Viðskipti innlent
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 334 ›
Snúrunni lokað fyrir fullt og allt Hönnunarverslunin Snúran kveður íslenska fagurkerabransann innan tíðar en tíu ár eru síðan verslunin opnaði. Eigandi Snúrunnar kveðst ætla að snúa sér að öðru. Viðskipti innlent 3.11.2024 20:24
Misboðið hvernig staðið var að uppsögnum hjá nýjum eiganda Einn þriggja starfsmanna Ömmu músar sem sagt var upp störfum á miðvikudag segir að nýir eigendur hefðu getað staðið að uppsögnum með mun sómasamlegri hætti. Nýleg heimsókn með starfsmennina í höfuðstöðvarnar hafi orðið til þess að uppsögnina kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Forstjóri Icewear skilur tilfinningar starfsfólks og lofar nýrri og betri Ömmu mús. Viðskipti innlent 1.11.2024 15:17
Engin tilkynning um hópuppsögn í október Engin tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í liðnum októbermánuði. Viðskipti innlent 1.11.2024 13:59
Horyn nýr forstjóri kísilverksmiðjunnar á Bakka Kísilverksmiðja PCC á Bakka hefur ráðið Tomasz Jan Horyn sem forstjóra fyrirtækisins. Horyn, sem var áður rekstrarstjóri verksmiðjunnar, tekur við af Gesti Péturssyni sem lætur af störfum um áramótin til þess að stýra nýrri Umhverfis- og orkustofnun. Viðskipti innlent 1.11.2024 10:50
Breytt skipurit og nýir stjórnendur hjá Sýn Nýtt skipurit Sýnar tekur við á morgun og taka tveir nýir stjórnendur sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Guðmundur H. Björnsson mun leiða nýtt svið upplifunar viðskiptavina og Gunnar Sigurjónsson mun taka við sviði upplýsingatækni af Gunnari Guðjónssyni. Viðskipti innlent 31.10.2024 20:11
Viðræðum slitið um samruna Samkaupa, Heimkaupa og Orkunnar Viðræðum Samkaupa og Skeljar fasteignarfélags um samruna Samkaupa og dótturfélaga Skeljar, Heimkaupa og Orkunnar, hefur verið slitið. Áhyggjur af yfirstandandi rannsókn ESA á Skel hafi haft áhrif á slitin. Viðskipti innlent 30.10.2024 18:24
Hagnaður Arion banka eykst um tæpa tvo milljarða Hagnaður Arion banka á þriðja ársfjórðungi var 7,9 milljarðar króna, sambanborið við 6,1 milljarð á sama tímabili í fyrra. „Núverandi vaxtaumhverfi er þess valdandi að við erum varfærin í okkar niðurfærslum,“ segir bankastjórinn um sögulega háa verðtryggða vexti. Viðskipti innlent 30.10.2024 17:05
Auknar líkur á annarri vaxtalækkun Fjármála- og efnahagsráðuneytið telur hjöðnun verbólgu, umfram það sem Seðlabankinn spáði í ágúst, auka líkur á því að bankinn lækki vexti við ákvörðun í nóvember. Hjöðnunin var drifin áfram af minni hækkun húsnæðis og segir ráðuneytið segir að spenna á húsnæðismarkaði virðist loks fara minnkandi. Viðskipti innlent 30.10.2024 16:32
Bein útsending: Haustfundur Landsvirkjunar Haustfundur Landsvirkjunar fer fram á Hótel Selfossi milli klukkan 13 og 15 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilara að neðan. Viðskipti innlent 30.10.2024 12:32
Ráðnir forstöðumenn hjá OK Upplýsingatæknifyrirtækið OK hefur ráðið þrjá nýja forstöðumenn á svið skýja- og rekstrarþjónustu. Þetta eru þeir Karl Óskar Kristbjarnarson, Kristján Aðalsteinsson og Þorvaldur Finnbogason. Viðskipti innlent 30.10.2024 11:26
