Innlent
45 46 47 48 49 50 51 52 53 … 334 ›
Efla Hagstofuna í kjölfar talnaruglsins Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur skipað nefnd sem skila á tillögum um hvernig megi efla Hagstofu Íslands sem miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar í landinu. Innlent 11.10.2024 14:13
Grunar að veikindi flugáhafna tengist efni sem finnst í smurolíu Rannsóknarnefnd samgönguslysa mælir með því að flugrekendur vakti loftgæði í loftförum sínum. Þetta kemur fram í skýrslu nefndarinnar sem varðar mörg tilfelli veikinda hjá fólki í flugáhöfnum frá árinu 2011 til ársins í ár. Innlent 11.10.2024 13:16
Viðskiptalífið sérstaklega áhugasamt um að fylgja Höllu út Viðskiptasendinefndin sem fylgdi Höllu Tómasdóttur forseta Íslands í fyrstu opinberu heimsókn hennar til Danmerkur í vikunni taldi tæplega sjötíu manns og er ein sú stærsta frá upphafi, að sögn forstöðumanns hjá Íslandsstofu. Sendinefndin stendur straum af öllum kostnaði sjálf, forsetaembættið greiðir aðeins flug undir sitt fólk. Innlent 11.10.2024 13:15
„Grafalvarlegt mál“ ef af verkföllum verður Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra segir grafalvarlegt ef börn og ungmenni missi úr námi vegna verkfalla. Hann biðlar til samningsaðila að standa undir þeirri ábyrgð sem á þeim hvíli, vera lausnamiðaðir og gera það sem í þeirra valdi stendur til að afstýra megi verkfalli. Innlent 11.10.2024 13:01
„Þetta er allt komið í einhvern hrærigraut“ Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur vísað frá kæru Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna virkjanaleyfis fyrir vindorkuver við Búrfell. Oddviti sveitarfélagsins á erfitt með að skilja niðurstöðu nefndarinnar. Innlent 11.10.2024 12:06
Ríkisstjórn í vanda stödd Formaður Framsóknar telur óheppilegt að félagsmálaráðherra hafi haft samband við ríkislögreglustjóra að næturlagi, svo fresta mætti brottvísun fatlaðs drengs frá Palestínu. Formaður Vinstri grænna stendur hins vegar með samflokksmanni sínum og segir hann hafa gert það rétta í stöðunni. Hún viðurkennir þó að ríkisstjórnin sé í vanda stödd. Rætt verður við ráðherra í hádegisfréttum Bylgjunnar. Innlent 11.10.2024 11:51
Þyrlan kölluð út vegna slyss en afturkölluð Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í morgun en svo afturkölluð vegna slyss á Snæfellsnesi. Ásmundur Kristinn Ásmundsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að verið sé að vinna í málinu. Innlent 11.10.2024 11:45
„Ég leyni því ekki að við erum í vanda stödd“ Formaður Framsóknaflokksins segir samskipti milli stjórnarflokkanna vera orðin stirð og formaður Vinstri grænna segist ekki vilja leyna því að ríkisstjórnin sé í vanda stödd. Þrátt fyrir það segist hvorugt þeirra spennt fyrir kosningum á allra næstu mánuðum. Innlent 11.10.2024 11:32
Halda íshellaferðum áfram þrátt fyrir að fá ekki leyfi Ferðaþjónustufyrirtækið Niflheimar heldur áfram íshellaferðum þrátt fyrir að leyfi fyrirtækisins verði ekki endurnýjað og það hafi verið kært fyrir ólöglegar framkvæmdir í Breiðamerkurjökli. Eigandi Niflheima segir ferðirnar farnar undir leyfi annarra fyrirtækja. Innlent 11.10.2024 11:22
