Skoðun

Losað um völdin

Hafliði Helgason skrifar
Þau tímamót hafa orðið í sögu Háskólasjóðs Eimskipafélagsins að hann mun nú verða venjulegur sjóður sem styrkir starf háskólans til framtíðar. Sjóðurinn óx og dafnaði um langt skeið, en arðurinn af honum varð eftir innan Eimskipafélagsins. Arður sem greiddur var út fór að hluta til Háskóla Íslands, en afgangurinn var notaður til þess að kaupa fleiri bréf í Eimkskipafélaginu.

Þeir sem njóta sjóðsins nú þurfa í sjálfu sér ekkert að kvarta undan ávöxtuninni. Verðmæti sjóðsins er á þriðja milljarð króna og til framtíðar er gert ráð fyrir að hann geti greitt út um 100 milljónir króna árlega til rannsóknartengds framhaldsnáms við Háskóla Íslands.

Margir telja að það sé tímanna tákn þegar kjölfestueigendur Burðaráss ákváðu að sjóðnum skyldi varið á þennan hátt. Sjóðurinn var um skeið fjórði stærsti hluthafi Eimskipafélagsins sem tryggði að ráðandi öfl á hverjum tíma þurftu sjálf að eiga minna í félaginu sem nam eign sjóðsins í því sjálfu. Það voru nefninlega stjórn félagsins og forstjóri sem réðu sjóðnum. Þannig var hægt að nýta athkvæðaréttinn sem fylgdi eigninni til að styðja meirihlutann í hluthafahópnum hverju sinni.

Fyrirhöfn Björgólfsfeðga, að ná til sín Eimskipafélaginu var því talsverð vegna sjóðsins. Það má velta því fyrir sér hvort því hafi ekki fylgt nokkur skemmtun að koma þessari hindrun í að ná völdum í félaginu í nýjan farveg.

Farvegurinn nú er klár. Stjórn og forstjóri Burðaráss munu áfram ráð yfir sjóðnum. Honum hefur hins vegar mörkuð sú fjárfestingarstefna að fylgja almennum lögmálum um stjórn slíkra sjóða. Þar með getur hann ekki átt í örfáum félögum, hvað þá einu. Stjórn sjóðsins mun á næstunni selja bréf sjóðsins í Burðarási og fjárfesta í öðrum pappírum í staðinn. Salan mun eflaust taka tíma, því sé selt of hratt skapar það hættu á að gengi bréfa Burðaráss lækki.

Framtíðin er sú að sjóðurinn verður vel eignadreifður sjóður sem skilar menntun í landinu árlega drjúgum fjárhæðum. Þannig er draumur stofnenda sjóðsins að verða að veruleika: að sjóðurinn megi verða til eflingar Háskólanum og því merka starfi sem innan hans er unnið. Til þess að snúa til baka til þess að verja völd í Eimskipafélaginu þarf meiri háttar stefnubreytingu sem væntanlega myndi ekki ganga hljóðalaust fyrir sig.

Hafliði Helgason [email protected]




Skoðun

Sjá meira


×