Viðskipti innlent
181 182 183 184 185 186 187 188 189 … 334 ›
Teatime í þrot og öllum sagt upp Sextán starfsmönnum íslenska tölvuleikjafyrirtækisins Teatime hefur verið sagt upp störfum og verður starfsemi þess hætt. Langar viðræður um viðbótarfjármögnun eða hugsanlega sölu fyrirtækisins sigldu nýlega í strand. Viðskipti innlent 23.2.2021 12:53
Einar Geir Jónsson tekur við sprotafyrirtækinu Unimaze Einar Geir Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri íslenska sprotafyrirtækisins Unimaze og tekur við starfinu af Markúsi Guðmundssyni, stofnanda fyrirtækisins. Markús mun áfram leiða hugbúnaðarþróun sem tæknistjóri Unimaze. Viðskipti innlent 23.2.2021 12:26
Sjálfstæðisfólk hlynntast sölu Íslandsbanka en sósíalistar andvígastir Ríflega fjórir af hverjum tíu eru andvígir sölu á Íslandsbanka samkvæmt könnun Maskínu fyrir fréttastofu Stöðvar 2. Rúmlega fjórðungur er hlynntur henni. Viðskipti innlent 22.2.2021 23:03
Þarf að greiða 35 milljóna sekt fyrir stórfelld skattsvik Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í sjö mánaða fangelsi og greiðslu 35 milljóna króna sektar fyrir stórfelld skattsvik og peningaþvætti. Viðskipti innlent 22.2.2021 13:33
Selja húsnæðið sem hýsti Hlemm Square Húsnæðið á Laugavegi 105, sem áður hýsti Hlemm Square, hefur verið auglýst til sölu. Þar mátti lengi finna gistiheimili, hótelherbergi, veitingahús og bar en Hlemmur Square hætti rekstri í nóvember síðastliðnum. Viðskipti innlent 22.2.2021 12:26
Seðlabankastjóri sannfærður um að Ísland komist bratt upp úr Covid-kreppunni Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri Íslands fagnar auknu trausti í mælingum sem farið hefur úr 31 prósenti 2019 í 62 prósent nú. Viðskipti innlent 22.2.2021 12:12
Rúrik Gíslason leiðir knattspyrnuumfjöllun Viaplay Rúrik Gíslason, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, mun leiða knattspyrnuumfjöllun streymisveitunnar Viaplay á Íslandi frá tímabilinu 2021/2022. Viðskipti innlent 22.2.2021 09:12
„Glannaleg umræða“ um eigið fé bankanna Umræða um eigið fé bankanna er á köflum mjög glannaleg að mati Gylfa Magnússonar hagfræðiprófessors. Þá telur hann vert að spyrja að því hvort rétt sé að selja hlut ríkisins í Íslandsbanka þegar tortryggni ríkir gagnvart því í samfélaginu. Viðskipti innlent 21.2.2021 13:00
Meta umfjöllun um Ísland á 5,5 milljarða króna Rúmlega 1.800 greinar og fréttir sem eiga uppruna í samskiptum erlendra aðila við Íslandsstofu hafa birtust í erlendum fjölmiðlum í fyrra. Verðmæti þessarar umfjöllunar er 5,5 milljarðar króna, samkvæmt reikningum Íslandsstofu. Viðskipti innlent 21.2.2021 09:13
Býst við að Síldarvinnslan verði skráð í Kauphöll í maí Forstjóri Síldarvinnslunar býst við að félagið verði skráð í Kauphöllina í maí. Ekki verða gefin út ný hlutabréf heldur ætli stærstu eigendur að selja af sínum hlutum við skráningu í félaginu. Viðskipti innlent 20.2.2021 13:31
Stefnt á skráningu Síldarvinnslunnar í Kauphöllina Forsvarsmenn Síldarvinnslunnar í Neskaupstað tilkynntu fyrir fáeinum dögum þá ákvörðun sína að hefja skráningu félagsins í Kauphöll. Gangi allur undirbúningur eftir er stefnt að skráningu á fyrri helmingi þessa árs. Þetta kemur fram á vef Fiskifrétta. Viðskipti innlent 20.2.2021 09:59
