Viðskipti erlent
320 321 322 323 324 325 326 327 328 … 334 ›
Bréf lækka í Asíu Hlutabréf á mörkuðum í Asíu lækkuðu í verði í morgun og hafa helstu hlutabréfavísitölur álfunnar ekki tekið lægri stöðu í þrjár vikur. Til dæmis féll stærsta líftryggingafyrirtæki Japans um 10 prósent og stórfyrirtæki sem framleiðir minniskubba í tölvur lækkaði í verði um tæp níu prósent. Lækkunin er að miklu leyti rakin til svartrar skýrslu japanskra stjórnvalda um samdrátt í efnahagslífi þjóðarinnar sem hefur ekki verið meiri í á fjórða áratug. Viðskipti erlent 17.2.2009 07:18
Gjaldþrot Sterling kostar Kaastrup 1400 milljónir króna Gjaldþrot lággjaldaflugfélagsins Sterling hefur áhrif á afkomu Kaastrup flugvallar í Kaupmannahöfn. Hrun félagsins kostar flugvöllinn um 70 milljónir danskra króna sem er um 1400 milljónir íslenskra. Þetta kemur fram í frétt hins danska Börsens í dag. Viðskipti erlent 16.2.2009 21:35
Mosaic Fashions í samningum við Kaupþing um frekari lán Mosaic Fashions á nú í samningaviðræðum við skilanefnd Kaupþings um frekari lán til félagsins til að halda verslunarkeðjum þess gangandi meðan að unnið er að endurskipulagningu og eða sölu þeirra. Viðskipti erlent 16.2.2009 16:27
Heimsmarkaðsverð á áli í 1.600 dollara fyrir árslok Dan Smith greinandi hjá Standard Chartered spáir því að heimsmarkaðsverð á áli fari í 1.600 dollara á tonnið á fjórða ársfjórðungi ársins. Verðið í dag liggur í kringum 1.370 dollara. Viðskipti erlent 16.2.2009 16:12
Michael Moore gerir mynd um fjármálakreppuna Hinn umdeildi leikstjóri Michael Moore ætlar að gera kvikmynd um fjármálakreppuna. Hann kallar kreppuna stærsta svindl í sögu Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 16.2.2009 11:04
Jane bjargaði Whistles undan greiðslustöðvun Baugs Jane Shepherdson, viðskiptafélagi Baugs í Bretlandi, náði að bjarga Whistles verslunarkeðjunni undan greiðslustöðvun Baugs í Bretlandi á síðustu stundu. Viðskipti erlent 16.2.2009 09:56
Eitraður kokteill ógnar Royal Unibrew Árið í ár verður mjög erfitt fyrir næststærstu bruggverksmiðjur Danmerkur, Royal Unibrew. Unibrew glímur nú við skuldir upp á 2 milljarða danskra kr. eða tæplega 40 milljarða kr. Stoðir eru með stærstu eigendum Unibrew með 25% hlut. Viðskipti erlent 16.2.2009 09:43
Ålandsbanken gengur frá kaupunum á Kaupþingi í Svíþjóð Gengið hefur verið frá kaupum Ålandsbanken á Kaupþingi í Svíþjóð. Kaupverðið er 414 milljónir sænskra kr. eða um 5,7 milljarðar kr. og var það greitt út í hönd. Viðskipti erlent 16.2.2009 09:13
Mesti samdráttur síðan 1974 í Japan Asísk hlutabréf féllu í verði í morgun, einkum bréf fjármálafyrirtækja, eftir að ljóst varð að samdrátturinn, sem nú fer um japanskt efnahagslíf, er sá mesti síðan árið 1974 auk þess sem hópur sérfræðinga gaf það út að ekki væri útlit fyrir að neitt rofaði til að minnsta kosti út árið 2009. Viðskipti erlent 16.2.2009 07:30
Toyota dregur úr starfsemi í Bandaríkjunum Japanski bílaframleiðandinn Toyota neyðist til að draga úr starfsemi sinni í Bandaríkjunum. Nýverið var tilkynnt að laun starfsmanna í Bandaríkjunum yrðu lækkuð, vinnutími styttur, yfirvinna bönnuð og að engin framleiðsla verði í nokkra daga í apríl. Viðskipti erlent 15.2.2009 15:21
