Viðskipti erlent
22 23 24 25 26 27 28 29 30 … 334 ›
Bankaeftirlitsstofnun á meðal fórnarlamba Microsoft-árásar Óttast er að tölvuþrjótar kunni að hafa komist yfir persónuupplýsingar Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar (EBA) þegar árás var gerð á tölvupóstkerfi tæknirisans Microsoft. Stofnunin þurfti að loka tölvupóstkerfi sínu á meðan tjónið af árásinni var metið. Viðskipti erlent 8.3.2021 15:33
ICA-Stig og sænska auglýsingasápuóperan Talsverð umræða skapaðist í sænsku samfélagi fyrr á árinu eftir að tilkynnt var að nýr leikari myndi taka við hlutverki verslunarmannsins Stig í auglýsingum matvörukeðjunnar ICA. Auglýsingar ICA eru í formi sápuóperu þar sem sagt er frá ástum og örlögum starfsfólks ótilgreindrar ICA-verslunar á sama tíma og greint er frá tilboðum á skjánum. Viðskipti erlent 27.2.2021 20:01
Elon Musk ekki lengur ríkastur Elon Musk, eigandi rafbílaframleiðandans Tesla, er ekki lengur ríkasti maður jarðar, en hlutabréf í Tesla hafa lækkað töluvert að undanförnu. Viðskipti erlent 24.2.2021 08:17
Hirti falið að lokka fleiri ferðamenn til Grænlands Hjörtur Smárason hefur verið ráðinn sem nýr forstjóri Ferðamálaráðs Grænlands, Visit Greenland. Hann mun taka við stöðunni af Juliu Pars í byrjun apríl. Viðskipti erlent 18.2.2021 13:30
Parler snýr aftur eftir að hafa verið sparkað af internetinu Samfélagsmiðilinn Parler er kominn aftur í loftið um mánuði eftir að Amazon og aðrir tæknirisar kipptu fótunum undan miðlinum í kjölfar árásarinnar á bandaríska þinghúsið. Viðskipti erlent 15.2.2021 22:09
Olíusjóði Noregs verður beitt til að fjölga konum í stjórnum fyrirtækja Forsvarsmenn norska olíusjóðsins ætla að beita sér fyrir því að fleiri konur fái sæti í stjórnum fyrirtækja og félaga sem sjóðurinn hefur fjárfest í. Sjóðurinn er einn sá stærsti í heiminum og á 9.202 fyrirtækjum um heiminn allan Viðskipti erlent 15.2.2021 14:11
DNB ekki ákærður í Samherjamáli Rannsókn á aðkomu norska viðskiptabankans DNB að viðskiptum Samherja og meintra mútubrota fyrirtækisins í Namibíu hefur verið lögð niður. Verður bankinn því ekki ákærður í málinu. Viðskipti erlent 12.2.2021 09:25
Musk býður 100 milljónir dala fyrir lausn á mengunarvandanum Auðjöfurinn Elon Musk býður hundrað milljónir dala, eða um 12,9 milljarða króna, sem verðlaunafé í alþjóðlegri keppni sem leitast eftir því að finna leiðir til þess að draga úr koltvíoxíðmengun í andrúmsloftinu. Viðskipti erlent 8.2.2021 13:57
Rússíbanareið GameStop komin á leiðarenda Útlit er fyrir að rússíbanareið hlutabréfa bandaríska fyrirtækisins GameStop sé komin á leiðarenda. Virði hlutabréfanna hefur lækkað verulega og margir fjárfestar sitja eftir með sárt ennið. Aðrir halda fast í vonina um að virði hlutabréfanna muni hækka á nýjan leik. Viðskipti erlent 3.2.2021 13:46
Spotify hækkar verð um allt að 27 prósent Tónlistarveitan Spotify hefur tilkynnt um verðhækkanir á öllum áskriftarleiðum sínum. Með breytingunum fer venjuleg Premium áskrift úr 9,99 í 10,99 evrur á mánuði, Premium Duo úr 12,99 í 14,99 evrur og Family áskrift sem nýtist allt að sex einstaklingum úr 14,99 í 18,99 evrur á mánuði. Viðskipti erlent 3.2.2021 07:45
