Viðskipti erlent
318 319 320 321 322 323 324 325 326 … 334 ›
Öll Norðurlöndin, nema Noregur, komin í kreppu Öll Norðurlöndin, nema Noregur, eru nú komin í kreppu og það af dýpri gerðinni. Einna verst er ástandið í Svíþjóð, ef Ísland er undanskilið, en landsframleiðslan þar á fjórða ársfjórðungi síðasta árs hefur ekki minnkað jafnmikið síðan skráning hennar hófst. Viðskipti erlent 27.2.2009 14:15
Ekkert lát á útþenslu McDonald´s í kreppunni Ekkert lát er á útþenslu McDonald´s hamborgarakeðjunnar í kreppunni. Nú hefur McDonald´s greint frá því að þeir ætla að opna 40 nýja hamborgarastaði í Rússlandi á þessu ári. Viðskipti erlent 27.2.2009 12:59
Risavaxin fjárhagsaðstoð til ríkja Austur Evrópu Alþjóðabankinn, evrópski fjárfestingabankinn og evrópski þróunarbankinn munu samtals veita 25 milljörðum evra, eða um 3.600 milljörðum kr. til að hjálpa fyrirtækjum og bönkum Austur-Evrópu að reisa sig við. Viðskipti erlent 27.2.2009 12:31
Facebook aftur undir árás frá tölvuþrjótum Í annað sinn á einni viku hafa tölvuþrjótar látið til skarar skríða gegn Facebook notendum. Í þetta sinn er árásin þannig að notandi fær skilaboð um að „vinur“ hans hafi kært hann fyrir að brjóta gegn notendareglum vefsíðunnar. Viðskipti erlent 27.2.2009 11:31
Asíubréf á uppleið Hlutabréf hækkuðu í verði á mörkuðum í Asíu í morgun og reis Nikkei-vísitalan í Japan um 1,5 prósent. Fréttir af líklegu samkomulagi milli bandaríska bankarisans Citigroup og þarlendra stjórnvalda, um enn frekari neyðaraðstoð bankanum til handa, eru taldar líklegasta orsök hækkunarinnar en japanskir útflytjendur á borð við Toyota treysta mjög á Bandaríkjamarkað þar sem stór hluti framleiðslunnar er seldur. Viðskipti erlent 27.2.2009 07:33
Auðir skýjakljúfar í farvatni hrunsins á Wall Street Allar líkur eru á að stærstu bankar og fjármálastofnanir í New York muni yfirgefa skrifstofuhúsnæði í skýjakljúfum borgarinnar svo nemur milljónum fermetra í ár. Borgin býr sig undir verstu dýfu á fasteignamarkaði sínum í yfir áratug. Viðskipti erlent 26.2.2009 15:26
Auknar líkur á gull- og wolframvinnslu á Grænlandi Nýjar rannsóknir á vegum NunaMinerals á Grænlandi gefa auknar líkur og vonir á því að finna þar gull og wolfram í vinnanlegu magni. Viðskipti erlent 26.2.2009 14:35
Hlutabréf í Royal Unibrew féllu um 20% í morgun Hlutabréf í Royal Unibrew féllu um 20% í morgun í kauphöllinni í Kaupmannahöfn. Unibrew sem eru næststærstu bruggverksmiðjur Danmerkur skiluðu slæmu ársuppgjöri í morgun en tapið á síðasta ári nam tæpum 10 milljörðum kr.. Viðskipti erlent 26.2.2009 13:28
Dýrasta listasafn í einkaeigu selt Uppboð á listaverkum sem voru í eigu tískuhönnuðarins Yves Saint Laurent sem lést á síðasta ári sló öll met. Aldrei hefur listasafn í einkaeigu verið selt fyrir viðlíka upphæð. Viðskipti erlent 26.2.2009 11:00
Tuttugu Danir verða atvinnulausir á hverjum klukkutíma Atvinnuleysi eykst nú svo hratt í Danmörku að um tuttugu Danir missa nú vinnu sína á hverjum klukkutíma sólarhingsins eða að jafnaði einn á þriðju hverju mínútu. Viðskipti erlent 26.2.2009 10:47
