Innlent
187 188 189 190 191 192 193 194 195 … 334 ›
Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Elliði Vignisson bæjarstjóri kom með hraði til landsins eftir að spurðist fyrir lá að Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water, hafði sent bréf þar sem hann vildi gjalda varhug við uppbyggingu malarverksmiðju Heidelberg á svæðinu. Innlent 17.5.2024 11:30
Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Konráð S. Guðjónsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnar og mun bera starfstitilinn efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar. Konráð hefur undanfarið unnið sem aðstoðarmaður Þórdísar Kolbrún R. Gylfadóttur, utanríkisráðherra. Innlent 17.5.2024 11:27
Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ „Nú er til dæmis mál sem brennur mjög augljóslega á ungu fólki í dag og ætti ekki að hafa farið framhjá neinum; umhverfis- og loftslagsmálin. Ég er búinn að vera að standa í þessari kosningabaráttu núna í einhverjar vikur og ég hef aldrei verið spurður út í það.“ Innlent 17.5.2024 10:30
Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Boðað hefur verið til sérstaks fundar hjá bæjarstjórn Ölfus vegna bréfs sem forstjóri landeldisins First Water sendi bæjarstjórn í fyrradag. Í bréfinu lýsir hann sig andsnúinn því að mölunarverksmiðja rísi í næsta nágrenni við matvælaframleiðslu Innlent 17.5.2024 10:28
Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Tveir menn sem grunaðir eru um að hafa yfirgefið mann í sjávarháska við Garðskagavita í gærnótt eru í haldi lögreglunnar á Suðurnesjum. Þeir sitja í fangaklefa í Reykjanesbæ. Innlent 17.5.2024 09:38
Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Árið 2023 fengu 115 Víetnamar dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli sérfræðiþekkingar. Um er að ræða umtalsverða fjölgun frá fyrri árum og langstærsta hópinn sem fékk dvalarleyfi á þessum forsendum. Innlent 17.5.2024 09:27
„Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Móðir sem missti son sinn nýlega þegar hann fyrirfór sér í fangelsi á Íslandi segist vona að andlát hans muni hafa áhrif á breytingar til hins betra á geðheilbrigði fanga og þjónustu fyrir þá. Hún skorar á yfirvöld að efla geðheilsuteymi fanga og styrkja betur við starf Afstöðu – félags fanga á Íslandi. Innlent 17.5.2024 09:02
Baldur vinsælasta plan B Baldur Þórhallsson er sá frambjóðandi sem flestir myndu kjósa í forsetakosningunum ef sá frambjóðandi sem aðspurðir segjast ætla að kjósa, væri ekki í framboði. Innlent 17.5.2024 08:26
Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík MenntaStefnumót skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur fer fram í dag þar sem starfsfólki í grunnskólum, leikskólum og frístundastarfi hjá Reykjavíkurborg gefst tækifæri til að taka þátt og eiga samtal um menntun barna og þróun til framtíðar. Innlent 17.5.2024 08:00
Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Þrátt fyrir að aðeins tveir frambjóðendur í forsetakappræðum Stöðvar 2 í gærkvöldi segðust berum orðum vera félagar í þjóðkirkjunni lýstu þeir sig allir tilbúna til þess að vernda kirkjuna og eiga við hana gott samstarf. Innlent 17.5.2024 07:01
Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu „Ég er sannarlega glaður hér í Þjóðleikhúsinu og nýt mín vel með mínu samstarfsfólki,“ segir Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri, spurður að því hvort hann hyggist sækjast eftir því að sinna starfinu áfram eftir að skipunartíma hans lýkur í árslok. Innlent 17.5.2024 06:40
Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Utanríkisráðherra telur ekki óeðlilegt að sýna georgískum mótmælendum umdeildra laga samstöðu. Hann furðar sig á misvísandi yfirlýsingum forseta georgíska þingsins eftir fund sendinefndar ráðherrans með honum. Innlent 17.5.2024 06:01
Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi segir vanvirðingu þegar talað er um fóstur eða barn í móðurkviði sem frumuklasa. Umhugsunarefni sé hve margar fóstureyðingar séu framkvæmdar hér á landi árlega. Fullt af fólki væri tilbúið að veita þeim börnum sem fæddust gott líf. Innlent 16.5.2024 22:49
Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum segir málsatvik úti fyrir Garðskagavita í nótt að skýrast. Skipstjóri og stýrimaður muni dvelja í fangelsi til morguns hið minnsta. Þeir voru um borð í fraktskipi sem sigldi á fiskibát með þeim afleiðingum að sjómaður lenti í lífsháska. Innlent 16.5.2024 21:45
Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Eldur kviknaði í fólksbíl á gatnamótum Dalbrautar og Sæbrautar nú í kvöld. Slökkviliðsmenn réðu niðurlögum eldsins fljótt og engum sögum fer af því að ökumann bílsins hafi sakað. Innlent 16.5.2024 21:35
