Innlent „
84 85 86 87 88 89 90 91 92 … 334 ›
„Þetta er aðför að veikum rétti leigjenda“ Formaður samtaka leigjenda gagnrýnir harðlega breytingu á húsaleigulögum sem tók gildi nú um mánaðarmótin. Um sé að ræða aðför að leigjendum þar sem staða leigusalans sé fyrst og fremst styrkt. Ekki hafi verið tekið tillit til krafna samtakanna við breytingu laganna heldur þvert á móti. Innlent 2.9.2024 13:55
Mættu í bleiku til að heiðra minningu Bryndísar Klöru Verzlingar mættu í bleiku í dag til að heiðra minningu Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sautján ára stúlku sem lést af sárum sínum á föstudag. Bleikur var hennar eftirlætislitur. Forseti nemendafélagsins í Verzlunarskólanum segir að nemendur og kennarar séu í sárum og hafi viljað senda frá sér falleg skilaboð. Hann segir þörf á fræðslu um ofbeldi á landsvísu. Innlent 2.9.2024 11:45
Leigjendur ósáttir við ný lög Í hádegisfréttum verður rætt við formann Samtaka leigjenda sem gagnrýnir harðlega nýgerðar breytingar á húsaleigulögum sem tóku gildi nú um mánaðarmótin. Innlent 2.9.2024 11:37
Laxaseiði úr landeldisstöð sluppu í sjó Allt að þrjú hundruð laxaseiði sluppu í sjó á Kópaskeri í júlí. Ekki tókst að fanga neitt hinna stroknu seiða eftir að ljóst varð um óhappið sem leiddi til stroks laxfiska úr landeldisstöð. Fiskeldisfyrirtækið Kaldvík ehf. tilkynnti Matvælastofnun um óhappið þriðjudaginn 30. júlí en seiðin sluppu í sjó við dælingu laxaseiða úr eldisstöð fyrirtækisins á Röndinni á Kópaskeri yfir í brunnbátinn Ronja Fjord. Innlent 2.9.2024 11:14
Slökktu minniháttar eld í Litlatúni Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnti útkalli í verslunarkjarnanum í Litlatúni í Garðabæ, þar sem minniháttar eldur kviknaði í rafmagnstöflu. Innlent 2.9.2024 11:06
Blöskrar grín árum saman að þjáningum kvenna Stjórnarformaður Hagsmunasamtaka brotaþola segir grín að nauðgunum ýta undir kynbundið ofbeldi. Hún tínir til dæmi frá mörgum helstu skemmtikröftum þjóðarinnar og segir tíma til kominn til að hætta að gera lítið úr ofbeldi. Innlent 2.9.2024 10:53
Unglingaslagsmál á Selfossi á borði lögreglu Lögreglan á Suðurlandi hefur til rannsóknar slagsmál unglinga undir Ölfusárbrú á Selfossi í gærkvöldi. Íbúi í bænum fullyrðir að fjórir til fimm grímuklæddir hafi ráðist að einum. Innlent 2.9.2024 10:10
Sjálfstæðismenn óánægðir með það sem flokkurinn „hefur þurft að kyngja“ Diljá Mist Einarsdóttir og Jón Gunnarsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, segja stöðu Sjálfstæðisflokksins alvarlega og að það verði að bregðast við. Þau segja að á flokksráðsfundi hafi komið fram skýr krafa um að sjálfstæðisstefnan verði fyrirferðarmeiri. Samstarf við vinstriflokka sé fullreynt en þau gangi óbundin til kosninga. Innlent 2.9.2024 09:21
Á leið í flug og vildarpunktarnir eru útrunnir Óánægju gætir meðal ungra Sjálfstæðismanna í garð forystu flokksins ef marka má skrif Franklíns Ernis Kristjánssonar, sem situr í stjórn Sambands ungra Sjálfstæðismanna. Innlent 2.9.2024 08:35
Unnið að því að gera við alvarlega rafmagnsbilun í Mýrdal Alvarleg rafmagnsbilun er í gangi í Mýrdal, en samkvæmt tilkynningu hjá RARIK er búið að staðsetja bilunina og unnið að viðgerð. Innlent 2.9.2024 07:05