Tchenguiz í vandræðum með hótelkeðju Menzies-hótelkeðjan, sem er í eigu íranska Íslandsvinarins Robert Tchenguiz, rambar nú á barmi gjaldþrots. Hótelkeðjan þarf að endursemja um lán sín eftir að hafa brotið lánaskilmála. Þetta kemur fram í The Sunday Times í dag. Viðskipti erlent 15.2.2009 08:33
Bankarnir best komnir í höndum einkaaðila Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, segir að bönkum og öðrum fjármálastofnunum sé best komið í höndum einkaaðila. Darling var spurður um málið á blaðamannfundi í tengslum við fund fjármálaráðherra sjö helstu iðnríkja heims funda í Róm á Ítalíu, en orðrómur hefur verið upp um að LLoyds bankinn verði þjóðnýttur. Bankinn tapaði allt að 8,5 milljörðum punda á seinasta ári. Darling sagði jafnframt ekki stæði til að funda með forystumönnum bankans um helgina. Viðskipti erlent 14.2.2009 15:19
Samþykktu 90 þúsund milljarða fjárveitingu Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í dag björgunarpakka fyrir efnahagslífið að upphæð 787 milljarða Bandaríkjadala, eða 90 þúsund milljarðar króna, sem Barack Obama lagði fram. Obama segir að þetta sé einungis upphafið af tilraunum hans til að ná tökum á efnahagslífinu. Viðskipti erlent 13.2.2009 20:27
Kaupþing og Baugur gætu lent í stærstu útsölu heimsins Lloyds bankinn breski gæti reynt að selja annars flokks hlutabréfasafn (secondary private equity) sitt í því sem Financial Times kallar stærstu slíka útsölu í heimi. Viðskipti erlent 13.2.2009 17:03
easyjet hagnast á gjaldþroti Sterling Eins dauði er annars brauð gildir í flugbransanum eins og annarsstaðar. Nú hefur easyjet ákveðið að hefja áætlunarferðir milli Gatwick og Kaupmannahafnar en Sterling flaug þessa leið áður en félagið varð gjaldþrota. Viðskipti erlent 13.2.2009 16:24
Íhuga lögreglurannsókn á íslensku bönkunum í Bretlandi Efnahagsbrotadeild lögreglunnar í Bretlandi (Serious Fraud Office) er nú að íhuga rannsókn á starfsemi Kaupþings og Landsbankans þar í landi. Fram kemur á Timesonline að deildin byrjaði rannsókn á dótturfélagi AIG Í Bretlandi í gær og að Kaupþing og Landsbankinn gætu verið næst á listanum. Viðskipti erlent 13.2.2009 12:34
Íslandsferðir lánuðu 250 milljónir kr. til eigenda fyrir gjaldþrot Ferðaskrifstofan Íslandsferðir sem starfrækt var í Noregi lánaði 15 milljónir norskra kr., eða um 250 milljónir kr. til félaga sem stjórnað er af eigendum Íslandsferða skömmu áður en ferðaskrifstofan varð gjaldþrota nú fyrir jólin. Viðskipti erlent 13.2.2009 11:48
Forstjóraskipti í bresku kauphöllinni Frakkinn Xavier Rolet, fyrrum framkvæmdastjóri bandaríska Lehman Brothers í Frakklandi, mun setjast í forstjórastól bresku kauphallarinnar í Lundúnum (e. London Stock Exchange) um miðjan næsta mánuð. Viðskipti erlent 13.2.2009 09:08
