Spurningamerki við Gordon Brown Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 10. maí 2007 16:14 Brown og Blair á góðri stundu. MYND/AP
Þrátt fyrir að Gordon Brown hafi verið fjármálaráðherra í tíu ár, er hann óskrifað blað sem forsætisráðherra segir í leiðara Sunday Times í London. Fjölmiðlar ytra eru flestir á sömu skoðun og telja að næstu vikur muni leiða í ljós hvaða stefnu Gordon muni taka í málefnum Bretlands, sérstaklega vegna tengsla við Bandaríkin, en afstaða hans hefur verið afar óljós í gegnum fjármálaráðherra tíð hans. Framkoma Browns þykir aukinheldur vera langt frá því fagmannlega fasi sem Tony Blair er þekktur fyrir. Herald Tribune lýsir Brown á þingbekkjunum sem þverum og flæktum og á stundum líkist hann samsærismanni. Ræður hans kalli fram siðferði kristinna manna um vinnusemi og sómatilfinningu. Þetta þykir endurspegla skoskt uppeldi hans. Andrew Turnbull fyrrum samstarfsfélagi Brown í Fjármálaráðuneytinu lýsti stjórnunarstíl Brown sem Stalinískum. Andstæðingar hans lýsa honum sem hranalegum einfara. Fyrir suma stendur hann fyrir dökkan prins sem hefur beðið áratug eftir kórónu sinni, og horft á arf sinn rýrna vegna hins óvinsæla stríðs í írak, sem varð fyrsti vísir að vandræðum í efnahag landsins og orsakaði vaxandi óvinsældir Verkemannaflokksins. Brown er 56 ára sonur prests í Skotlandi. Hann hóf nám í háskólanum í Edinborg 16 ára gamall og gerðist meðlimur í Verkamannaflokknum.
Erlent Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fundu Diego heilan á húfi í heimahúsi Innlent Sagðist fjárhagslegur þræll móður barnsins sem hann braut á Innlent Minnst þrír foreldrar verkfallsbarna hafi misst vinnuna Innlent Bein útsending: Skemmtilegustu kappræður kosningabaráttunnar Innlent Svarar Kára fullum hálsi Innlent Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Innlent Ekið á gangandi vegfaranda á Langholtsvegi Innlent Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Erlent Komin með skýra mynd af andláti móðurinnar Innlent Fleiri fréttir Vopnahlé milli Ísraels og Líbanon í höfn Þjóðhátíð í Nuuk vegna opnunar flugvallarins SpaceX skýtur kjarnorkuknúnum dróna út í geim Sprengdu tuttugu hús á tveimur mínútum Vildi pening í skiptum fyrir falleg orð í eyru Trumps Metárás á innviði með 188 drónum og fjórum skotflaugum Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Ítrekar hótanir um að hækka tolla á Kína, Mexíkó og Kanada Saksóknarar vilja Pelicot í 20 ára fangelsi Annarri ákærunni formlega vísað frá Stuðningur við Trump kostaði sambandið við Elon Saksóknari fellur frá ákærum á hendur Trump Ísrael og Hezbollah sögð við það að gera vopnahlé Ólöglegir og löglegir innflytjendur afar uggandi um framtíð sína Óvæntar niðurstöður í fyrri umferð kosninga í Rúmeníu Scholz verður kanslaraefni Jafnaðarmanna Konur í mestri hættu innan veggja heimilisins Boeing þota hrapaði í garð íbúðarhúss Hezbollah svarar Ísrael með umfangsmikilli loftárás Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Vargöldin á Haítí versnar hratt Tryggja þróunarríkjum 42 billjónir á ári með samkomulagi á COP29 Uppnám á COP29 er fulltrúar þjóða strunsuðu út Vill einn af höfundum „Project 2025“ við stjórn fjárlagaskrifstofu Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Sjá meira