Innlent
26 27 28 29 30 31 32 33 34 … 334 ›
Kosningapallborðið: Formenn flokka sem bítast um fylgi frá hægri Í dag er mánuður til alþingiskosninga sem fara fram þann 30. nóvember. Fréttastofa Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis heldur áfram að fá til sín góða gesti í Kosningapallborðið og nú er komið að fyrsta pallborðinu með formönnum stjórnmálaflokka sem bjóða fram til Alþingis. Innlent 30.10.2024 11:29
Verðbólgan hjaðnar og hamfaraflóð á Spáni Í hádegisfréttum fjöllum við um hamfaraflóðin sem gengið hafa yfir Valensíuhérað á Spáni. Innlent 30.10.2024 11:28
Skert athygli þegar ekið var inn á öfugan vegarhelming Aðdragandi banaslyss á Vesturlandsvegi til móts við Skipanes í desember í fyrra var sá að Toyota Yaris bifreið var ekið yfir á öfugan vegarhelming og framan á Volvo fólksbíl úr gagnstæðri átt. 66 ára kona sem ók Toyota bifreiðinni lést af völdum árekstursins og tveir í hinum bílnum slösuðust alvarlega. Innlent 30.10.2024 11:07
Þau skipa lista Sósíalista í Suðurkjördæmi Félagsfundur Sósíalista í Suðurkjördæmi samþykkti framboðslista í gær. Oddviti listans er Unnur Rán Reynisdóttir, hársnyrtir og hársnyrtikennari. Innlent 30.10.2024 10:51
„Ég tek alveg á mig það sem ég gerði, en hitt er ekki ég“ Jón Ingi Sveinsson, grunaður höfuðpaur Sólheimajökulsmálsins svokallaða, gaf sína þriðju skýrslu í aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þar viðurkenndi hann að hafa átt þátt í innflutningi á fíkniefnum sem voru flutt til landsins með skemmtiferðaskipinu AIDAsol. Hann segist þó ekki kannast við að hafa skipulagt innflutninginn. Innlent 30.10.2024 10:34
Ein deild opin á tveimur leikskólum Ein deild er opin á bæði leikskólanum Ársölum á Sauðárkróki og leikskólanum á Seltjarnarnesi í dag. Þar eru deildarstjórar ekki félagsmenn í Kennarasambandi Íslands og því er hægt að hafa opið. Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins segir það undir sveitarfélaginu komið að ákveða það. KÍ geri ekki athugasemdir við það. Innlent 30.10.2024 09:53
„Þann 9. ágúst létust ekki bara tveir bræður“ Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar segir það ekki að ósekju að vímuefnasýki sé kölluð fjölskyldusjúkdómur. Öll fjölskyldan og nánustu aðstandendur finni fyrir afleiðingum neyslunnar. Innlent 30.10.2024 08:35
Víðir og Reynir í eina sæng Bæjarráð Suðurnesjabæjar, Knattspyrnufélagið Reynir í Sandgerði og Knattspyrnufélagið Víðir í Garði hafa samþykkt viljayfirlýsingu um stofnun nýs íþróttafélags í sveitarfélaginu. Stefnt er að stofnun hins nýja félags haustið 2026 og að nýr aðalvöllur félagsins verði í Sandgerði en að upphitaður gervigrasvöllur verði lagður á núverandi malarvelli í Garði. Innlent 30.10.2024 08:09
Reynir að sameina starfið á Samstöðinni og framboð Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins og Samstöðvarinnar, verður oddviti flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. Innlent 30.10.2024 07:26
Halla sinnir störfum formanns VR Halla Gunnarsdóttir, varaformaður VR, mun sinna störfum formanns VR, á meðan Ragnar Þór Ingólfsson formaður verður í leyfi frá störfum næstu vikurnar. Innlent 30.10.2024 06:20
Þjófnaður í verslun og eignaspjöll Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna þjófnaðs í verslun í hverfi 201 í Kópavogi og eignaspjalla í hverfi 111 í Reykjavík. Innlent 30.10.2024 06:05