Kaupþing óskar eftir gjaldþrotaskiptum á dönsku félagi Kaupþing hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum hjá danska fasteigna- og vindmyllufélaginu Eurotrust. Verður beiðnin tekin fyrir hjá skiptaréttinum í Kolding á mánudaginn kemur. Viðskipti erlent 26.2.2009 10:08
Skosk athafnakona kaupir Blooming Marvellous Verslunarkeðjan Blooming Marvellous hefur verið seld til skosku athafnakonunnar Elaine McPherson. Keðjan sem verslar með föt og vörur fyrir sængurkonur og nýbura var í eigu Kcaj fjárfestingarfélagsins sem aftur er að mestu í eigu Milestone. Viðskipti erlent 26.2.2009 09:50
RBS skilar mesta tapi í sögu Bretlandseyja Royal Bank of Scotland (RBS) tapaði 40 milljörðum punda á síðasta ári fyrir skatta og er þetta mesta einstaka tap fyrirtækis á Bretlandseyjum í sögunni. Viðskipti erlent 26.2.2009 09:00
Royal Unibrew tapaði 10 milljörðum kr. Dönsku bruggverksmiðjurnar Royal Unibrew töpuðu 483 milljónum danskra kr. á síðasta ári eða tæpum 10 milljörðum kr.. Stoðir eru einn stærsti hluthafinn í Royal Unibrew með 25% hlut. Viðskipti erlent 26.2.2009 08:31
Tækni- og símafyrirtæki lækka í Asíu Asísk hlutabréf lækkuðu í verði í morgun og voru það bréf tækni- og símafyrirtækja sem mest lækkuðu. Einnig hríðféllu bréf japanska lyfjaframleiðandans Daiichi Sankyo eftir að bandaríska lyfjaeftirlitið samþykkti ekki innihaldslýsingar nokkurra lyfja sem fyrirtækið framleiðir og þriðji stærsti járnútflytjandi Ástralíu, Fortescue Metals, lækkaði um 9,5 prósent eftir að hluti bréfa þess var seldur með töluverðum afslætti. Viðskipti erlent 26.2.2009 07:06
Gjaldþrotabeiðnir vegna einstaklinga hafa þrefaldast Fjöldi gjaldþrotabeiðna á hendur einstaklinga hefur þrefaldast milli áranna 2007 og 2008. Beiðnirnar voru 18 talsins árið 2007 en voru 46 talsins í fyrra. Viðskipti erlent 25.2.2009 16:23
Mosaic Fashions tapaði 8,6 milljörðum kr. í fyrra Tap Mosaic Fashions í Bretlandi eftir skatta nam 53,6 milljónum punda eða sem nemur tæplega 8,6 milljörðum kr. í fyrra. Til samanburðar má geta að tapið árið 207 nam 6,6 milljónum punda eða um 1,1 milljörðum kr.. Viðskipti erlent 25.2.2009 16:06
Fékk 130 milljarða kr. inn á bankareikning sinn vegna mistaka Það hlýtur að vera draumur allra í fjárhagskreppunni að fá óvænt tæpa 130 milljarða kr. setta inn á bankareikninginn sinn. Það gerðist hjá hinni sænsku Corneliu Johansson sem fékk þessa upphæð setta inn á reikning sinn hjá Nordea bankanum. Viðskipti erlent 25.2.2009 14:24
Bretadrottning beðin um hjálp við Landsbankaskuldir Fólk á eyjunni Jersey sem töpuðu miklu fé á hruni Landsbankans hafa beðið Elísabetu Bretadrottningu um hjálp við að ná innistæðum sínum út úr útibúi Landsbankans á Guernsey. Viðskipti erlent 25.2.2009 11:27
Marks & Spencer mótmæla hvalveiðum Íslendinga Ein stærsta verslunarkeðja Bretlands, Mars & Spencer mótmælir fyrirhuguðum hvalveiðum Íslendinga. Ætlar Marks & Spencer að senda svipað bréf og verslunarkeðjan Waitrose til íslenskra stjórnvalda þar sem afstaða verslunarkeðjunnar verður útskýrð. Viðskipti erlent 25.2.2009 09:45
Glitnir skóp fyrsta tap hjá Eksportfinans í 47 ár Norska fjármálafyrirtækið Eksportfinans skilaði tapi á síðasta ári, hinu fyrsta í 47 ár eða síðan 1962 er fyrirtækið var stofnað. Gjaldþrot Glitnis er orsök tapsins sem hljóðar upp á 508 milljónir norskra kr. eða vel yfir 9 milljarða kr.. Viðskipti erlent 25.2.2009 09:10
