Heilsa

Hvað á barnið að borða?

Heilsuhúsið heldur námskeið fyrir áhugasama foreldra um mataræði ungra barna.
Heilsuhúsið heldur námskeið fyrir áhugasama foreldra um mataræði ungra barna.

Námskeið um mataræði barna frá sex mánaða aldri.

Hinn 7. maí næstkomandi fer fram námskeið í Heilsuhúsinu um hvernig á að útbúa einfaldan en næringarríkan mat fyrir börn frá sex mánaða aldri. Farið verður yfir á hvaða fæðutegundum er gott að byrja og hvenær.

Einnig verður kennt að meðhöndla og búa til rétti sem innihalda ávexti og grænmeti, heilt korn á borð við quinoa, hirsi, hafra og spelti, baunir eins og linsubaunir sem eru afar prótín- og járnríkar, kaldpressaðar olíur, möndlumauk, sesam­mauk og margt fleira.

Að sögn námskeiðshaldara, Ebbu Guðnýjar Guðmundsdóttur, nýtist þetta námskeið einnig vel þeim sem eru með eldri börn. Við lok námskeiðs fá nemendur veglegt uppskriftar- og fróðleikshefti.

Námskeiðið, sem hefst klukkan 20.00, kostar 2.500 kr. Skráning fer fram í síma 694 6386 og á netfanginu [email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.