Innlent
76 77 78 79 80 81 82 83 84 … 334 ›
Fjármálaráðherra segir engar kollsteypur í fjárlagafrumvarpinu Útgjöld ríkissjóðs halda áfram að aukast að raungildi á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi sem lagt var fram í morgun. Fjármálaráðherra segir frumvarpið engu að síður styðja við markmið Seðlabankans um hjöðun verðbólgu og lækkun vaxta. Innlent 10.9.2024 11:45
Segir þrásetu ríkisstjórnarinnar stórskaðlega Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar sér fátt eitt jákvætt í nýju fjárlagafrumvarpi. Þráseta ríkisstjórnarinnar sé þegar farna að valda verulegum skaða í efnahagsmálum. Innlent 10.9.2024 11:37
Halla og Guðrún í nýjum hlutverkum og aðhald í ríkisrekstri Ríkisstjórnin boðar aðhald til að ná tökum á verðbólgu og vöxtum í nýju fjárlagafrumvarpi. Gert er ráð fyrir að hallarekstur ríkissjóðs dragist saman um sextán milljarða króna á milli ára og nemi 41 milljarði króna árið 2025. Þing verður sett í dag þar sem tvær konur, nýr forseti og biskup taka þátt í fyrsta skipti. Innlent 10.9.2024 11:31
Hinn grunaði í Selfossmálinu er látinn Karlmaður á þrítugsaldri sem grunaður var um að hafa orðið Sofiu Sarmite Kolsenikovu að bana á Selfossi í apríl í fyrra lést í vikunni. Rannsókn málsins verður lokið þrátt fyrir að ljóst sé að ákæra verði ekki gefin út í því. Innlent 10.9.2024 11:30
Tímabært að stækka bráðamóttökuna á Landspítalanum Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir tímabært að stækka bráðamóttökuna á Landspítalanum. Íslendingum hafi fjölgað hratt síðustu ár og móttakan ekki haldið í við þá þróun. Þá segir hann einnig til skoðunar að taka álag af bráðamóttöku með sérstakri smáslysamóttöku. Innlent 10.9.2024 11:23
Framboð Höllu Hrundar kostaði rúmar 27 milljónir króna Forsetaframboð Höllu Hrundar Logadóttur kostaði 27,4 milljónir króna en það skilaði rúmlega 82 þúsund króna afgangi. Halla Hrund lagði framboðinu til hátt í tvær milljónir króna af eigin fé. Innlent 10.9.2024 10:54
Fyrsta Airbus-þotan komin í liti Icelandair TF-IAA, fyrsta Airbus-þotan sem Icelandair mun taka við, kom út af málningarverkstæði Airbus í Hamborg í gærkvöldi. Áætlað er að þotan, sem er af gerðinni Airbus A321 LR, komi til landsins í nóvember og verði fáum dögum síðar tekin í notkun á áætlunarleiðum Icelandair. Innlent 10.9.2024 10:20
Þrettán nýjar heimildir ráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra fær ýmsar nýjar heimildir verði fjárlagafrumvarp hans samþykkt á Alþingi eins og reikna má fastlega með. Þar má meðal annars finna leyfi til að vinna með losunarheimildir, selja fasteignir í sveitum, kaupa húsnæði fyrir Rannsóknarnefnd samgönguslysa og stofnun sjóðs um verk Jóns Leifs. Innlent 10.9.2024 10:12
Dómsmálaráðherra hafi ekki staðið með tjáningarfrelsinu Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari segir þungu fargi létt af sér eftir að dómsmálaráðherra tilkynnti að hann yrði ekki leystur frá störfum. Hann segist þó ekki ánægður með rökstuðning dómsmálaráðherra og að hún hafi ekki staðið með tjáningarfrelsinu. Ríkissaksóknari segir ekki unnt að upplýsa um næstu skref að svo stöddu. Innlent 10.9.2024 09:36