Reikna með tæplega þrjátíu milljarða minni fjárfestingu í Carbfix Fjárfesting í kolefnisförgunarfyrirtækinu Carbfix verður tæplega þrjátíu milljörðum krónum lægri en áður var reiknað með samkvæmt nýrri fjárhagsspá Orkuveitunnar. Förgunarmiðstöð í Hafnarfirði verður nær alfarið fjármögnuð með nýju hlutafé en viðræður við erlendan fjárfesti eru sagðar ganga vel. Viðskipti innlent 30.10.2024 11:07
Verðbólga hjaðnar en kílómetragjaldið verður tekið inn í mælingu Verðbólga hjaðnar um 0,3 prósentustig milli mánaða og mælist nú 5,1 prósent. Hagstofan mun taka nýtt kílómetragjald inn í vísitöluna en yrði það ekki gert myndi mæld verðbólga hjaðna enn frekar. Viðskipti innlent 30.10.2024 09:06
Ragnar, Pálmar og Haraldur til Verna Ragnar Árnason, Pálmar Gíslason og Haraldur Gunnarsson hafa verið ráðnir til tryggingatæknifélagsins Verna. Viðskipti innlent 29.10.2024 23:48
Skellt í lás í Sambíóinu í Keflavík í kvöld Sambíóinu í Keflavík var lokað í kvöld. Kvikmyndahúsið er fyrsta Sambíóið og var byggt árið 1941 af Eyjólfi Ásberg. Guðný Ásberg Alfreðsdóttir rekstrarstjóri kvikmyndahússins segir þetta sorgleg tímamót en að aðsóknin hafi verið orðin dræm. Eyjólfur var langalangafi hennar. Viðskipti innlent 29.10.2024 23:06
Samkeppniseftirlitið í sáttaviðræðum við Festi Samkeppniseftirlitið hefur fallist á að hefja sáttaviðræður við Festi hf. vegna ætlaðra brota félagsins á samkeppnislögum vegna samruna við Hlekk ehf. sem hét áður Festi hf. Rannsóknin nær samkvæmt tilkynningu aftur til ársins 2018. Viðskipti innlent 29.10.2024 18:31
Hlutdeildarlán dugðu fyrir 61 íbúð Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur lokið mati á umsóknum sem bárust um hlutdeildarlán í október og samþykkt umsóknir til kaupa á 61 íbúð. Heildarfjárhæð lánanna nam 796,5 milljónum króna, en 800 milljónir króna voru til úthlutunar í mánuðinum. Umframeftirspurn nam rúmum milljarði. Viðskipti innlent 28.10.2024 11:00
97 brautskráðust frá HR 97 nemendur útskrifuðust frá Háskólanum í Reykjavík í Norðurljósum í Hörpu á laugardag. Fimm nemendur luku doktorsprófi frá HR að þessu sinni, allir frá tölvunarfræðideild. Viðskipti innlent 28.10.2024 10:58
Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta Gengi bréfa í Play féll um tæp þrettán prósent í dag og verð á bréfum í félaginu er nú 0,82 krónur á hlut. Sú var staðan þegar lokað var fyrir viðskipti með bréf í Kauphöllinni á fjórða tímanum í dag. Í gær birti félagið uppgjör þar sem kom fram að hagnaður á þriðja ársfjórðungi hefði dregist saman um þriðjung milli ára. Forstjóri félagsins kynnti grundvallarbreytingar á rekstrarmódeli félagsins á fundi í gær. Viðskipti innlent 25.10.2024 16:45
Furðulegt að gjaldtaka taki ekki mið af styrkleika Lögfræðingur hjá Félagi atvinnurekenda furðar sig á því að fyrirhuguð gjaldtaka á nikótínvörur fari eftir þyngd pakkninga en ekki styrkleika. Breytingin sé ekki til þess fallin að efla lýðheilsu. Fjáraukalög voru til umræðu á Alþingi í dag. Viðskipti innlent 24.10.2024 20:01
Fjögur erlend fyrirtæki keppa um rekstur Fríhafnarinnar Fjögur erlend fyrirtæki keppast um að fá rekstur Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli í sínar hendur og er reiknað með niðurstöðu í útboði fyrir áramót. Núverandi innviðaráðherra styður útboðið en fyrrverandi innviðaráðherra var alfarið á móti þessum áætlunum. Viðskipti innlent 24.10.2024 19:31
