Viðskipti erlent
290 291 292 293 294 295 296 297 298 … 334 ›
Auður Evrópu orðinn meiri en Bandaríkjanna Bandaríkin eru ekki lengur heimili mesta auðs í heiminum. Evrópa hefur velt Bandaríkjamönnum úr sessi hvað þetta varðar. Auðæfi Bandaríkjanna hafa minnkað mest af öllum landsvæðum heimsins nú ári eftir fall Lehman Brothers. Viðskipti erlent 15.9.2009 15:01
Heimsmarkaðsverð á olíu aftur á uppleið Heimsmarkaðsverð á olíu er aftur á uppleið og hækkaði WTI léttolían um 0,8% á markaðinum í New York undir lokin í gærkvöldi. Stendur verðið í 69,4 dollurum fyrir opnun markaðarins í dag. Viðskipti erlent 15.9.2009 13:42
Unibrew lækkar: Stór eigandi úti að synda í Atlantshafi Hlutir í dönsku bruggverksmiðjunum Royal Unibrew hafa átt tvo afleita daga í kauphöllinni í Kaupmannahöfn. Í gærdag lækkuðu hlutirnir um tæp 10% og í dag hafa þeir lækkað um rúm 6% í viðbót. Á börsen.dk segir að ástæðan séu áhyggjur af miklum skuldum Unibrew og því að einn stærsti eigandinn sé..."úti að synda í Atlantshafinu, nánar tiltekið á Íslandi." Viðskipti erlent 15.9.2009 11:26
House of Fraser hyggur á útrás frá Bretlandi Breska tískuverslunarkeðjan House of Fraser (HoF)hyggur nú á útrás frá Bretlandi og er að skipuleggja opnanir á nýjum verslunum í öðrum löndum. Samkvæmt frétt um málið í Retailweek er unnið að þessu samkvæmt þriggja ára áætlun sem eigandi HoF, Highland Group, hefur sett saman. Viðskipti erlent 15.9.2009 11:03
Líf fjárfestis með súludönsurum og kókaíni Hinn þrítugi Tetsuya Ishikawa varð sterkefnaður á því að versla með „eitraða" skuldabréfavafninga. Nú er hann skilinn við konu sína sem er fyrrverandi súludansari, tugmilljóna bónusgreiðslur og lúxusbílinn. Í staðinn hefur hann skrifað bók um reynslu sína sem meðábyrgur fyrir fjármálakreppunni. Viðskipti erlent 15.9.2009 10:15
Norski olíusjóðurinn fitnar í 50 þúsund milljarða Norski olíusjóðurinn heldur áfram að fitna og sína tölur að í ágúst náðu eignir hans verðmætinu rúmar 2.500 milljarðar norskra kr. eða rúmlega 50.000 milljarðar kr. Í ágúst einum nam eignaaukning sjóðsins 56 milljörðum norskra kr. eða vel yfir 1.000 milljörðum kr. Viðskipti erlent 15.9.2009 08:39
Japanski fjárfestirinn nátengdur stærsta kröfuhafa Glitnis Hajime Satomi einn af japönsku fjárfestunum sem vildi kaupa Glitni í vetur í gegnum félagið Satomi & Ogasawara partnership er nátengdur Sumitomo Mitsui bankanum sem aftur er einn af stærstu kröfuhöfum Glitnis. Viðskipti erlent 14.9.2009 15:31
Fjárfestagoðsögn: Varar við gjaldmiðlakreppu Fjárfestagoðsögnin Jim Rogers varar nú við því að gjaldmiðlakreppa gæti verið í aðsigi í kjölfar fjármálakreppunnar. Þess orð lét Roges falla í viðtali á CNBC. Viðskipti erlent 14.9.2009 13:25
Lehman Brothers: Dagurinn þegar Wall Street hrundi Nú er að renna upp ársafmæli dagsins þegar Wall Street hrundi í kjölfar gjaldþrots fjárfestingabankans Lehman Brothers þann 15. september í fyrra. Gjaldþrotið var upphafið að verstu fjármálakreppu sem heimurinn hefur orðið fyrir síðustu 80 árin og raunar sér ekki enn fyrir endan á henni hjá fjölda þjóða. Viðskipti erlent 14.9.2009 11:37