Bezos hættir sem forstjóri Amazon Jeff Bezos, stofnandi og forstjóri stórfyrirtækisins Amazon, hyggst láta af stöðu forstjóra fyrirtækisins. Viðskipti erlent 2.2.2021 21:43
Kynlífsverkafólki gert að yfirgefa Rauða hverfið Borgarstjórn Amsterdam hefur samþykkt tillögu um að miðstöð þeirra sem vinna kynlífsvinnu í borginni verði færð úr hinu svokallaða Rauða hverfi í miðborginni í annað hverfi fjarri miðbænum. Viðskipti erlent 1.2.2021 21:39
Asos tekur yfir Topshop og skilur eftir sár í breskum verslunargötum Breska vefverslunin Asos hefur fest kaup á vörumerkjunum Topshop, Topman, Miss Selfridge og HIIT úr þrotabúi smásölurisans Arcadia. Auk þess að kaupa öll hugverk tengd fatakeðjunum mun Asos eignast vörubirgðir þeirra en stjórnendur hyggjast ekki taka yfir neinar verslanir. Viðskipti erlent 1.2.2021 13:36
Önnur lota Wall Street við netverja Wall Street undirbýr sig fyrir aðra viku þar sem gífurlegur fjöldi smærri fjárfesta lætur áfram til sín taka á mörkuðum og oft með því markmiði að koma höggi á Wall Street. Aðgerðir netverjar hafa komið harkalega niður á stórum fjárfestingarsjóðum en þeir beina nú sjónum sínum að öðrum hlutabréfum og vörum. Viðskipti erlent 1.2.2021 08:59
Mettekjur hjá Apple: 14,4 þúsund milljarða tekjur sem raktar eru til sölu iPhone 12 Tekjur Apple á síðasta ársfjórðungi 2020 voru 111,4 milljarðar dala. Það samsvarar um 14.400 milljörðum króna (14.400.000.000), gróflega reiknað, og hækkuðu tekjurnar um 21 prósent, samanborið við sama tímabil 2019. Viðskipti erlent 28.1.2021 11:46
Skaut föstum skotum að Apple eftir 1.450 milljarða hagnað Forsvarsmenn samfélagsmiðlafyrirtækisins Facebook opinberuðu í gær nýtt ársfjórðungsuppgjör sem sýndi að fyrirtækið hagnaðist um 11,2 milljarða dala á síðasta fjórðungi 2020. Það samsvarar um 1.450 milljörðum króna, gróflega reiknað. Viðskipti erlent 28.1.2021 10:29
Netverjar klekkja á stórum fjárfestingasjóðum á Wall Street Hlutabréf fyrirtækisins GameStop, sem selur tölvuleiki, hafa hækkað í virði um rúmlega þúsund prósent á undanförnum þremur mánuðum. Ástæðan er rakin til deilna smærri fjárfesta og netverja á Reddit og öðrum síðum við stóra fjárfestingarsjóði á Wall Street. Viðskipti erlent 27.1.2021 16:05
Boeing 737 Max fá græna ljósið í Evrópu Flugöryggisstofnun Evrópu hefur gefið græna ljósið á að Boeing 737 Max flugvélarnar geti flogið um loftin blá í Evrópu. Þar með er 22 mánaða banni á flugvélunum lokið í kjölfar tveggja flugslysa sem kostuðu 346 manns lífið. Viðskipti erlent 27.1.2021 12:30
Pfizer farið að rukka fyrir sjötta skammtinn Eftir að fram kom að hægt er að ná sex bóluefnaskömmtum út úr flöskum Pfizer í stað fimm, er bandaríski lyfjaframleiðandinn nú farinn að rukka fyrir sjötta skammtinn. Hærri reikningar Pfizer eru þó sendir út án samþykkis frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Viðskipti erlent 26.1.2021 11:34
Tólf þúsund missa vinnuna þegar netverslun tekur yfir Debenhams Allt að tólf þúsund starfsmenn munu missa vinnuna þegar öllum verslunum breska vöruhússins Debenhams verður lokað á næstu misserum. Netverslunin Boohoo hefur fest kaup á vörumerki og vefsíðu vöruhússins úr þrotabúi þess en hyggst ekki halda áfram rekstri 118 Debenhams verslana víðs vegar um Bretland. Viðskipti erlent 25.1.2021 10:55
