Viðskipti erlent
314 315 316 317 318 319 320 321 322 … 334 ›
Íslensk hjón í Noregi framleiða harðfiskflögur Íslensku hjónin Kristín Hafsteinsdóttir og Kristjón Bergmundsson á Sommaröy í Noregi hafa þróað og framleitt stökkar og örþunnar harðfiskflögur sem hvorki molna né lykta. Viðskipti erlent 20.3.2009 12:37
Evrópski seðlabankinn byggir upp risavaxinn varasjóð Evrópski seðlabankinn (ECB) er nú að byggja upp risavaxinn varasjóð sem hægt verður að greiða úr milljarða evra á innan 24 klukkustunda ef þörf er á. Viðskipti erlent 20.3.2009 11:24
Starfsmenn Wal-Mart fá 228 milljarða í bónusgreiðslur Vöruhúsakeðjan Wal-Mart í Bandaríkjunum hefur ákveðið að greiða 2 milljarða dollara eða 228 milljarða kr. í bónusgreiðslur sem skiptast jafnt milli allra starfsmanna keðjunnar. Viðskipti erlent 20.3.2009 10:54
Sænsk greifynja vill milljarða frá manni sínum í skilnaðarmáli Sænska greifynjan Marie Douglas-David hefur krafið eiginmann sinn um milljarð sænskra kr. eða um 14 milljarða kr. í skilnaðarmáli þeirra til þess að geta haldið lífsstíl sínum óbreyttum að hjónabandinu loknu. Viðskipti erlent 20.3.2009 10:11
Tekur fimm ár að gera upp starfsemi Straums í Danmörku Oscar Crohn forstjóri Straums í Danmörku telur að það taki um fimm ár að gera starfsemi bankans upp þar í landi og ganga frá öllum lausum endum. Viðskipti erlent 20.3.2009 09:20
Singer tekur við tæplega 40 starfsmönnum Teathers Reiknað er með að samruni Singer Capital Markets og verðbréfamiðlunarinnar Teathers verði tilkynntur síðar í dag. Singer mun taka við 35 til 40 starfsmönnum Teathers við samrunann eða um helmingi starfsmanna. Viðskipti erlent 20.3.2009 09:09
Bréf lækkuðu í Asíu Hlutabréf á mörkuðum í Asíu féllu í verði í morgun eftir mestu samfelldu hækkun síðan í ágúst 2007. Bankar og hátæknifyrirtæki lækkuðu mest og má sem dæmi nefna að kínverska fjarskiptafyrirtækið China Mobile lækkaði um rúmlega fjögur prósent. Eitthvað var þó um að bréf hækkuðu í verði, til dæmis bréf námufyrirtækisins Billington en þau hækkuðu um þrjú prósent. Viðskipti erlent 20.3.2009 07:26
Kaupþing yfirtekur hlut Stanfords í Mulberry Kaupþing banki í Lúxemborg, dótturfyrirtæki Kaupþings á Íslandi, hefur tekið yfir 25,4% hlut Kevin Stanford í töskufyrirtækinu Mulberry. Viðskipti erlent 19.3.2009 18:02
Ál og aðrir málmar í uppsveiflu á mörkuðum Ál og aðrir málmar hafa verið í töluverðri uppsveiflu á mörkuðum í dag. Viðskipti erlent 19.3.2009 15:12
Nakin skortsala ein ástæðan fyrir gjaldþroti Lehman Brothers Hugsanlega hefði verið hægt að koma í veg fyrir stærsta bankagjaldþrot sögunnar ef að miðlurum á Wall Strret hefði verið bannað að nota umdeildasta vopnið í búri sínu, nakta skortsölu. Viðskipti erlent 19.3.2009 13:02
Teathers bjargað af fyrrum félagi Kaupþings í London Nýr eigandi að verðbréfamiðluninni Teathers verður að öllum líkindum Singer Capital Markets, félag sem var fyrrum í eigu Kaupþings, það er Singer & Friedlander bankans í London. Reiknað er með tilkynningu um málið í dag eða á morgun. Viðskipti erlent 19.3.2009 10:57
Norska krónan gjaldeyrisskjól í stað dollarans og frankans Töluverð umræða er nú um það að norska krónan muni í náinni framtíð taka við af dollaranum, svissneska frankanum og japanska jeninu sem helsta gjaldeyrisskjól heimsins. Viðskipti erlent 19.3.2009 10:32
Markaðsvirði Unibrew minnkaði um 65% á þremur vikum Markaðsvirði Royal Unibrew, næststærstu bruggverksmiðju Danmerkur, hefur lækkað um 65% á s.l. þremur vikum eða frá því að Unibrew birti ársuppgjör sitt þann 25. Febrúar. Stoðir eru einn stærsti hluthafinn í Royal Unibrew með 25% hlut. Viðskipti erlent 19.3.2009 10:01
Asíubréf hækka áfram Hlutabréf á mörkuðum í Asíu halda enn áfram að hækka og í morgun voru það bréf banka og námafyrirtækja sem mest stökk tóku. Ákvörðun bandaríska seðlabankans, sem kynnt var í gær, um að kaupa skuldabréf fyrir um þúsund milljarða dollara, meðal annars húsnæðisveðbréf, vakti bjartsýni meðal fjárfesta í Bandaríkjunum sem teygði sig til markaða víða um heim. Viðskipti erlent 19.3.2009 07:15
Kreppuráð japanskra kvenna eru giftingar Þegar Yumiko Iwate starfsmaður póstverslunar í Tókýó varð fyrir launalækkun á síðasta ári voru hún og vinkonur hennar sammála að eina leiðin út úr vandanum væri að finna eiginmann. Viðskipti erlent 18.3.2009 13:09