Þeim fjölgar sem ná ekki lestrarviðmiðum í 1. bekk „Erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á að ef börn hafa ekki náð nægilegri færni í 3. bekk þá næst hún sjaldnast. Þá ná þau í rauninni aldrei jafnöldrum sínum og sitja einfaldlega eftir.“ Innlent 2.9.2024 07:02
Akureyringar segja vöggu flugsins vera fyrir norðan Flugáhugamenn sunnan og norðan heiða hafa löngum togast á um það hvort vagga íslensks flugs eigi að teljast vera í Reykjavík eða á Akureyri. Þótt fyrsta flugvélin á Íslandi hafið tekið flugið í Reykjavík halda Akureyringar því gjarnan fram að vagga flugsins sé í raun fyrir norðan. Innlent 1.9.2024 23:00
Leggja aukinn þunga í að rannsaka ásetning hins grunaða Lögregla leggur nú áherslu á að kanna ásetning drengsins sem grunaður er um að hafa stungið þrjú ungmenni á menningarnótt, með þeim afleiðingum að sautján ára stúlka lést. Málið hefur hreyft við þjóðinni og á samfélagsmiðlum biðlar fólk til ungmenna að hætta hnífaburði. Innlent 1.9.2024 20:03
Nýr biskup tekur við þjóðkirkjunni Guðrún Karls Helgudóttir var vígð til biskups Íslands í Hallgrímskirkju í dag. Fjöldi fólks tók þátt í athöfninni, þar á meðal íslenskir prestar og biskupar, auk biskupa frá Norðurlöndum, Bretlandi, Wales og Palestínu. Innlent 1.9.2024 20:02
„Þau stóðu og tröðkuðu á andlitinu á honum“ „Ég er að beygja inn á planið þegar dóttir mín argar „það er verið að meiða“,“ segir kona sem varð vitni að fólskulegri hópárás fyrir utan Breiðholtslaug í dag. Innlent 1.9.2024 19:07
Fengu óljósar ábendingar um hefndaraðgerðir Lögreglu bárust óljósar ábendingar úr ýmsum áttum um helgina um mögulegar hefndaraðgerðir vegna stunguárásarinnar í Skúlagötu á Menningarnótt þar sem 17 ára stúlka lét lífið. Áttu hefndaraðgerðirnar að fara fram í Mosfellsbæ þar sem bæjarhátíðin Í túninu heima er haldin. Innlent 1.9.2024 18:48
Þjóð í áfalli vegna hnífaburðar og mótmælaalda í Ísrael Lögregla leggur nú áherslu á að kanna ásetning drengsins sem grunaður er um að hafa stungið þrjú ungmenni á menningarnótt, með þeim afleiðingum að sautján ára stúlka lést. Málið hefur hreyft við þjóðinni og á samfélagsmiðlum biðlar fólk til ungmenna að hætta hnífaburði. Við ræðum við yfirlögregluþjón í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 1.9.2024 18:18
Fréttamaðurinn hafi vart getað varist hlátri Skúli Magnússon umboðsmaður Alþingis fer um víðan völl í viðtali á Sprengisandi í dag. Hann ræðir grundvallarréttindi borgaranna og spyr hvort viðhorf stjórnvalda hafi breyst eftir tíma heimsfaraldurs og eldsumbrota. Fréttamaður Ríkisútvarpsins hafi vart getað varist hlátri fyrir tveimur árum við lestur fréttar um að umboðsmaður hefði sett spurningarmerki við samkomutakmarkanir. Innlent 1.9.2024 16:16
Verður veturinn nýja ferðamannatímabilið í Fjallabyggð? Mannlíf og atvinnulíf blómstrar, sem aldrei fyrr í Fjallabyggð þessi misserin enda hefur sjaldan eða aldrei verið eins mikið að gera í sveitarfélaginu og nú. Bæjarstjórinn spáir því að veturinn verði nýja ferðamannatímabilið í sveitarfélaginu vegna góðrar skíðaaðstöðu. Innlent 1.9.2024 15:06
Mikill viðbúnaður í túninu heima Skipuleggjandi hátíðarinnar Í túninu heima í Mosfellsbæ segir hana farið að mestu leyti vel fram fyrir utan líkamsárás á föstudag þar sem hníf var beitt. Viðbúnaður hafi verið töluverður og gæsla hafi verið aukin til muna eftir stunguárásina á menningarnótt. Innlent 1.9.2024 14:38