Google hótar að loka á leitarvél sína í Ástralíu Tæknirisinn Google segir að ef stjórnvöld í Ástralíu haldi því til streitu að rukka Google og Facebook sérstaklega fyrir það þegar fréttum er deilt á síðunum, muni Google einfaldlega hætta starfsemi í Ástralíu og loka á síðuna í landinu. Viðskipti erlent 22.1.2021 07:58
Segir bókunum hafa fjölgað um 250 prósent Johan Lundgren, forstjóri EasyJet, segir útlit fyrir mikinn ferðavilja meðal fólks þegar slakað verður á takmörkunum vegna kórónuveirunnar. Hann segir bókunum hafa fjölgað um 250 prósent miðað við sama tíma í fyrra. Viðskipti erlent 18.1.2021 23:11
Endurtaka útboð í gerð flugvallar á Grænlandi Flugvallafélag grænlenskra stjórnvalda, Kalaallit Airports, hefur ákveðið að bjóða út að nýju gerð flugvallar við Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands. Þetta er endurtekning á útboði í fyrra en tilboðin sem þá bárust voru sögð hafa verið öll hátt yfir fjárhagsramma verkefnisins. Íslenski verktakinn Ístak var í hópi bjóðenda, sem valdir höfðu verið að undangengnu forvali. Viðskipti erlent 17.1.2021 22:00
Amazon sakað um samkeppnislagabrot Amazon og fimm stærstu bókaútgefendur Bandaríkjanna eru sakaðir um samráð um verð á rafbókum í hópmálsókn sem höfðuð var í vikunni. Viðskipti erlent 16.1.2021 22:00
Ný kynslóð síma Samsung lítur dagsins ljós Starfsmenn tæknirisans Samsung kynntu nýja síma og önnur tól á fjarkynningu í dag. Símarnir vöktu þó mesta athygli og það að töluverð breyting hefur verið gerð á myndavélum í símum Samsung. Viðskipti erlent 14.1.2021 21:40
Innkalla dýrafóður eftir dauða yfir 70 hunda Bandaríski framleiðandinn Midwestern Pet Foods hefur hafið innköllun á gæludýrafóðri eftir að yfir 70 hundar drápust og minnst 80 aðrir veiktust í kjölfar þess að hafa étið Sportmix-fóður frá fyrirtækinu. Viðskipti erlent 14.1.2021 14:53
Norwegian hættir flugi á lengri leiðum Norska flugfélagið Norwegian hefur ákveðið að hætta að bjóða upp á áætlunarflug á lengri flugleiðum samkvæmt tilkynningu til norku kauphallarinnar. Er þar verið að bregðast við erfiðri fjárhagsstöðu félagsins sem orðið hefur fyrir búsifjum líkt og önnur flugfélög vegna heimsfaraldursins. Viðskipti erlent 14.1.2021 08:57
Gæti misst af þrjátíu milljörðum Þýski forritarinn Stefan Thomas á ekki nema tvær tilraunir eftir til að finna lykilorðið að harða disknum sínum. Venjulega væri það ekkert stórmál en á þessum diski Thomas er Bitcoin-veski með rafmynt að andvirði 31 milljarðs íslenskra króna. Viðskipti erlent 13.1.2021 16:32
Grænlendingar semja um hærri greiðslur fyrir kvóta Grænlendingar hafa endurnýjað samninga við Evrópusambandið sem tryggja þeim andvirði þriggja milljarða íslenskra króna í árlegar tekjur af fiskveiðiheimildum í lögsögu Grænlands. Fyrirtæki í eigu Íslendinga er meðal þeirra sem nýta kvótana. Viðskipti erlent 13.1.2021 09:09
Breski fjölmiðlamógúllinn David Barclay er látinn Breski auðjöfurinn og fjölmiðlamógúllinn Sir David Barclay er látinn, 86 ára að aldri. Viðskipti erlent 13.1.2021 08:12