Innlent

Innbrotahrina á höfuðborgarsvæðinu

MYND/Pjetur

Þrír menn voru í gær úrskurðaðir í viku gæsluvarðhald vegna gruns um aðild að fjölda innbrota og þjófnaða, bæði í fyrirtæki og heimili á höfuðborgarsvæðinu og þá voru tveir menn handteknir í morgun á Vesturlandsvegi með þýfi í bíl sínum.

Segir lögregla að innbrotahrina hafi verið á svæðinu og hafa 80 innbrot verið tilkynnt frá upphafi árs. Til samanburðar hafa að meðaltali 40 innbrot verið tilkynnt á sama tímabili undanfarin ár. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að flest innbrotin séu í hverfum Reykjavíkur með póstnúmer 101 og 105 en fjölgun hafi einnig orðið í Hafnarfirði og Kópavogi samanborið við tölur frá sama tíma á síðasta ári.

Mest er um innbrot í bifreiðar og fyrirtæki og er aukningin áberandi samanborið við sama tímabil í fyrra að sögn lögreglu. Nokkur af málunum séu þegar upplýst en önnur í rannsókn. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segist þegar hafa sett í gang aðgerðir til að stöðva þessa hrinu.

Hvetur lögreglan íbúa til að gæta þess að geyma ekki verðmæti í bílum, huga að lýsingu óupplýstra svæða, einkum við atvinnuhúsnæði, og gera viðeigandi ráðstafanir ef íbúðarhúsnæði er yfirgefið um lengri tíma, t.d. óska eftir því að nágrannar líti til með húsnæðinu.

Einnig hvetur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þá sem búa yfir upplýsingum sem leitt geta til þess að mál upplýsist að koma þeim ábendingum á framfæri við lögregluna í síma 444-1000 (rannsóknardeild R-1, innbrot), með tölvupósti á netfangið [email protected] eða með öðrum hætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×