Sjö vilja verða varaseðlabankastjóri Sjö umsóknir bárustu um embætti varaseðlabankastjóra peningastefnu. Fimm umsækjenda starfa þegar í Seðlabankanum. Innlent 11.10.2024 11:11
Þögull sem gröfin um aðgerðir í öðrum framhaldsskóla Formaður Félags framhaldsskóla segir annan framhaldsskóla nú undirbúa verkfallsaðgerðir. Hann vill ekkert frekar gefa upp um aðgerðir. Innlent 11.10.2024 10:53
Bein útsending: Nýir tímar í landbúnaði Bændasamtök Íslands og Samtök fyrirtækja í landbúnaði standa fyrir málþingi á Hótel Selfossi í tilefni af Degi landbúnaðarins í dag. Dagskráin hefst kl. 9:30 í dag og hægt verður að fylgjast með fundinum í streymi hér á Vísi. Innlent 11.10.2024 09:52
Greip til hnífs því hún óttaðist að sonurinn kæmi að sér látinni Kona sem er ákærð fyrir að stinga mann ítrekað á heimili hennar í Mosfellsbæ um nótt í aprílmánuði árið 2021 viðurkenndi fyrir dómi að hún hefði stungið hann tvívegis. Þrátt fyrir það sagði hún að maðurinn hefði beitt hana grófu ofbeldi í aðdragandanum. Innlent 11.10.2024 09:03
„Mönnum finnst að lögin eigi ekki að gilda þegar réttlæti þeirra er annað“ Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir það blasa við að kosningar muni fara fram fyrr en í vor. Brynjar telur samskipti innan ríkisstjórnarinnar og við ríkislögreglustjóra í aðdraganda brottvísunar Tamimi fjölskyldunnar óeðlilega. Innlent 11.10.2024 08:59
Kæru Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna Búrfellslundar vísað frá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur vísað frá kæru Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna virkjunarleyfis Orkustofnunar til handa Landsvirkjunar vegna Búrfellslundar. Innlent 11.10.2024 06:39
„Innbrotsboð“ frá banka og angistarhljóð unglinga Tveir gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu nú í morgunsárið, sem sinnti fjölbreyttum útköllum í gærkvöldi og nótt. Innlent 11.10.2024 06:17
Íslendingar eiga ekki að aðlaga sig innflytjendum heldur öfugt Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins segir að vogunarsjóðir hafi hótað honum þegar hann var forsætisráðherra vegna þess að hann vildi láta sjóðina taka skellinn af falli íslensku bankanna. Innlent 10.10.2024 22:02
Skæð fuglaflensa í hröfnum og hettumáfum Skæð fuglaflensuveira af gerðinni H5N5 hefur verið staðfest í villtum fuglum á Norður- og Suðausturlandi. Í tilkynningu frá Matvælastofnun segir að óvissustig sé í gildi og að allir sem haldi alifugla eða aðra fugla séu hvattir til að viðhafa ýtrustu smitvarnir við umgengi á fuglunum sínum. Fólk er hvatt til tilkynna veika og dauða fugla til MAST. Innlent 10.10.2024 21:44
Þriggja bíla árekstur á Miklubraut Þrír bílar skullu saman á Miklubraut í kvöld, við Grensásveg. Að minnsta kosti tveir voru fluttir á slysadeild. Innlent 10.10.2024 21:31
Engin afsökun lengur fyrir því að mæta ekki í brjóstaskimun Stórefla á þátttöku kvenna í brjóstaskimun með því að lækka komugjaldið í fimm hundruð krónur. Þátttaka hefur dregist verulega saman á síðustu árum og yfirlæknir Brjóstamiðstöðvar vonar að fleiri mæti nú í skimun. Innlent 10.10.2024 21:02
Tveir slasaðir í alvarlegu umferðarslysi Tveir slösuðust í alvarlegu umferðarslysi á Norðausturvegi skammt frá bænum Hóli í Kelduhverfi stuttu fyrir klukkan 16. Í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðausturlandi kemur fram að vörubíll og fólksbíll hafi skollið saman. Innlent 10.10.2024 20:52
