Þorskkvótinn ekki aukinn 21. apríl 2005 00:01
Stofnavísitala þorsks lækkaði um 16 prósent frá mælingu á síðasta ári og dreifing stofnsins bendir til þess að árgangurinn frá því í fyrra sé mjög lélegur. Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra segir þetta þýða að kvótinn verði ekki aukinn á næsta ári. Hafrannsóknarstofnunin stóð að stofnmælingu á Íslandsmiðum dagana 1. mars til 2. apríl síðastliðins. Alls var togað á 550 rallstöðvum allt í kringum landið. Við mælingarnar kom í ljós að stofnvísitala þorsks lækkaði um 16 prósent frá mælingunni 2004 en óvissan í mælingunni var minni en þá þegar hún var óvenju mikil. Svokallaðar lengdardreifingar þorsksins benda til þess að árangurinn 2004 sé mjög lélegur, árgangurinn 2003 frekar lélegur og árgangurinn 2001 mjög lélegur, eins og það er orðað í fréttatilkynningu frá Hafrannsóknarstofnuninni. Enn fremur kemur fram að árgangurinn 2002 hafi verið nærri meðallagi. Færri svokallaðir einstaklingar mælast nú en áður. Árni Mathiessen segir að þessi tíðindi þýði ekki endilega að kvótinn fyrir næsta fiskveiðiár muni minnka því það sem hafi verið mælt þarna séu fleiri árangangar en séu inni í veiðistofninum. Vissulega hefði verið betra að mælingar hefðu verið betri en það sem sé nýtt í mælingunum sé að yngsti árgangurinn mælist lítill og minni en hann hafi vonast eftir. Hins vegar staðfesti mælingin líka að árgangurinn 2001 sé mjög lítill og það þýði að kvótinn verði ekki aukinn alveg á næstunni. Of snemmt sé þó að segja til um hvort minnka þurfi kvótann á næsta ári, en inn í það komi fleiri þættir.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fundu Diego heilan á húfi í heimahúsi Innlent Sagðist fjárhagslegur þræll móður barnsins sem hann braut á Innlent Svarar Kára fullum hálsi Innlent Minnst þrír foreldrar verkfallsbarna hafi misst vinnuna Innlent Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Innlent Bein útsending: Skemmtilegustu kappræður kosningabaráttunnar Innlent Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Erlent Vill eyða vantrausti sem sé olía á eld rasisma Innlent Komin með skýra mynd af andláti móðurinnar Innlent Fleiri fréttir Skilningsleysi fyrrverandi fjármálaráðherra um að kenna Meðferðarheimili fyrsta skrefið að þjónustuþorpi fyrir börn Skaut þremur skotum að dróna Fiskistofu Sauð upp úr í morgunumferðinni Spákaupmenn ásælist vatn meðan fæðuöryggi sé stefnt í voða Ekið á gangandi vegfaranda á Langholtsvegi Jarðakaup fjárfesta ógn við matvælaöryggi og nýtt húsnæði Stuðla Minnst þrír foreldrar verkfallsbarna hafi misst vinnuna Fundi frestað hjá kennurum en læknar funda fram á kvöld „Þetta er óhjákvæmilegur meðafli“ Þrjár sviðsmyndir í skoðun en miða við óbreyttan kjördag Nemendur fara í húsnæði KSÍ vegna rakamyndunar Stöðug virkni í eldgosinu frá því í gær Leggja til að rífa skólann því úrbætur yrðu of áhættusamar Lofaði stuðningi og uppskar stuðning kvikmyndagerðarmanna Sagðist fjárhagslegur þræll móður barnsins sem hann braut á Funda vegna slæmrar veðurspár fyrir kjördag Bein útsending: Skemmtilegustu kappræður kosningabaráttunnar Einn með stöðu sakbornings þrátt fyrir tvo þjófa Leggja til að fleiri heilbrigðisstéttir geti gefið út vottorð Tóku fyrstu skóflustunguna að nýrri verknámsaðstöðu í FB Á góðri leið með að landa samningi í dag eða á morgun Komin með skýra mynd af andláti móðurinnar Um 43 prósent vilja aukinn einkarekstur í heilbrigðiskerfinu Fundu Diego heilan á húfi í heimahúsi Svarar Kára fullum hálsi Lokahönd lögð á kjarasamning lækna í Karphúsinu og Kappleikar í kvöld Þúsundir áhugasamra sjálfboðaliða en engin formleg lögreglurannsókn HR-ingar spyrja frambjóðendur spjörunum úr Segir Miðflokksmönnum að „gráta minna og brosa meira“ Sjá meira