Danske Bank: Kreppunni er lokið í Danmörku Hagfræðideild Danske Bank telur að kreppunni sé lokið í Danmörku. Deildin býst við miklum hagvexti í alþjóðlega hagkerfinu næstu sex til níu mánuði. Í Danmörku gerir deildin ráð fyrir töluverðum hagvexti á næstu ársfjórðungum. Viðskipti erlent 14.9.2009 10:19
Yfir 50 milljarða skuld eins og snara um háls Unibrew Skuldir sem nema yfir 2 milljörðum danskra kr. eða yfir 50 milljörðum kr. eru eins og snara um háls Royal Unibrew, næststærstu bruggverksmiðja Danmerkur. Forstjórinn Henrik Brandt segir að það sé forgangsatriði í rekstrinum að draga úr þessum skuldum. Viðskipti erlent 14.9.2009 09:55
Segja björgunarpakkann hafa skapað yfir milljón störf Starfsmenn Hvíta hússins í Washington fullyrða að björgunarpakkinn sem Bandaríkjaþing samþykkti fyrr á árinu hafi nú þegar skapað 1,1 milljón ný störf í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 13.9.2009 08:00
Heildarfjöldi gjaldþrota banka nálgast eitt hundrað Regluverðir í Bandaríkjunum lokuðu þremur bönkum þar í landi í gær, en alls hafa 92 bankar orðið gjaldþrota í Bandaríkjunum það sem af er ári. Bankarnir eru staðsettir Illinois, Minnesota og Washington. Viðskipti erlent 12.9.2009 17:33
Obama beitir sér gegn kínverskum dekkjum Ráðamenn í Washington tilkynntu í gær um hækkun tolla á innflutt dekk frá Kína. Fá dæmi eru fyrir því að Bandaríkjamenn beiti fyrir sér sérstökum verndartollum til að vernda innlendra framleiðslu gegn kínverskri samkeppni. Viðskipti erlent 12.9.2009 15:51
Lufthansa: Flugliðar í þjóðbúninga og leðurhosur Þýska flugfélagið Lufthansa ætlar að halda upp á Októberhátíðina í 30.000 fetum. Í tilefni hennar munu flugliðar Lufthansa kasta búningum sínum og klæðast í þess stað suðurbæverska þjóðbúningum „dirndl" eða leðurhosum eftir því hvers kyns flugliðarnir eru. Viðskipti erlent 11.9.2009 14:06
Ellibylgjan: Yfir 40.000 Japanir eru 100 ára eða eldri Meðalaldur japönsku þjóðarinnar fer nú ört hækkandi og eru yfir 40.000 Japanir orðnir 100 ára og eldri. Hefur þessum aldurshópi fjölgað um 10% á einu ári. Viðskipti erlent 11.9.2009 13:08
Dýrasti hundur sögunnar keyptur á 70 milljónir Hundur af tíbetsku kyni með nafnið Yangtze Fljótið Númer Tvö hefur verið seldur konu í Shaanxi héraði í Kína fyrir rúmar 70 milljónir kr. Er hann því dýrasti hundur sögunnar. Viðskipti erlent 11.9.2009 11:31
Auðugustu Danirnir hafa tapað 4.000 milljörðum Fimmtíu auðugustu fjölskyldur og einstaklingar í Danmörku hafa tapað tæpum 170 milljörðum danskra kr. eða um 4.000 milljörðum kr. á einu ári. Verst hefur árið verið fyrir Mærsk fjölskylduna sem hefur tapað hátt í þriðjungi heildarupphæðarinnar. Viðskipti erlent 11.9.2009 09:08
Klámhundur selur svikin kreditkort á netinu Vefsíðan MitMaster í Danmörku býður upp á Mastercard kreditkort með heimild upp á 600.000 kr. og þarf aðeins að greiða rúmar 20.000 kr. fyrir herlegheitin. En síðan er svik og þekktir svikahrappar standa á bakvið hana, þar á meðal klámmyndaframleiðandi sem áður hefur komist í sviðsljós danskra fjölmiðla. Viðskipti erlent 10.9.2009 15:32
Viðskiptafélagi Exista í lögreglurannsókn á Bretlandi Efnahagsbrotadeild lögreglunnar á Bretlandi (Serious Fraud Office) hefur hafið rannsókn á starfsháttum íþróttavöruverslunnarkeðjunnar JJB Sports meðan keðjan var undir stjórn Chris Ronnie. Ronnie er fyrrum viðskiptafélagi Exista í Bretlandi en um tíma áttu hann og Exista tæplega 30% hlut saman í JJB Sports. Viðskipti erlent 10.9.2009 14:24