Hagnaður dróst saman um þriðjung og skoða hlutafjáraukningu Flugfélagið Play hagnaðist um hálfan milljarð króna á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Á sama tíma í fyrra hagnaðist félagið um 724 milljónir króna. Félagið skoðar nú að ráðast í hlutafjáraukningu og eftir atvikum sækja fjármögnun í tengslum við nýtt flugrekstrarleyfi. Viðskipti innlent 24.10.2024 16:32
Bein útsending: Kynna afkomuna og fara nánar yfir breytingarnar Flugfélagið Play boðar til fundar í Sykursalnum í Vatnsmýrinni þar sem afkoma þriðja ársfjórðungs verður kynnt. Þá verður farið nánar yfir þegar tilkynntar grundvallarbreytingar sem til stendur að gera á rekstrarmódeli félagsins. Sýnt verður frá fundinum hér á Vísi. Viðskipti innlent 24.10.2024 15:34
Breki áfram formaður Breki Karlsson verður áfram formaður Neytendasamtakanna en hann var einn í kjöri til formanns á aðalfundi samtakanna sem fram fór síðasta þriðjudag. Hann var því sjálfkjörinn formaður til næstu tveggja ára. Viðskipti innlent 24.10.2024 14:59
Bjarmi sest í stjórnina og Trausti tekur við Trausti Árnason tekur um mánaðamótin við starfi framkvæmdastjóra hjá Vélfagi ehf. Trausti lætur af störfum hjá Controlant sem forstöðumaður vörusviðs. Bjarmi Sigurgarðarsson lætur af störfum sem framkvæmdastjóri og tekur sæti í stjórn Vélfags. Viðskipti innlent 24.10.2024 13:40
Tekur við formennsku í hugverkaráði Samtaka iðnaðarins Ingvar Hjálmarsson, framkvæmdastjóri Nox Medical, hefur tekið við sem formaður Hugverkaráðs Samtaka iðnaðarins. Viðskipti innlent 24.10.2024 13:22
Framkvæmdir hafnar við Búrfellslund Framkvæmdir hófust í gær við gerð fyrsta vindorkuvers landsins. Búrfellslundur eða Vaðölduver verður á sautján ferkílómetra svæði í kringum Vaðöldu í Rangárþingi ytra. Viðskipti innlent 24.10.2024 11:26
Nikótínpúðar gætu hækkað um 300 kall með nýju gjaldi Nýtt gjald á nikótínpúða sem lagt er til að taki gildi á næsta ári gæti hækkað verð á hverri dós um þrjú hundruð krónur. Takmarkanir á aðgengi að nikótínvörunum eru sagðar hafa skilað litlum árangri í að draga úr neyslu barna og ungmenna á þeim. Viðskipti innlent 24.10.2024 11:08
Ætla að sækja einn og hálfan milljarð frá skemmtiferðaskipum Nýtt innviðagjald sem heimta á af erlendum skemmtiferðaskipum á að skila ríkissjóði 1,5 milljörðum króna umfram þær tekjur sem hann hefði annars fengið. Tilgangurinn er sagður að jafna samkeppnisstöðu innlendra og erlendra ferðaþjónustufyrirtækja. Viðskipti innlent 24.10.2024 10:45
Vaxtatekjur Íslandsbanka drógust saman milli ára Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,3 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2024. Hagnaðurinn á sama tímabili í fyrra var sex milljarðar króna. Hreinar vaxtatekjur námu 11,8 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2024 og lækkuðu um 69 milljónir króna frá fyrra ári. Viðskipti innlent 23.10.2024 16:29
Fjögur félög Bergvins gjaldþrota Þann fjórtánda október voru fjórir gjaldþrotaúrskurðir kveðnir upp í Héraðsdómi Suðurlands. Öll félögin fjögur eru í eigu Bergvins Oddsonar, veitingamanns og fyrrverandi formanns Blindrafélags Íslands, eða eiginkonu hans. Viðskipti innlent 23.10.2024 14:18