Hækkun í Asíu Hlutabréf í Asíu hækkuðu í verði í morgun eftir töluverða lækkun undanfarið en veiking japanska jensins hefur gert útflytjendum lífið auðveldara. Til dæmis hækkuðu bréf bílaframleiðandans Toyota um tæp fjögur prósent en meira en þriðjungur Toyota-bíla fer á markað í Bandaríkjunum. Fjárfestir í Sydney í Ástralíu segir hlutabréfaeigendur öruggari með sig nú en fyrr í vikunni. Þó sé ólíklegt að hækkunin sé til langframa. Viðskipti erlent 25.2.2009 07:21
Bernanke stappaði stáli í fjárfesta Ben Bernanke, seðlabankastjóri í Bandaríkjunum sagði í fulltrúadeild Bandaríkjaþings nú í kvöld að kreppan gæti tekið enda á þessu ári og að eftirlitsaðilar væru ekki á þeim skónum að þjóðnýta bankana. Viðskipti erlent 24.2.2009 21:50
Stórlækkun bréfa í Asíu Ekki var glæsilegt um að lítast á Asíumörkuðum í morgun, þar féllu hlutabréf í verði líkt og í Bandaríkjunum og hefur Asíuvísitala Morgan Stanley ekki staðið lægra síðan haustið 2003. Til dæmis féllu bréf stærsta olíuframleiðanda Kína um tæp fimm prósent og í Ástralíu féll tryggingarisinn Suncorp-Metway um sex prósent. Viðskipti erlent 24.2.2009 07:37
Hlutabréf snarféllu á Wall Street Bandaríska hlutabréfavísitalan Dow Jones lækkaði um 3,4 prósent í gær og hefur ekki verið lægri í tæplega 12 ár. NASDAQ-vísitalan féll einnig og nam lækkun hennar 3,7 prósentum. Viðskipti erlent 24.2.2009 07:35
Eignast líklegast Citigroup Bandaríska ríkið mun að öllum líkindum eignast þjóðnýtta bandaríska fjármálafyrirtækið Citigroup. Fyrirtækið fékk um 3000 milljarða íslenskra króna í neyðaraðstoð á síðasta ári sem dugði ekki til og stendur það nú á brauðfótum. Viðskipti erlent 23.2.2009 12:29
Hlutabréf hækkuðu í Asíu Hlutabréf á mörkuðum í Asíu og Bandaríkjunum hækkuðu í verði í kjölfar væntinga um að bandaríska ríkið auki við hlut sinn í bankarisanum Citigroup sem það keypti 20 milljarða dollara hlut í á síðasta ári til að verja bankann falli. Viðskipti erlent 23.2.2009 07:17
Bankastjóri refsar sér fyrir mistökin Stjórnarformaður bankans Bradford & Bingley í Bretlandi, Richard Pym, hefur ákveðið að borga sér ekki bónusa eins og tíðkast oft hjá stórfyrirtækjum. Þar með lækkar herra Pym launin sín um 750 þúsund pundum niður í 350 þúsund pund. Þá hefur hann einnig stytt uppsagnarfrestinn sinn úr tveimur árum niður í einn dag. Að eigin sögn; svo að hann verði ekki verðlaunaður fyrir að mistakast. Viðskipti erlent 21.2.2009 10:01
Bandaríska gengishrunið sprengir netbólumúrinn Helstu hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum eru lægri nú en þegar verst lét eftir netbóluna um síðustu aldamót og hryðjuverkaárásirnar á Tvíburaturnana 11. september 2001. Viðskipti erlent 20.2.2009 22:36
Bandaríkjastjórn vill ekki þjóðnýta bankana Stjórnvöld í Washington sendu skýr skilaboð í dag um að ekki stæði til að þjóðnýta tvo af stærstu bönkum Bandaríkjanna þrátt fyrir að hlutabréf í þeim hríðfélli. Sögusagnir á Wall Street um að bankarnir yrðu þjóðnýttir leiddi til þess að helstu hlutabréfavísitölur lækkuðu í dag. Þar óttast fjárfestar að Viðskipti erlent 20.2.2009 22:19