Leikjavísir

Playstation 3 kemur 23. mars

Tölvan hefur selst í yfir tveimur milljónum eintaka síðan hún kom út í Bandaríkjunum og Japan.
Tölvan hefur selst í yfir tveimur milljónum eintaka síðan hún kom út í Bandaríkjunum og Japan.

Tæknifyrirtækið Sony tilkynnti á dögunum útgáfudag leikjatölvunnar Playstation 3 í Evrópu. Hún kemur út hinn 23. mars og mun kosta 599 evrur eða sem samsvarar um 53 þúsund krónum. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.

Tölvan kom út í Bandaríkjunum og Japan í nóvember, en vandamál við fjöldaframleiðslu ollu því að útgáfu hennar í Evrópu var seinkað. Nú sér fyrir endann á þeirri bið Evrópubúa.

Forveri tölvunnar, Playstation 2, er vinsælasta leikjatölva í heimi. Yfir hundrað milljónir slíkra tölva hafa verið seldar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.