Ekki allir sem geta leitað í bakland eftir barnapössun Foreldrar barna í leik- og grunnskólum þar sem hefjast verkföll 29. október eru afar áhyggjufullir vegna stöðunnar. Bæði um það hvar eigi að koma börnunum fyrir á meðan þau þurfa að fara í vinnu og hvaða áhrif verkfallið hefur á nám barnanna. Innlent 10.10.2024 20:16
Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Albert Guðmundsson var í dag sýknaður af ákæru um nauðgun en dómari málsins mat framburð hans trúverðugari en framburð konunnar sem kærði hann. Þá er hún sögð hafa verið margsaga í framburði sínum. Innlent 10.10.2024 20:12
Uppgjör á sögulegri heimsókn: Klæðaburður forsetamanns og umdeild ræða Íslenskur royalisti er alls ekki á því að klæðaburður Björns Skúlasonar forsetamanns, í opinberri heimsókn forsetahjónanna til Kaupmannahafnar, hafi verið of hversdagslegur. Það olli henni þó vonbrigðum að Halla Tómasdóttir skyldi aðallega hafa talað ensku. Innlent 10.10.2024 20:00
„Við þolum ekki þetta ástand mikið lengur“ Landspítalinn hefur aldrei staðið frammi fyrir öðrum eins innlagnarvanda en spítalinn hefur verið vikum saman á hæsta viðbragðsstigi. Framkvæmdastjóri hjúkrunar segir starfsemina komna að algjörum þolmörkum. Innviðir heilbrigðiskerfisins hafi ekki vaxið í takt við samfélagsþróun. Innlent 10.10.2024 19:31
Ekki útilokað að fleiri skólar bætist í hópinn Boðað hefur verið til verkfalla í átta skólum en ekki er útilokað að verkfallið muni ná yfir fleiri. Nemendur segjast spenntir að fá lengra vetrarfrí en hafa áhyggjur af áhrifum á námið. Verkföllin hafa áhrif á hátt í þrjú þúsund börn víðs vegar um landið. Innlent 10.10.2024 19:02
Verkfallsnemendur með áhyggjur af náminu og tendrun jólageitarinnar Ekki er útilokað að boðað verði til verkfalla í fleiri skólum en að óbreyttu leggja kennarar í átta skólum niður störf síðar í mánuðinum. Nemendur segjast spenntir að fá lengra vetrarfrí en hafa áhyggjur af áhrifum á námið. Innlent 10.10.2024 18:02
Skýrist á mánudag hvort læknar fari í verkfall Næsta mánudag liggur fyrir hvort læknar muni grípa til aðgerða í kjaraviðræðum sínum. Læknar hafa verið samningslausnir frá mars og í viðræðum frá því um áramót. Samninganefndir funda næsta mánudag og telur félagið að eftir þann fund muni skýrast hvort samningar náist eða hvort félagið muni grípa til aðgerða. Innlent 10.10.2024 17:24
Misspennt fyrir verkfalli: „Þetta er fínt, meira frí“ Krakkar í Laugalækjaskóla í Reykjavík og Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi eru misspenntir fyrir yfirvofandi verkfalli kennara við skólana. Sumir óttast að missa of mikið úr á meðan aðrir eru spenntir fyrir smá auka fríi. Innlent 10.10.2024 17:19
Fjármálaráðherra búinn að endurskoða þjóðlendukröfur Fjármála- og efnahagsráðherra hefur fyrir hönd íslenska ríkisins afhent óbyggðanefnd endurskoðaðar þjóðlendukröfur vegna eyja og skerja umhverfis landið. Óbyggðanefnd kallar eftir kröfum þeirra sem kunna að eiga öndverðra hagsmuna að gæta og hefur nú framlengt kröfulýsingarfrest þeirra til 13. janúar 2025. Innlent 10.10.2024 16:42