Svona var kynning Sigurðar Inga á fjárlagafrumvarpinu Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra boðar til fréttamannafundar í fjármála- og efnahagsráðuneytinu klukkan 09 í dag. Á fundinum kynnir ráðherra fjárlagafrumvarp fyrir árið 2025. Innlent 10.9.2024 08:31
Telur röð tilviljana hafa orðið til þess að árásin átti sér stað Þrír geðlæknar sem gáfu skýrslu í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær varðandi stunguárás sem átti sér stað í Vesturbænum í janúar voru á sama máli um að karlmaður sem er ákærður í málinu væri sakhæfur. Það er þrátt fyrir að hann hafi verið í erfiðu andlegu ástandi þegar atvikin sem málið varða áttu sér stað. Innlent 10.9.2024 06:46
Óvissustig og viðvaranir enn í gildi Óvissustig almannavarna er í gildi i fyrir Norðurland og á Ströndum. Þar eru appelsínugular viðvaranir í gildi vegna hvassviðris og snjókomu til klukkan níu. Talsverð snjókoma og hálka er á fjallvegum, einkum austan til. Innlent 10.9.2024 06:37
661 barn á biðlista eftir plássi í leikskólum Reykjavíkurborgar Alls bíður 661 barn nú eftir því að fá pláss í leikskóla á vegum Reykjavíkurborgar, samkvæmt svörum skóla- og frístundaráðs við fyrirspurn Mörtu Guðjónsdóttur borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Innlent 10.9.2024 06:29
Þrír handteknir í tengslum við hnífstunguárás Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók þrjá einstaklinga í gærkvöldi eða nótt í tengslum við hnífstunguárás. Árásarþoli leitaði á bráðamóttöku en meiðsl voru talin minniháttar. Innlent 10.9.2024 06:13
Gætu þurft að taka fram fyrir hendur Seðlabankans Stjórnvöld verða að grípa inn í, hafi peningastefnunefnd Seðlabankans ekki hug á því að lækka vexti í bráð. Þetta segir þingmaður Flokks fólksins sem hvetur fólkið til þess að mótmæla við þingsetningu á morgun. Innlent 9.9.2024 23:17
Flýta göngum til að forða fé af fjöllum Appelsínugular viðvaranir hafa tekið gildi á Norðurlandi og varað er við miklu hvassviðri og snjókomu þar til klukkan níu í fyrramálið. Bændur hafa hafist handa við að koma fé af fjöllum. Innlent 9.9.2024 22:32
Sagði hótelið hafa sagt sér upp vegna meðgöngu maka Kærunefnd jafnréttismála féllst ekki á að Hótel Grímsborgir hafi brotið gegn lögum með uppsögn kokks en hann sakaði hótelið um að hafa sagt sér upp vegna meðgöngu maka hans og vegna þjóðernisuppruna hans. Innlent 9.9.2024 22:00
„Það er bannað að klípa í rassinn á flugfreyjunum“ Flugfreyjurnar í gamla daga fengu stundum að stýra flugvélunum og þær höfðu sín ráð til að takast á við dónakarla. Fyrrverandi flugfreyjur hjá Flugfélagi Íslands, sem kalla sig sexurnar, deildu slíkum sögum í þættinum Flugþjóðin. Innlent 9.9.2024 21:21
Segja að ekkert muni breytast nema fólkið sýni samstöðu Verkalýðshreyfingin hefur boðað til mótmæla við þingsetningu á morgun. Verkalýðsforkólfar segjast skynja mikla reiði vegna langvarandi verðbólgu og háum vöxtum og krefjast þess að stjórnvöld setji heimilin í landinu í forgang. Innlent 9.9.2024 20:02
„Við sáum átta metra ofan í jörðina“ Sprungan sem liggur í gegnum Hópið í Grindavík nær niður á grunnvatn, allt að þrettán metra niður í jörðina. Ekki er öruggt að vera í húsinu og þarf þónokkur vinna að fara fram áður en hægt yrði að hleypa fólki þar inn. Bæjarfulltrúar kynntu sér aðstæður í skemmdum byggingum í Grindavík í dag og menningarmiðstöðin Kvikan var opin í fyrsta sinn í tíu mánuði. Innlent 9.9.2024 20:02