Atvinnurekendur í Evrópu aðeins hóflega bjartsýnir Þrátt fyrir að vísbendingar séu farnar að sjást í Evrópu um að kreppunni þar kunni brátt að ljúka eru evrópskir atvinnurekendur aðeins hóflega bjartsýnir á framtíðina. Áætlað er að efnahagur landa ESB dragist saman að meðaltali um 3,9% á þessu ári og hagvöxtur verði aðeins 0,7% á því næsta. Viðskipti erlent 10.9.2009 11:59
Danskir bankamenn aðstoða skuldsetta í sjálfboðavinnu Danskir bankamenn munu aðstoða skuldsetta Dani við að koma skikki á fjármál sín í sjálfboðavinnu og viðkomandi að kostnaðarlausu. Verkefni þetta fer af stað um miðjan þennan mánuð og munu 36 starfandi bankamenn standa að ráðgjöfinni í þremur borgum Danmerkur. Viðskipti erlent 10.9.2009 10:17
Þúsundir Dana á höggstokknum vegna skulda Fjöldi þeirra Dana sem lendir í vanskilum með lánin sín vex hröðum skrefum og samkvæmt könnun munu um 150.000 Daanir verða komnir á vanskilaskrá fyrir áramótin. Í augnablikinu eru þeir um 125.000. Viðskipti erlent 10.9.2009 08:44
House of Fraser skilar góðum hagnaði Tískuvöruverslunarkeðjan House of Fraser skilaði góðum hagnaði á fyrri helmingi ársins eða 16% meiri hagnaði en á sama tímabili í fyrra. Þá hefur keðjan náð að minnka skuldir sínar á tímabilinu um 21 milljón punda eða ríflega 4 milljarða kr. Viðskipti erlent 9.9.2009 15:51
T-Rex eðlan Samson sett á uppboð Reiknað er með að beinagrind af Tyrannosaurus Rex eðlu muni fara á tæpar 5 milljónir dollara eða rúmlega 600 milljónir kr. á uppboði í Las Vegas í næsta mánuði. Viðskipti erlent 9.9.2009 14:06
Kínverjar hafa áhyggjur af peningaprentun vestan hafs Kínverjar hafa miklar áhyggjur af peningaprentun Bandaríkjamanna. Sameinuðu þjóðirnar telja að draga verði úr vægi Bandaríkjadals í heimsviðskiptunum. Viðskipti erlent 9.9.2009 12:22
Danskir bankar fyrir utan FIH fá högg frá Moody's Lánshæfisfyrirtækið Moody' s lækkaði lánshæfiseinkunnir og mat á fjárhagslegum styrk til lengri tíma hjá fjölda af dönskum bönkum í morgun. Athygli vekur að FIH bankinn, sem nú er í eigu íslenska ríkisins, heldur sinni einkunn í Baa3 með stöðugum langtímahorfum. Viðskipti erlent 9.9.2009 08:38
Hlutir í Royal Unibrew hækka um 500% frá botnverðinu Hlutir í dönsku bruggverðsmiðjunum Royal Unibrew hafa hækkað um tæp 500% frá því að botninum á verðinu var náð í mars s.l. Þeir eiga þó töluvert í land með að ná hámarkinu um mitt ár 2007 þegar hluturinn komst í 785 kr. danskar. Viðskipti erlent 8.9.2009 13:36
Ein fegursta ofursnekkja heims er til sölu Hin rúmlega 100 metra langa ofursnekkja Corsair Nero er án efa ein sú fegursta í heimi. Hún er núna til sölu og verðmiðinn hljóðar upp á 105 milljónir dollara eða rúmlega 13 milljarða kr. Viðskipti erlent 8.9.2009 13:14
KPMG hættir störfum fyrir dótturfélag Baugs í Danmörku Endurskoðendafyrirtækið KPMG hefur hætt störfum fyrir BG Denmark, dótturfélag Baugs þar í landi, skömmu áður en birta á ársreikninga félagsins. Viðskiptablaðið Börsen greinir frá þessu í dag og segir jafnframt að þetta dótturfélag geti orðið bitbein í uppgjörinu á þrotabúi Baugs. Viðskipti erlent 8.9.2009 08:50