Bíó og sjónvarp

Bara skápur

Örleikritasamkeppnin skápur.
Samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og leiklistardeildar LHÍ.
Örleikritasamkeppnin skápur. Samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og leiklistardeildar LHÍ.

Fræðsludeild Þjóðleikhússins og leiklistardeild Listaháskóla Íslands standa í fjórða sinn fyrir örleikritunarsamkeppni meðal framhaldsskólanema.

Hámarkslengd verkanna er tíu mínútur en lágmarkslengd fimm mínútur. Leikarar mega ekki vera fleiri en þrír og leikmyndin má aðeins vera einn skápur.

Verkin mega ekki hafa birst eða verið sýnd áður.

Handrit skilist rafrænt á netfangið [email protected] en upplýsingar um höfunda verka verða að vera aðskildar í sendingunni. Einnig má skila verkunum undir dulnefni á skrifstofu leiklistardeildar LHÍ að Sölvhólsgötu 13 merktum „Örleikritasamkeppnin Skápur“. Nafn höfundar, símanúmer og netfang skulu þá fylgja í lokuðu umslagi merktu dulnefninu.

Þátttakendum er velkomið að senda fleiri en eitt verk í keppnina. Úrslit keppninnar verða tilkynnt 3. apríl næstkomandi og munu leiklistarnemendur þá flytja bestu verkin.

Spron leggur til verðlaunafé til handa þremur hlutskörpustu leikskáldunum og rennur skilafresturinn út 19. mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.