Viðskipti
156 157 158 159 160 161 162 163 164 … 334 ›
Hörður hættir í Macland Hörður Ágústsson, einn stofnenda fyrirtækisins Macland, hefur ákveðið að hætta hjá fyrirtækinu. Hann segir viðskilnaðinn ljúfsáran en tímabært hafi verið að breyta til. Næstu mánuði mun hann vinna að verkefni með rafskútu- og deilibílaleigunni Hopp. Viðskipti innlent 26.9.2022 22:59
Forstjóri OR hyggst láta af störfum Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, hyggst láta af störfum frá og með 1. mars á næsta ári. Ný stjórn tekur senn við taumunum hjá Orkuveitunni. Viðskipti innlent 26.9.2022 21:01
Fær endurgreitt þrátt fyrir andlitsfarða á peysunni Kona hafði betur gegn fyrirtæki í máli sem kærunefnd vöru- og þjónustukaupa tók fyrir í síðustu viku. Deilumálið var hvort andlitsfarðaklessa hefði komið fyrir eða eftir að peysu var skilað aftur til verslunarinnar. Neytendur 26.9.2022 17:39
Deilur vegna Taívan og höft vegna Covid ýti Apple í átt að Indlandi Tæknirisinn Apple hefur hafið tilfærslu framleiðslu sinnar frá Kína til Indlands en iPhone 14, nýjasta gerð snjallsíma Apple er nú framleiddur á Indlandi. Hluti ástæðunnar er talinn vera aukin togstreita á milli Bandaríkjanna og Kína vegna Taívan. Viðskipti erlent 26.9.2022 16:51
Þórunn Oddný nýr skrifstofustjóri hjá forstjóra Landspítala Þórunn Oddný Steinsdóttir tekur við af Önnu Sigrúnu Baldursdóttur sem skrifstofustjóri á skrifstofu forstjóra hjá Landspítalanum. Þórunn er lögfræðingur og hefur starfað sem staðgengill skrifstofustjóra og settur skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu. Viðskipti innlent 26.9.2022 16:12
Hjörtur frá Amazon til Lucinity Hjörtur Líndal Stefánsson hefur verið ráðinn yfirmaður tækni- og hugbúnaðarþróunar (CTO) hjá sprotafyrirtækinu Lucinity. Hann snýr nú aftur til Íslands eftir að hafa starfað í Bandaríkjunum hjá tæknirisanum Amazon síðustu átta ár. Viðskipti innlent 26.9.2022 13:27
Vörukarfan lækkar í helmingi verslana Vörukarfa ASÍ hækkaði í fjórum af átta matvöruverslunum og lækkaði í fjórum verslunum á fjögurra mánaða tímabili, frá byrjun maí til byrjun september. Neytendur 26.9.2022 13:02
Pundið ekki verið veikara gegn dal í fimmtíu ár Sterlingspundið hefur hríðfallið gagnvart Bandaríkjadalnum og hefur ekki verið lægra í fimmtíu ár. Fjármálaráðherra Bretlands hefur boðað skattaívilnanir og 45 milljarða punda aðgerðarpakka. Stjórnarandstaðan kallar eftir svörum frá ríkisstjórninni um hvernig bregðast eigi við en hagfræðingar segja ríkisstjórnina við það að missa allan trúverðugleika. Viðskipti erlent 26.9.2022 09:18
Árni Pétur til 50skills Árni Pétur Gunnsteinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá hugbúnaðarfyrirtækinu 50skills. Viðskipti innlent 26.9.2022 08:11
Útivistarkonan sem byrjar daginn á hugleiðslu í rúminu eða í baðinu Bára Mjöll Þórðardóttir, meðeigandi hjá Langbrók, byrjaði fyrir stuttu í jákvæðri sálfræði í EHÍ og segir það bestu ákvörðun sem hún hefur tekið um ævina. Bára er nátthrafn í svefnátaki sem finnst gott að hefja daginn með hugleiðslu. Atvinnulíf 24.9.2022 10:00
