Bíó og sjónvarp

Gosling yfirgefur Dag Kára

Þórir Snær vildi ekkert tjá sig um málið.
Þórir Snær vildi ekkert tjá sig um málið.

„Við viljum ekkert tjá okkur málið að svo stöddu. Þetta er allt á mjög viðkvæmu stigi," segir Þórir Snær Sigurjónsson, framleiðandi hjá Zik Zak . Á vefsíðunni imdb.com er bandaríski leikarinn Ryan Gosling kominn út af leikaralistanum hjá nýjustu mynd Dags Kára, Good Heart. Þórir vildi ekkert segja hvort þetta yrði raunin eða ekki en imdb.com hefur hingað til þótt nokkuð áræðanleg í kvikmyndaheiminum.

Framleiðsla á myndinni hefur tafist nokkuð enda hefur Gosling verið önnum kafinn eftir að hafa verið tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í Half Nelson. Hann er talinn vera ein helsta vonarstjarna Hollywood og sló í gegn í klútamyndinni Notebook.

 

Gosling er á vefsíðunni imdb.com sagður hafa dregið sig út úr kvikmynd Dags Kára, Good Heart.

Til að mynda þurfti að fresta tökum eftir að Gosling fékk hlutverkið í Fracture á móti Anthony Hopkins sem nú er sýnd í kvikmyndahúsum borgarinnar. Söngvarinn Tom Waits hafði einnig verið ráðinn í annað aðalhlutverkanna og er nafn hans enn á lista. Þetta verður þriðja kvikmynd Dags Kára í fullri lengd en bæði Nói Albínói og Voksne Mennesker hafa vakið mikla athygli út fyrir landssteinana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.