Kaupþing og bankar framlengja aftur lán til JJB Sports Kaupþing, HBOS og Barclays hafa ákveðið að framlengja lánum sínum til íþróttavörukeðjunnar JJB Sports. Íslenska ríkið er nú einn stærsti hluthafi JJB Sports eftir að Kaupþing leysti til sín tæplega 30% hlut Exista og Chris Ronnie nýlega með veðkalli. Viðskipti erlent 13.2.2009 08:49
Toyota í Bandaríkjunum lækkar launin Lækkuð laun, styttur vinnutími og engin framleiðsla í nokkra daga í apríl er sá veruleiki sem blasir við starfsmönnum Toyota í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 13.2.2009 07:26
Hækkun á Asíumörkuðum Hlutabréf á Asíumörkuðum hækkuðu í verði í morgun í fyrsta sinn í fimm daga og hækkuðu bréf banka og raftæknifyrirtækja mest. Viðskipti erlent 13.2.2009 07:18
Væru í sporum Íslendinga án evru Írland væri í sporum Íslands ef ekki væri fyrir aðild að evrunni, hefur Irish Times eftir José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Viðskipti erlent 13.2.2009 04:45
Markaðir réttu sig við í Bandaríkjunum Helstu hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum réttu sig við eftir fall eftir að markaðir opnuðu. Hlutabréfamarkaður tók dýfu eftir að atvinnuleysistölur voru birtar í dag þrátt fyrir almennt ágætar niðurstöður um eins prósents veltuaukningu í smásölugeiranum á milli mánaða í janúar. Atvinnuleysi hefur ekki mælst meira vestanhafs í sextán ár. Viðskipti erlent 12.2.2009 22:14
Atvinnuleysi ekki meira vestanhafs í 16 ár Atvinnuleysi jókst verulega í Bandaríkjunum í janúar og mælist nú 7,6 prósent. Niðurstaðan er talsvert umfram svartsýnustu spár enda hefur atvinnuleysi ekki verið meira vestanhafs í sextán ár. Viðskipti erlent 12.2.2009 14:18
Írland er ekki Ísland Írland væri í sporum Íslands ef ekki væri fyrir aðild að evrunni. Þetta segir José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í samtali við Irish Times. Viðskipti erlent 12.2.2009 13:07
Atvinnuleysi nær áður óþekktum hæðum í vor Atvinnuleysi eykst nú hröðum skrefum og er útlit fyrir að það nái áður óþekktum hæðum á vordögum, að því er segir í Morgunkorni greiningar Glitnis. Viðskipti erlent 12.2.2009 12:26
Segist ekki halda verslunarkeðjum Baugs til eilífðar Tony Lomas, stjórnandi hjá PricewaterhouseCoopers (PwC) segir að það sé ekki ætlunin að halda verslunarkeðjum Baugs til eilífðar. Þær verði seldar um leið og markaðsaðstæður batni enda vilji kröfuhafar fá fé í hendur fremur en eignarhluti. Viðskipti erlent 12.2.2009 12:11
Landsbankasvindlið á Spáni teygir sig til Cote d´Azur Landsbankasvindlið á Spáni teygir nú anga sína yfir Cote d´Azur leikvöll þeirra frægu og ríku í suðurhluta Frakklands. Fjallar er um málið á vefsíðunni euroweekly.com. Viðskipti erlent 12.2.2009 11:25
Bréf í Asíu lækka Hlutabréf á Asíumörkuðum féllu í verði í morgun, fjórða daginn í röð, og stafar lækkunin af efasemdum fjárfesta um að ný björgunaráætlun Bandaríkjastjórnar nægi til að draga þarlent efnahagslíf á flot aftur. Viðskipti erlent 12.2.2009 07:27
Líklegt að Englandsbanki færi vexti undir 1 prósent Líklegt þykir að Englandsbanki muni lækka stýrivexti niður fyrir eitt prósent í viðleitni sinni til að draga úr áhrifum efnahagskreppunnar þar í landi. Viðskipti erlent 12.2.2009 07:19