Nýr stigabíll gjörbreyti öllu fyrir slökkviliðið Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar fékk afhentan nýjan stigabíl í dag. Bíllinn kemst í 42 metra hæð. Þjálfunarstjóri slökkviliðsins segir aðra stigabíla á landinu töluvert lægri. Viðskipti innlent 24.9.2022 08:01
Boða til nýs hluthafafundar í október Stjórn Sýnar hefur boðað til hluthafafundar sem haldinn varður fimmtudaginn 20. október næstkomandi. Viðskipti innlent 23.9.2022 11:14
Apple slær ekki feilnótu með iPhone 14 Apple leggur sig sífellt fram við að bæta viðmót og upplifun notanda og eru nýju símarnir iPhone 14 og 14 Pro stútfullir af frábærum eiginleikum. Meðal annars eru þeir búnir bestu rafhlöðuendingu sem sést hefur í iPhone, háþróuðu tvöföldu myndavélakerfi og árekstrarskynjara með sjálfvirku neyðarboði. Í boði eru fimm fallegir litir eins og ljósgull, ljósblár og svarblár. Samstarf 23.9.2022 08:56
Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Daníel Friðriksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum ehf. Viðskipti innlent 23.9.2022 08:38
Himinháar sektir fyrir lygar um 737 MAX Bandaríska verðbréfaeftirlitið hefur sektað bandaríska flugvélaframleiðandann Boeing um 200 milljónir dollara, tæpa þrjátíu milljarði króna, fyrir að veita fjárfestum sínum rangar upplýsingar um öryggisvandamál Boeing 737 MAX vélarinnar. Fyrrum forstjórinn þarf einnig að greiða rúmar 140 milljónir króna í sekt. Viðskipti erlent 23.9.2022 07:04
Starfsánægja: Vandinn vex þegar „hveitibrauðsdögunum“ er lokið Flestir starfsmenn eru ánægðir í starfinu sínu og það á þá helst við um smærri fyrirtæki. Sambandið við yfirmanninn skiptir mestu máli þegar spurt er um starfsánægju og margir vinnustaðir eiga erfitt með að halda starfsfólki ánægðu eftir að nýjabrumið í nýju starfi er farið. Atvinnulíf 23.9.2022 07:00
Bruggstofa og bjórbúð í húsi bindindismanna Hús bindindissamtakanna I.O.G.T. sem hýsti vinabæ í Skipholtinu var selt snemma á þessu ári. Í húsnæðinu mun nú opna bruggstofa og bjórbúð RVK bruggfélags. Viðskipti innlent 22.9.2022 18:23
Brim kaupir aukinn kvóta og nýtt skip Brim hf. hefur gengið frá samkomulagi við Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. um kaup á félaginu RE 27 ehf. en eignir þess eru frystitogarinn Sólborg RE og veiðiheimildir. Markmið viðskiptanna er sagt vera að efla uppsjávarsvið Brims og styrkja uppsjávarvinnslu félagsins á Vopnafirði. Viðskipti innlent 22.9.2022 14:31
Bein útsending: Tengjum ríkið – stafræn framtíð hins opinbera Ráðstefna um stafræna framtíð hins opinbera fer fram í Hörpu í dag. Ráðstefnan hefst klukkan 12:30 og stendur til klukkan 17 í og verður hægt að fylgjast með henni í beinu streymi hér á Vísi. Viðskipti innlent 22.9.2022 12:00
Stýrivextir ekki hærri í Bretlandi frá 2008 Seðlabanki Bretlands hefur hækkað stýrivexti um 0,5 prósent og standa vextirnir nú í 2,5 prósentum og hafa ekki verið hærri síðan árið 2008. Um er að ræða sjöundu stýrivaxtahækkun bankans í röð en sérfræðingar höfðu spáð allt að 0,75 prósenta hækkun. Viðskipti erlent 22.9.2022 11:45