Einhver í herberginu segi ekki satt Halla Tómasdóttir segir augljóst að einhver þeirra sex forsetaefna sem tóku þátt í kappræðum á Stöð 2 í kvöld hafi tröll á sínum snærum sem ati aðra auri. Einhver þeirra sé því ekki að segja satt. Innlent 16.5.2024 21:03
„Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Frambjóðendur til forseta lýstu almennt andstöðu við vopnakaup fyrir Úkraínu í kappræðum á Stöð 2 í kvöld. Þeir lögðu áherslu á hlutleysis- og friðarstefnu en fyrrverandi forsætisráðherra benti á að Íslandi væri þó ekki hlutlaus þjóð. Innlent 16.5.2024 20:52
Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Katrín Jakobsdóttir tekur forystuna á ný samkvæmt nýrri könnun Maskínu en þó er ekki marktækur munur á henni og Höllu Hrund Logadóttur. Halla Tómasdóttir er síðan í mikilli sókn og tæplega þrefaldar fylgi sitt. Innlent 16.5.2024 18:32
Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Talsverðar breytingar eru á fylgi forsetaframbjóðenda samkvæmt nýrri könnun Maskínu sem greint verður frá í kvöldfréttum Stöðvar 2. Við rýnum í niðurstöðurnar og sýnum frá undirbúningi kappræðna efstu sex frambjóðenda, sem mætast strax eftir fréttir. Innlent 16.5.2024 18:10
Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Sex efstu forsetaframbjóðendurnir samkvæmt könnunum mætast í kappræðum á Stöð 2 klukkan 18:55. Kappræðurnar verða í beinni útsendingu og opinni dagskrá. Innlent 16.5.2024 18:06
Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Sigmundur Davíð Gunnlaugsson spurði forsætisráðherra að því hvort það hafi verið með vilja og vitund ríkisstjórnarinnar, að utanríkisráðherra hafi farið til Georgíu og tekið þátt í mótmælum. Bjarni sagði Ísland og aðrar þjóðir sem þarna væru ekki taka afstöðu gegn þarlendum stjórnvöldum. Innlent 16.5.2024 17:33
Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Viktor Traustason forsetaframbjóðandi er afar ósáttur við að honum, sem og helmingi þeirra sem í forsetaframboði eru, sé ekki boðið til þátttöku í kappræðum Stöðvar 2 og hvetur til sniðgöngu. Innlent 16.5.2024 16:32
Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Skipstjóri skipsins Longdawn hefur verið handtekinn, grunaður um að hafa yfirgefið mann í sjávarháska við Garðskagavita í nótt. Allt bendir til þess að fraktskipið hafi rekist í strandveiðibát manns sem lenti í sjónum en var naumlega bjargað. Auk skipstjórans eru tveir stýrimenn í haldi lögreglunnar í Vestmannaeyjum. Innlent 16.5.2024 16:16
Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Líkamsræktarþjálfari á rétt á bótum frá tryggingafélaginu Sjóvá vegna slyss sem hann varð fyrir í æfingasal líkamsræktarstöðvar árið 2021 þar sem hann var yfirþjálfari. Það var Héraðsdómur Reykjavíkur sem komst að þessari niðurstöðu. Innlent 16.5.2024 16:11
Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Dómsmálaráðherra hefur skipað Margréti Kristínu Pálsdóttur í stöðu aðstoðarlögreglustjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá og með 17. maí 2024, til fimm ára. Innlent 16.5.2024 15:56
Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Valdimar O. Hermannsson hefur verið ráðinn sem sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps út kjörtímabilið. Sveitastjórn hreppsins samþykkti ráðninguna á fundi í gær 15. maí. Innlent 16.5.2024 15:05
Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Tekist var á um bók sem forsætisráðuneytið í samstarfi við Forlagið hyggst gefa út um fjallkonuna á þingi í dag. Inga Sæland spurði hvort til stæði að rífa formálann úr í hvert skipti sem nýr forsætisráðherra sest í stólinn? Innlent 16.5.2024 15:04
Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Þórey Einarsdóttir hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2024 fyrir störf sín í þágu jaðarsettra einstaklinga. Þórey hefur starfað í Konukoti, fyrsta og eina athvarfinu fyrir heimilislausar konur á Íslandi, frá opnun þess. Innlent 16.5.2024 14:57
Nafnið Hroði of hroðalegt Mannanafnanefnd birti í dag þrjá úrskurði sína þar sem tvö nöfn voru samþykkt og einni beiðni hafnað. Innlent 16.5.2024 14:23
Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Arnar Magnússon strandveiðisjómaður sem kom skipverja bátsins sem hvolfdi í nótt til bjargar, segir liggja í augum uppi að flutningaskip hafi klesst á bátinn. Sjálfur var hann nýkominn í land úr veiðitúr þegar Margrét Björk Jónsdóttir hitti hann í Sandgerði. Hann segir yndislegt að félagi hans til fjörutíu ára hafi komist lífs af. „Þetta fer ekki alltaf svona vel.“ Innlent 16.5.2024 14:18