French Connection tapaði 2,7 milljörðum í fyrra Verslanakeðjan French Connection sem Baugur á 20% hlut í tapaði 17,4 milljónum punda fyrir skatt eða rúmlega 2,7 milljörðum kr. Árið 2007 varð hinsvegar 3,1 milljón punda hagnaður af rekstrinum. Viðskipti erlent 18.3.2009 11:24
IBM í viðræðum um kaup á Sun Microsystems Wall Street Journal greinir frá því í dag að IBM sé í viðræðum um að kaupa Sun Microsystems fyrir 6,5 milljarða dollara eða rúmlega 700 milljarða kr. Viðskipti erlent 18.3.2009 10:01
Hlutabréf í Rio Tinto lækka um 9% vegna óvissu Hlutabréf í álrisanum Rio Tinto hafa fallið um tæp 9% í morgun vegna óvissu um 19,5 milljarða dollara aðkomu kínverska félagsins Chinalco í eigendahóp Rio Tinto. Talið er að áströlsk stjórnvöld ætli sér að koma í veg fyrir kaup Kínverjanna. Rio Tinto er eigandi álversins í Straumsvík. Viðskipti erlent 18.3.2009 09:58
Heimsmarkaðsverð á olíu yfir 50 dollara á tunnuna Seint í gærkvöldi fór heimsmarkaðsverð á olíu yfir táknræn mörk er það fór yfir 50 dollara á tunnuna á markaðinum í New York. Þetta var 3,9% hækkun á olíuverðinu yfir daginn. Viðskipti erlent 18.3.2009 08:59
HVB Group afskrifar 75 milljarða vegna taps á íslensku bönkunum HVB Group, sem er dótturbanki UniCredit í Þýskalandi, hefur sett tæplega 500 milljónir evra eða um 75 milljarða kr. inn á afskriftareikning vegna fyrirsjáanlegs taps á lánum til íslensku bankanna. Viðskipti erlent 18.3.2009 08:52
Seðlabanki Japans kaupir fleiri skuldabréf Hlutabréf á asískum mörkuðum halda áfram að hækka í verði og hafa nú gert það fjóra daga í röð. Mest varð hækkunin hjá fjármálafyrirtækjum í morgun eftir að seðlabanki Japans lýsti því yfir að hann hygðist halda áfram að kaupa ríkisskuldabréf af viðskiptabönkunum til að glæða útlánastarfsemi þeirra. Viðskipti erlent 18.3.2009 07:26
Írar munu kjósa Róm fremur en Reykjavík „Margir stjórnmálaspekingar segja að næsti valkostur Írlands muni verða Róm eða Reykjavík,“ segir Brian Lenihan fjármálaráðherra Írlands í samtali við Bloomberg-fréttaveituna. „Flestir munu greiða Róm atkvæði sitt.“ Viðskipti erlent 17.3.2009 14:50
Skipta átti Kaupþingi í Lúxemborg í tvö félög Samkvæmt þeirri áætlun sem lá fyrir um framtíð Kaupþings í Lúxemborg var ætlunin að skipta bankanum upp í tvö félög undir nöfnunum New Bank og Securitization Company. Viðskipti erlent 17.3.2009 13:38
Fjármálaráðherra Lúxemborgar beitir sér í þágu Kaupþings Stjórnendur Kaupþings í Lúxemborg reyna nú allt hvað þeir geta til að varna því að bankinn fari í þrot eftir að lánadrottnar höfnuðu áætlun um endurskipulagningu. Fjármálaráðherra Lúxemborgar hyggst beita sér í málinu. Viðskipti erlent 17.3.2009 12:08
Nokia segir upp tæplega 2.000 manns Finnski farsímarisinn Nokia ætlar að segja upp tæplega 2.000 manns á næstunni. Er þetta gert í hagræðingar- og sparnaðarskyni. Viðskipti erlent 17.3.2009 11:23
Hlutir í Debenhams falla eftir slæmt uppgjör Hálfsársuppgjör Debenhams var verra en menn gerðu sér vonir um en það nær til síðustu mánaðarmóta. Sökum þessa féllu hlutir í Debenhams um 12% í morgun, niður í 40,5 pens. Viðskipti erlent 17.3.2009 10:59
Óvíst hvaða áhrif gjaldþrot Baugs hefur á Saks Óvíst er hvaða áhrif gjaldþrot Baugs hefur á Saks verslunarkeðjuna í Bandaríkjunum en Baugur á 8,5% í Saks. Viðskipti erlent 17.3.2009 09:17
Bréf í Asíu hækkuðu þriðja daginn í röð Hlutabréf á mörkuðum í Asíu hækkuðu í verði þriðja viðskiptadaginn í röð sem er lengsta samfellda hækkunartímabil í sjö vikur. Bréf nokkurra banka hafa hækkað þar sem lækkaður útlánakostnaður þeirra hefur bætt afkomutölur með þeim hætti að síður þarf að afskrifa skuldir þegar lántakendur hafa betri tök á að standa í skilum. Viðskipti erlent 17.3.2009 07:20
Vill koma í veg fyrir bónusgreiðslur AIG Barack Obama forseti Bandaríkjanna hefur látið íljós reiði sína á 165 milljóna dollara bónusgreiðslunum sem yfirmenn AIG tryggingarrisans hafa fengið greidda, en fyrirtækinu var bjargað af ríkinu frá gjaldþroti. Viðskipti erlent 16.3.2009 21:24
Hlutir í SAS hækka gífurlega – greinendur eru gáttaðir Hlutir í SAS á mörkuðum á Norðurlöndunum hafa hækkað gífurlega í dag eða á bilinu 30 til 50%. Greinendur eru gáttaðir á þessari þróun enda ekkert í kortunum sem styður þessar hækkanir. Viðskipti erlent 16.3.2009 15:42