Bíó og sjónvarp

Gerir það gott í Þýskalandi

Þorleifur Örn Arnarsson íhugar fimm tilboð sem honum hafa borist frá þýskum leikhúsum.
Þorleifur Örn Arnarsson íhugar fimm tilboð sem honum hafa borist frá þýskum leikhúsum. MYND/Rósa

Þorleifi Erni Arnarssyni hafa borist fimm tilboð frá þýskum leikhúsum í kjölfar sýninga á Eilífri hamingju í Berlín í febrúar. Þorleifur er leikstjóri sýningarinnar og stundar nú leikstjóranám í Berlín. „Leikhúsin eru öll að ákveða hvað þau ætla að gera næsta vetur. Það á eftir að koma í ljós hvað passar inn og hvað ég get tekið að mér,“ sagði Þorleifur og bendir á að staðan sé enn nokkuð óljós.

Sýningarnar á Eilífri hamingju í Maxím Gorkí-leikhúsinu voru vel sóttar af þýsku leikhúsfólki að sögn Þorleifs, en Maxím Gorkí- leikhúsið er eitt þeirra sem hafa lýst yfir áhuga á samstarfi við Þorleif. „Þar myndi ég setja upp verk eftir Lars Norén. Það yrði frumsýnt á norrænni hátíð í Sophiensale og færi þaðan yfir í Maxím Gorkí,“ útskýrði Þorleifur.

Hann er einnig í viðræðum við Schaubühne-leikhúsið. „Gengi það eftir yrði þetta brjálæðislega spennandi. Það er svona eins og að vera valinn í brasilíska landsliðið,“ sagði Þorleifur. Í kortunum er einnig sýning í borginni Schwerin í Austur-Þýskalandi og uppsetning á Hamlet. „Svo hafa margir af stórleikurunum í Berlín tekið sig saman og stofnað sitt eigið leikhús og ég hef verið í viðræðum við þá um að koma inn með sýningu. Það er samt alveg á frumstigi,“ sagði Þorleifur og benti á að síðasta sýning á Eilífri hamingju hér á landi fer fram í Borgarleikhúsinu á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.