Á annan milljarð í þjálfun, búnað og hergögn fyrir Úkraínu Einn og hálfur milljarður króna í aukinn stuðning við Úkraínu í fjáraukalögum á að mæta kostnaði við auknar skuldbindingar Íslands sem samið var um á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í sumar. Stuðningurinn fer áfram í þjálfun, kaup á búnaði og hergögnum og framlögum í sjóði sem styðja varnir Úkraínu. Innlent 30.10.2024 06:01
Harris og Trump hnífjöfn viku fyrir kosningar Kamala Harris varaforseti Bandaríkjanna og frambjóðandi Demókrata til forseta og Donald Trump frambjóðandi Repúblikana og fyrrverandi forseti mælast hnífjöfn í könnunum. Silja Bára Ómarsdóttir, sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum, segir stöðuna ekki hafa verið svo jafna áður. Innlent 29.10.2024 23:43
Óviss hvort eiginmaðurinn sé á lífi en ætlar ekki að gefast upp Svetlana Tsíkanovskaja, leiðtogi stjórnarandstöðu Belarús, hefur ekki heyrt frá eiginmanni sínum sem hefur verið í fangelsi í heimalandinu í sex hundruð daga og veit ekki hvort hann er yfir höfuð enn á lífi. Hún hvetur Íslendinga til að halda áfram að styðja við baráttuna fyrir lýðræði í Belarús og til þess að nýta kosningaréttinn sinn sem ekki megi taka sem sjálfsögðum hlut. Innlent 29.10.2024 23:16
„Við erum ekki slaufunarflokkur“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins segir flokkinn standa fyrir skynsemishyggju og innihaldi umfram umbúðum. Hann segir Klausturmálið ekki koma flokknum illa. Það sé þvert á móti traustvekjandi ef það sé eina málið sem fólk geti dregið upp til að draga úr trúverðugleika þeirra. Innlent 29.10.2024 22:01
Þau skipa lista Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmunum Snorri Másson leiðir lista Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og Sigríður Andersen í Reykjavíkurkjördæmi norður. Jakob Frímann Magnússon er í öðru sæti í Reykjavík norður og Þorsteinn Sæmundsson í öðru sæti í Reykjavík suður. Innlent 29.10.2024 21:27
Þörf á ítarlegri rannsóknum vegna Vestmannaeyjaganga Veggjöld gætu staðið undir kostnaði við Vestmannaeyjagöng. Þörf er á ítarlegri jarðfræðirannsóknum áður en hægt verður að kveða upp úr með það hvort slík göng séu fýsileg. Þetta eru helstu niðurstöður starfshóps sem skilaði skýrslu um málið til innviðaráðherra í dag. Innlent 29.10.2024 21:21
Fimm börn alvarlega veik á gjörgæslu vegna E.coli sýkingar Alls eru nú tíu börn inniliggjandi á Landspítalanum vegna E.coli sýkingar. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum eru þar af fimm þeirra á gjörgæslu. Um 40 börn eru undir eftirlit vegna sýkingarinnar. E. Coli sýking getur leitt til alvarlegar nýrnabilunar og því eru börn sem eru á gjörgæslu í blóðskilun. Innlent 29.10.2024 21:17
Framhaldsskólar taki ekki tillit til verkfallsbarna Verkföll kennara í níu skólum hófust í dag. Kennarasambandið hefur sakað Samband íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélagið Skagafjörð um tilraun til verkfallsbrota. Innlent 29.10.2024 21:01
Úkraínuforseti gagnrýnir hik vestrænna leiðtoga Forseti Úkraínu segir Rússa hafa tekist að leggja Georgíu nánast undir sig í nýafstöðnum kosningum þar og Moldóva muni falla innan tveggja ára nái Rússar sínu fram. Hann gangrýnir hik Vesturlanda varðandi heimildir á notkun langdrægra vopna á sama tíma og Putin fari yfir rauðar línur með innflutningi hermanna frá norður Kóreu. Innlent 29.10.2024 20:01