Minni munur á launum verkafólks og háskólagenginna Varaformaður BHM segir minni mun á launum háskólamenntaðra og verkafólks hér á landi en í öðrum Evrópulöndum. Heildarkostnaður við að fara í háskólanám hlaupi á tugum milljóna sem verði að umbuna fyrir. Innlent 9.9.2024 19:19
Sláandi myndir frá Grindavík, óveður og úrræðagóðar flugfreyjur Sprungan sem liggur í gegnum Hópið í Grindavík nær niður á grunnvatn, allt að þrettán metra niður í jörðina. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 sláumst við í för með bæjarfulltrúum sem kynntu sér aðstæður í skemmdum byggingum í Grindavík í dag og sjáum sláandi myndir frá bænum. Innlent 9.9.2024 17:58
Vöruflutningavél festist á brautinni Vöruflutningavél festist á Keflavíkurflugvelli síðdegis með þeim afleiðingum að tvær einkaþotur hringsóluðu og enduðu á því að lenda á Reykjavíkurflugvelli. Innlent 9.9.2024 17:52
„Þetta er auðvitað bara einhver bull nálgun“ „Við þurfum að vera með kerfi hér sem að tryggir að við sköpum sem mest verðmæti fyrir þjóðarbúið sem heild. Ef það gerist þannig að hér eru sjávarútvegsfyrirtæki sem að geta með hagnaði sínum fjárfest í öðrum atvinnugreinum. Ég bara lít ekki á það sem vandamál því ég lít á þetta sem hvern annan atvinnurekstur. Innlent 9.9.2024 17:44
Vistaskipti hjá fangelsismálastjóra Páll E. Winkel mun taka ársleyfi frá embætti forstjóra Fangelsismálastofnunar frá 1. október næstkomandi og taka að sér störf á vegum háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins. Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra, verður settur forstöðumaður Fangelsismálastofnunar í fjarveru hans. Innlent 9.9.2024 17:03
Geta haldið bæjum á Reykjanesi frostfríum með nýfundnum jarðhita Jarðhitaleit á Reykjanesi sem var flýtt vegna hættunnar á að eldhræringarnar þar yllu heitavatnsleysi hefur borið árangur umfram væntingar. Þrjár rannsóknarborholur eru sagðar nýtanlegar hver með sínum hætti. Innlent 9.9.2024 16:03
Óvissustig vegna veðurs á Ströndum og Norðurlandi Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórana á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra, lýsir yfir óvissustigi Almannavarna vegna veðurs þar sem spáð er norðanáttar sem gæti fylgt slydda og snjókoma. Innlent 9.9.2024 15:59
Björgunarskip kom fjórum til bjargar Björgunarskipið Hafbjörg var kallað út um klukkan eitt í dag vegna vélarvana báts 17 mílum norðaustur af Neskaupstað. Báturinn er nú kominn í tog og siglir Hafbjörg með skipverjanna fjóra sem voru um borð í átt að landi. Innlent 9.9.2024 15:44
Ummælin óviðeigandi en Helgi Magnús sleppur Dómsmálaráðherra telur sérstakar aðstæður réttlæta ummæli Helga Magnúsar Gunnarssonar, vararíkissaksóknara, sem séu þó til þess fallin að grafa undan trúverðugleika ákæruvaldsins. Hann verður því ekki leystur frá störfum. Helgi Magnús fagnar ákvörðun ráðherra og hlakkar til að mæta aftur til vinnu. Innlent 9.9.2024 15:39
Bein útsending: Hættunni á heitavatnslausum Suðurnesjum afstýrt Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Árni Magnússon, forstjóri ÍSOR, kynna í dag árangur af sérstakri jarðhitaleit á Reykjanesi. Innlent 9.9.2024 15:25