Biskupar frá öllum heimshornum á vígsluathöfninni Guðrún Karls Helgudóttir verður vígð í embætti biskups Íslands í Hallgrímskirkju klukkan tvö í dag. Hún tekur við embættinu af Agnesi M. Sigurðardóttur sem hefur verið biskup síðan árið 2012. Innlent 1.9.2024 13:41
Reisa 350 metra af girðingum á dag Vinna við að fylla í sprungur og girða af hættuleg svæði í Grindavík er hafin. Tæplega sjö kílómetrar af girðingu verða lagðir. Stefnt er að því að ljúka framkvæmdunum í október. Innlent 1.9.2024 13:31
Taka höndum saman gegn hnífaburði: „Þú ert aumingi“ Skýr skilaboð berast frá samfélagsmiðlastjörnum þessa dagana vegna fréttaflutnings og umræðu um aukinn hnífaburð ungmenna og þess skaða sem hann veldur: þeir sem bera hnífa úti á lífinu eru aumingjar og eiga sér engar málsbætur. Innlent 1.9.2024 13:18
Kapphlaup við tímann á Gasa og framkvæmdir í Grindavík Sex gíslar Hamas-samtakanna fundust látnir í hernaðaraðgerð Ísraelsmanna í dag og eru sagðir hafa verið drepnir skömmu áður en herinn náði til þeirra. Kapphlaup við tímann er nú hafið á Gasa, þar sem byrjað var að bólusetja við lömunarveiki í morgun. Barnalæknir segir verkefnið gríðarerfitt og að bólusetningarnar einar og sér dugi ekki. Innlent 1.9.2024 11:45
Blendnar tilfinningar fyrir langþráð ferðalag Tinna Rúnarsdóttir heldur á þriðjudag út til Srí Lanka til að hitta fjölskyldu sína þar. Tinna er ættleidd frá Srí Lanka árið 1984 en kom til landsins í upphafi árs 1985. Í vor ákvað hún að hefja leit að blóðforeldrum sínum á Srí Lanka. Stuttu eftir að hún hóf leitina komst hún að því að báðir foreldrar hennar væru látnir. Móðir hennar hafði verið myrt 2002 en faðir hennar lést stuttu eftir fæðingu hennar. Innlent 1.9.2024 10:01
Störf umboðsmanns, Sjálfstæðisflokkur og menntakerfið Sprengisandur er á sínum stað klukkan 10 þar sem Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi ræðir samfélagsmálin við góða gesti. Innlent 1.9.2024 09:56
Rafmagnslaust í Hafnarfirði, Álftanesi og Garðabæ Háspennubilun er í Hafnarfirði, á Álftanesi og í stórum hluta Garðabæjar og því víða rafmagnslaust. HS Veitur vinna að viðgerðum. Innlent 1.9.2024 09:10
Hnífi beitt á bæjarhátíðinni Í túninu heima Lögreglan var með mikinn viðbúnað í gær og í nótt vegna bæjarhátíðarinnar Í túninu heima í Mosfellsbæ. Hnífi var beitt í líkamsárás á hátíðinni á föstudag en fórnarlambið slapp við áverka. Gerandi er þó enn ófundinn og hefur lögregla ekki upplýsingar um viðkomandi að svo stöddu. Innlent 1.9.2024 08:16
„Hún var hjartahlýjasta og saklausasta mannveran“ „Hún var hjartahlýjasta og saklausasta mannveran sem hefur stigið á þessari jörð. Hún var of góð, trúði engu slæmu upp á aðra og var ljósberi fyrir alla sem henni kynntust.” Þetta skrifar Birgir Karl Óskarsson, faðir hinnar sautján ára gömlu Bryndísar Klöru sem lést af sárum sínum síðastliðið föstudagskvöld eftir að hafa orðið fyrir stunguárás í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt. Innlent 1.9.2024 00:15
Smelltu Kristrúnu í hitasætið og kalla eftir aðgerðum Ungt jafnaðarfólk kallar eftir „verulegum skattahækkunum“ á stórtæka íbúðaeigendur, stóraukinni aukningu á uppbyggingu óhagnaðardrifinna leiguíbúða, og að fólk fái hundrað prósent launa sinna greidd í fæðingarorlofi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ályktun landsþings Ungs jafnaðarfólks sem fram fór í Hafnarfirði í dag. Innlent 31.8.2024 21:38