Fékk nóg af fátæktargildrunni og stofnaði stærsta umræðuhóp um fjármál á Íslandi Sædís Anna Jónsdóttir var rétt rúmlega tvítug þegar hún var komin í miklar fjárhagslegar ógöngur og kveið fyrir framtíðinni. Skuldirnar fóru stigvaxandi, reikningarnir söfnuðust upp og fyrsta barnið var á leiðinni. Henni hefur síðan tekist að gjörbreyta fjárhagsstöðu sinni með aga, hagsýni og samviskusemi og stofnaði í leiðinni einn stærsta umræðuvettvang um fjármál á Íslandi. Viðskipti innlent 20.2.2021 08:01
Ráðin sérfræðingar hjá Expectus Ráðgjafa- og hugbúnaðarfyrirtækið Expectus hefur ráðið til sín þrjá sérfræðinga, þau Jón Brynjar Björnsson, Stein Arnar Kjartansson og Þórdísi Björk Arnardóttur. Viðskipti innlent 19.2.2021 14:24
Ætla að skattleggja erlenda miðla og veitur Stefnt er að því að leggja fram frumvarp á þessu þingi sem snýr að skattlagningu á erlendar efnisveitur sem ráða orðið lögum og lofum hér á landi sem víðar. Viðskipti innlent 19.2.2021 13:00
Ráðin til að leiða sögu- og tæknisýningu Orkuveitunnar Birna Bragadóttir hefur verið ráðin til þess að leiða sögu- og tæknisýningu Orkuveitu Reykjavíkur sem opna mun í Elliðaárdal undir merkjum Elliðaárstöðvar síðar á árinu. Alls sóttu 170 manns um stöðuna. Viðskipti innlent 19.2.2021 11:19
Heildareignir LIVE rúmlega þúsund milljarðar Heildareignir Lífeyrissjóðs verzlunarmanna námu 1.013 milljörðum króna um áramót og jukust þær um 145 milljarða króna á árinu. Þar af námu fjárfestingatekjur 130 milljörðum króna. Viðskipti innlent 19.2.2021 09:53
Eignast helmingshlut í Hringrás og HP Gámum Samkomulag hefur náðst um að TFII framtakssjóður eignist helmingshlut í Hringrás og HP Gámum. Viðskipti innlent 19.2.2021 07:44
Atvinnuleysi „eitur í beinum Íslendinga“ Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir hlutfallslegt vægi ferðaþjónustu hér á landi skýra að vissu marki hvers vegna atvinnuleysi er hærra hér á landi en á Norðurlöndunum. Allar spár geri þó ráð fyrir því að greinin nái vopnum sínum fljótt aftur þegar kórónuveirufaraldrinum lýkur, sem komi til með að hafa jákvæð áhrif á atvinnustig í landinu. Viðskipti innlent 18.2.2021 23:04
Finnst gott að finna loðnulyktina og að fólkið fái meira útborgað Hrognafylling loðnunnar sem komin er á land í Vestmannaeyjum er orðin nægilega mikil fyrir Japansmarkað, sem stóreykur verðmæti hennar. Í Eyjum er slegist um að komast á loðnuvertíðina. Viðskipti innlent 18.2.2021 21:55
Íslandsbanki verður viðskiptavaki hlutabréfa Arion banka Arion banki hefur undirritað nýjan samning við Íslandsbanka um að Íslandsbanki gegni hlutverki viðskiptavaka á hlutabréfum útgefnum af Arion banka sem skráð eru í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka. Viðskipti innlent 18.2.2021 19:10
Ásthildur Margrét hættir í stjórn Marel Ásthildur Margrét Otharsdóttir, stjórnarformaður Marel, ætlar ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn fyrirtækisins. Viðskipti innlent 18.2.2021 14:58