Þessi eru í forystusætunum Framboðslistar stjórnmálaflokkanna eru óðum að skýrast og oddvitar þeirra víðast hvar komnir fram. Í fjölmennustu kjördæmunum má víða sjá mikla þingreynslu hjá þeim sem leiða fyrir sinn flokk en út á landi er meira um glænýtt fólk í því hlutverki. Innlent 29.10.2024 18:58
Fella nokkur rekstrarleyfi fyrir sjókvíaeldi úr gildi Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi hluta af rekstrarleyfi sem MAST gaf út í febrúar til Arctic Sea Farm fyrir sjókvíaeldi á þremur svæðum í Ísafjarðardjúpi, Arnarnesi, Kirkjusundi og Sandeyri. Leyfið í Arnarnesi og Kirkjusundi var afturkallað en stendur við Kirkjusund. Rekstrarleyfi til fiskeldis á öðrum þremur stöðum í Ísafjarðardjúpi, Óshlíð, Eyjahlíð og Drangsvík, sem gefið var út til Arnarlax í maí síðastliðnum, var einnig afturkallað. Innlent 29.10.2024 18:47
Jakob Frímann til liðs við Miðflokkinn Miðflokknum hefur borist góður liðsauki því nú rétt í þessu var gengið frá því að Jakob Frímann Magnússon, sem áður var í Flokki fólksins, hefur gengið til liðs hann. Innlent 29.10.2024 18:15
Fréttamannafundur utanríkisráðherra Norðurlandaráðs Fréttamannafundur utanríkisráðherra Norðurlandaráðs hefst klukkan 18:20 og verður í beinni útsendingu hér á Vísi. Innlent 29.10.2024 18:10
Kennaraverkföll og göng til Eyja Verkföll kennara í níu skólum hófust í dag. Kennarasambandið hefur sakað Samband íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélagið Skagafjörð um tilraun til verkfallsbrota. Við ræðum við foreldra, sem eru uggandi yfir stöðunni, í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 29.10.2024 18:01
Segir íslenska ríkið fordæma ákvörðun ísraelska þingsins Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra fordæmir ákvörðun ísraelska þingsins um að banna Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) í Ísrael og að skilgreina stofnunina sem hryðjuverkasamtök. Samkvæmt samþykkt þingsins á stofnunin að láta af starfsemi innan 90 daga. Innlent 29.10.2024 17:51
Ofsaakstur um Höfðana endaði með umferðaróhappi Karlmaður á sextugsaldri hefur hlotið fjögurra mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir ofsakastur um Höfðana í Reykjavík í febrúar á þessu ári sem endaði með umferðaróhappi. Innlent 29.10.2024 16:52
Sakborningur á áttræðisaldri segist hafa fengið greiðslur frá syni sínum Karlmaður á áttræðisaldri sem er einn sakborninga Sólheimajökulsmálsins svokallaða gaf skýrslu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann er ákærður fyrir að hafa haft í vörslu sinni 170 grömm af amfetamíni og 667 grömm af kókaíni. Innlent 29.10.2024 16:35
Líkur aukast á eldgosi í lok nóvember Út frá nýju hættu mati Veðurstofunnar vegna kvikusöfnunar í Svartsengi má reikna með að líkur fari að aukast á nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á Reykjanesskaga í lok nóvember. Landris og kvikusöfnun hefur verið á stöðugum hraða síðustu vikur. Innlent 29.10.2024 16:30
Úkraínski fáninn verði við ráðhúsið þar til fullnaðarsigur hefur unnist Einar Þorsteinsson borgarstjóri segir að úkraínski fáninn muni blakta við ráðhús Reykjavíkur þar til Úkraína hefur unnið fullnaðarsigur. Fáninn hefur verið blaktandi við við Ráðhúsið síðan stríðið hófst fyrir meira en tveimur árum. Innlent 29.10.2024 15:46