eru sagðir mikið skemmdir. Innlent 7.6.2024 17:32
Land er hætt að síga í Svartsengi Aflögunarmælingar undanfarna daga sýna að landsig hafi stöðvast í Svartsengi og því líklegt að flæði kviku frá dýpi inn í kvikusöfnunarsvæðið sé nú sambærilegt því sem er á yfirborði í Sundhnúksgígaröðinni. Innlent 7.6.2024 16:45
Vinstri græn flýta landsfundi Guðmundur Ingi Guðbrandsson hefur sent út bréf til félaga í Vg þar sem hann tilkynnir að búið sé að flýta landsfundi hreyfingarinnar. Hann segir Vg nú standa á tímamótum. Innlent 7.6.2024 16:43
Mótmælendur höfða mál á hendur ríkinu Daníel Þór Bjarnason er í hópi átta mótmælenda tók þátt í mótmælum á vegum samtakanna Ísland-Palestínu þann 31. maí síðastliðinn sem hafa ákveðið að leita réttar síns vegna þess sem þau kalla ólögmætrar og óhóflegrar valdbeitingar lögreglunnar. Undirbúningur er hafinn á höfðun dómsmáls á hendur embættis lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 7.6.2024 16:19
Strandveiðimenn mótmæltu við Alþingishúsið: „Þurfum að gera talsverðar breytingar á kerfinu“ Stór hópur strandveiðimanna gekk frá Hörpu að Alþingishúsinu í dag og krafðist þess að veiðitímabil þeirra yrði tryggt út ágúst. Hópurinn afhenti matvælaráðherra kröfubréf þess efnis, en hún segir þörf á talsverðum breytingum á strandveiðikerfinu. Innlent 7.6.2024 15:53