Verka ekki bara saltfiskinn heldur djúpsteikja og setja hann á pizzu Á Hauganesi við Eyjafjörð hefur fiskvinnsla verið að þróast yfir í ferðaþjónustu í kringum saltfisk. Fiskverkunin Ektafiskur er komin eins langt í fullvinnsluna og hugsast getur. Saltfiskurinn er eldaður ofan í viðskiptavini og borinn fram á diskum á veitingastaðnum Baccalá Bar. Viðskipti innlent 18.2.2021 11:03
Dæmdir í fangelsi og greiðslu alls 211 milljóna króna sektar fyrir stórfelld skattsvik Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt tvo menn – framkvæmdastjóra og bókara einkahlutafélags sem var með flutningaþjónustu og rekstur sendibíla – í fangelsi og greiðslu alls 211 milljóna króna sektar fyrir stórfelld skattsvik. Viðskipti innlent 18.2.2021 09:39
Vilja breytingar vegna skorts á innlendum konudagsblómum Íslenskum garðyrkjubændum hefur reynst erfitt að anna eftirspurn eftir blómum að undanförnu og eru dæmi um að blómaverslanir hafi einungis fengið hluta af pöntunum sínum afhenta í aðdraganda Valentínusardagsins og konudagsins sem er næsta sunnudag. Viðskipti innlent 17.2.2021 23:57
Reynir Bjarni tekur við sem framkvæmdastjóri hjá Valitor Reynir Bjarni Egilsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Útgáfulausna hjá Valitor en á sama tíma sameinuðust deildirnar Útgáfulausnir og Útgáfuvinnsla undir nafni þeirrar fyrrgreindu. Viðskipti innlent 17.2.2021 17:27
Tekjur tvöfölduðust á kórónuveiruárinu Tekjur netöryggisfyrirtækisins AwareGo rúmlega tvöfölduðust frá árinu 2019 til 2020. Fyrirtækið þakkar vöxtinn að mestu stórum langtímasamningum við erlend fyrirtæki og endursöluaðila sem hlaupi á milljónum dollara, hundruðum milljóna króna. Framkvæmdastjóri AwareGo segir vöxt fyrirtækisins undanfarin tvö ár hafa verið ævintýralegan. Viðskipti innlent 17.2.2021 16:25
Suðurverk bauð lægst í þverun Þorskafjarðar Suðurverk hf. í Kópavogi átti lægsta boð í þverun Þorskafjarðar en tilboð voru opnuð í gær. Þetta er eitt stærsta verk sem Vegagerðin býður út í ár en tilboð Suðurverks hljóðaði upp á 2.237 milljónir króna. Það reyndist 158 milljónum, eða 7,6 prósentum, yfir kostnaðaráætlun upp á 2.078 milljónir króna. Viðskipti innlent 17.2.2021 09:32
Framtíð ferðaþjónustunnar: Þorgerður Katrín fer yfir stöðu og horfur Á næstu vikum munu Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til sín leiðtogum og fulltrúum stjórnmálaflokkanna til að ræða um stöðu og horfur í ferðaþjónustu. Í fyrsta þættinum, sem hefst klukkan 9:15, verður rætt við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formann Viðreisnar. Viðskipti innlent 17.2.2021 08:45
Um 150 manns mættu á opið hús 140 til 150 manns mættu til að skoða einbýlishús í Hafnarfirði nýlega á opnu húsi. Húsið seldist síðan á 8% yfir ásettu verði. Davíð Ólafsson, löggiltur fasteignasali hjá fasteignasölunni Borg sem sá um söluna á húsinu, segir þetta til marks um skort á íbúðarhúsnæði. Viðskipti innlent 17.2.2021 08:27
Saksóknari fann fleiri milljónir Zuism-bræðra í Bandaríkjunum Héraðssaksóknari hefur gert þá kröfu að fleiri eignir Einars Ágústssonar, annars fyrirsvarsmanna trúfélagsins Zuism, verði gerðar upptækar. Um er að ræða allar eignir Einars á reikningum hjá breska verðbréfafyrirtækinu Interactive Brokers í London. Um er að ræða samanlagt rúmlega 16 þúsund dollara eða andvirði rúmlega tveggja milljóna íslenskra króna. Viðskipti innlent 17.2.2021 06:16