Meðalverð lóða ríflega 100% hærra 15. apríl 2005 00:01
Meðalverð á einbýlishúsalóðum í Norðlingaholti var vel á annað hundrað prósentum hærra í tilboðunum, sem opnuð voru í gær, en í tilboðunum í júní í fyrra. Þá er lóðaverð vegna íbúðar í fjölbýlishúsi orðið hærra en einbýlishúsalóð kostaði fyrir nokkrum misserum. Meðaltilboð verktaka í einbýlishúsalóðir í þriðja áfanga á Norðlingaholti, sem opnuð voru hjá Reykjavíkurborg í gær, hljóðuðu upp á 14 milljónir króna en 6,7 milljónir í sambærilegar lóðir í útboðinu 4. júní í fyrra. Hækkunin er því nokkuð á annað hundrað prósent á einbýlishúsalóðunum, en þær hækka mest. Lóðaverð fyrir íbúðir í tvíbýlis- og raðhúsum hækkar úr 4,3 milljónum upp í allt að 8,7 milljónir og lóðakostnaður vegna íbúðar í fjölbýlishúsi er orðinn rúmar fimm milljónir, hefur hækkað um 2,4 milljónir á íbúð síðan í fyrra. Þeir sem voru dregnir út í lóðahappdrættinu svonefnda við Lambasel í gær detta því sannarlega í lukkkupottinn því þeir fá um það bil tíu milljónir í forgjöf á þá sem sama dag voru að gera tilboð á almennum markaði. Lambaselslóðirnar kosta 3,5 til 4,6 milljónir en meðalverðið í útboðinu var 14 milljónir, eins og áður sagði. Þessi gríðarlega hækkun á lóðaverði mun óhjákvæmilega knýja á um enn frekari hækkun á nýjum íbúðum og þarf sú þróun að haldast áfram fram eftir öllu næsta ári, að íbúðirnar fara að verða tilbúnar, því ella verður að líkindum tap á byggingu þeirra.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Fundu Diego heilan á húfi í heimahúsi Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Sagðist fjárhagslegur þræll móður barnsins sem hann braut á Innlent Svarar Kára fullum hálsi Innlent Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Innlent Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Erlent Vill eyða vantrausti sem sé olía á eld rasisma Innlent Komin með skýra mynd af andláti móðurinnar Innlent Sprengdu tuttugu hús á tveimur mínútum Erlent Stuðningur við Trump kostaði sambandið við Elon Erlent Fleiri fréttir Jarðakaup fjárfesta ógn við matvælaöryggi og nýtt húsnæði Stuðla Minnst þrír foreldrar verkfallsbarna hafi misst vinnuna Fundi frestað hjá kennurum en læknar funda fram á kvöld „Þetta er óhjákvæmilegur meðafli“ Þrjár sviðsmyndir í skoðun en miða við óbreyttan kjördag Nemendur fara í húsnæði KSÍ vegna rakamyndunar Stöðug virkni í eldgosinu frá því í gær Leggja til að rífa skólann því úrbætur yrðu of áhættusamar Lofaði stuðningi og uppskar stuðning kvikmyndagerðarmanna Sagðist fjárhagslegur þræll móður barnsins sem hann braut á Funda vegna slæmrar veðurspár fyrir kjördag Skemmtilegustu kappræður kosningabaráttunnar í kvöld Einn með stöðu sakbornings þrátt fyrir tvo þjófa Leggja til að fleiri heilbrigðisstéttir geti gefið út vottorð Tóku fyrstu skóflustunguna að nýrri verknámsaðstöðu í FB Á góðri leið með að landa samningi í dag eða á morgun Komin með skýra mynd af andláti móðurinnar Um 43 prósent vilja aukinn einkarekstur í heilbrigðiskerfinu Fundu Diego heilan á húfi í heimahúsi Svarar Kára fullum hálsi Lokahönd lögð á kjarasamning lækna í Karphúsinu og Kappleikar í kvöld Þúsundir áhugasamra sjálfboðaliða en engin formleg lögreglurannsókn HR-ingar spyrja frambjóðendur spjörunum úr Segir Miðflokksmönnum að „gráta minna og brosa meira“ Segja allt of mikið gert úr hneykslismálum stjórnmálamanna Súðavíkurnefnd skipuð og hefur ár til að skila niðurstöðum Meirihluti aukinna ríkisútgjalda farið í laun og bætur Mega fresta kosningu í allt að viku verði óveður á laugardag Vill eyða vantrausti sem sé olía á eld rasisma Kölluð út vegna fiskibáts sem hafði misst vélarafl Sjá meira