Reiknar með höggi verði Google Analytics bannað Bann á notkun vefvöktunarforritsins Google Analytics yrði högg fyrir atvinnulífið, að sögn birtingaráðgjafa hjá Aton/JL. Komi til banns væri það sérstakt áhyggjuefni fyrir fyrirtæki sem reiða sig á vefsölu. Viðskipti innlent 22.9.2022 11:35
Twitch bannar fjárhættuspilastreymi Frá og með 18. október næstkomandi munu notendur streymissíðunnar Twitch ekki geta streymt frá því þegar þeir stunda fjárhættuspil á netinu, nema að vefsíðan sem þeir nota sé skráð í Bandaríkjunum. Fjárhættuspilastreymi hafa aukist gríðarlega í vinsældum upp á síðkastið. Viðskipti erlent 22.9.2022 11:23
Ragnhildur áfram rektor HR Ný stjórn Háskólans í Reykjavík hefur framlengt ráðningarsamning Ragnhildar Helgadóttur rektors til ársins 2026. Ragnhildur tók við stöðunni af Ara Kristni Jónssyni árið 2021, en hann hafði þá verið rektor í ellefu ár. Ragnhildur gerði upphaflega samning til eins árs, sem hefur nú verið framlengdur. Viðskipti innlent 22.9.2022 11:02
Jón fjárfestir í HPP Solutions og verður stjórnarformaður Jón Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Össurar, hefur tekið við sem stjórnarformaður HPP Solutions ehf. samhliða kaupum á eignarhlut í félaginu. Jón lét af störfum hjá stoðtækjaframleiðandanum Össuri þann 1. apríl á þessu ári eftir 26 ár sem forstjóri. Viðskipti innlent 22.9.2022 09:24
Bein útsending: Sjálfbærnidagur Landsbankans Sjálfbærnidagur Landsbankans fer fram í Grósku í dag. Aðalfyrirlesari verður Tjeerd Krumpelman frá ABN AMRO-bankanum í Hollandi og mun hann fjalla um sjálfbærni fyrirtækja. Fundurinn hefst klukkan níu. Viðskipti innlent 22.9.2022 08:32
Umhverfisvænn byggingariðnaður: „Það má segja að ferillinn sé frá vöggu til grafar“ „Það er á hreinu að kröfurnar verði meiri á næstu árum. Í Danmörku er til dæmis verið að setja í lög að hafa lífsferilsgreiningar á öllum nýbyggingum frá og með 1. janúar 2023 og bara tímaspursmál hvenær það verður komið í reglugerðir hér á landi,“ segir Emilía Borgþórsdóttir sérfræðingur umhverfismála hjá Húsasmiðjunni. Atvinnulíf 22.9.2022 07:01
Stýrivextir ekki verið hærri í Bandaríkjunum síðan í kreppunni 2008 Seðlabanki Bandaríkjanna hækkaði stýrivexti í dag um 0,75 prósentustig í tilraun til að berja niður verðbólguna sem herjar í landinu. Viðskipti erlent 21.9.2022 18:40
Taka við störfum vöruflokkastjóra og fræðslustjóra Hagkaups Ólöf Sara Árnadóttir hefur verið ráðin nýr vöruflokkastjóri Hagkaups og Ingibjörg Karlsdóttir nýr fræðslustjóri. Viðskipti innlent 21.9.2022 14:12
Útgerð Stefnis hætt og þrettán manns sagt upp Hraðfrystihúsið – Gunnvör hf. (H-G hf.) hefur ákveðið að hætta útgerð ísfisktogarans Stefnis ÍS 28 vegna samdráttar í úthlutuðu aflamarki þorsks. Þrettán manna áhöfn Stefnis verður sagt upp frá og með áramótum. Viðskipti innlent 21.9.2022 12:35
Breyta nafni hótelkeðju Icelandair og Flugleiða Nafnabreytingu á Flugleiðahótelum hf. og keðju Icelandair Hótela er lokið, en nýir eigendur félagsins, Berjaya Land Berhard (Berjaya), gerðu samkomulag við fyrri eigendur, Icelandair Group, um að láta af notkun vörumerkis þess síðarnefnda að lokinni sölu hótelfélagsins. Viðskipti innlent 21.9.2022 11:50