McDonalds vill breyta skilgreiningu á McStarfi Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 24. maí 2007 11:15 MYND/AFP
Skyndibitarisinn McDonalds hefur farið fram á að skilgreining á hugtakinu McJob verði breytt. Í orðabókum er orðið skýrt sem lýsing á starfi sem sé ekki hvetjandi, illa borgað og bjóði upp á lítinn ávinning eða möguleika á stöðuhækkun. McDonalds segir að þessi lýsing sé úrelt og móðgandi. Fyrirtækið segir að könnun hafi leitt í ljós að 69 prósent Breta séu sammála að skilgreininguna þurfi að uppfæra til nútímans. „Núverandi lýsing er sérstaklega móðgandi við þá 67 þúsund starfsmenn sem vinna fyrir McDonalds í Bretlandi," sagði David Fairhurst aðstoðarforstjóri fyrirtækisins við BBC. Hann sagði skilgreininguna einnig móðgandi við aðra sem ynnu á veitingastöðum og í ferðamannaþjónustu. Fyrirtækið segist setja 90 prósent starfsmanna sinna í þjálfun sem nýtist þeim út lífið. Og 82 prósent starfsmanna myndu mæla með fyrirtækinu við vini sína. „Það er kominn tími til að Oxford orðabókin breyti skilgreiningunni," sagði Fairhurst. Gagnrýnendur segja þó að orðabækur eigi að lýsa heiminum eins og hann er, ekki eins og fyrirtæki vilji að hann sé sýndur. Nú liggja fyrir undirskriftarlistar á McDonalds í Bretlandi þar sem viðskiptavinir geta skrifað nafn sitt. Eða á heimasíðu sem stofnuð hefur verið af þessu tilefni.
Erlent Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fundu Diego heilan á húfi í heimahúsi Innlent Sagðist fjárhagslegur þræll móður barnsins sem hann braut á Innlent Svarar Kára fullum hálsi Innlent Minnst þrír foreldrar verkfallsbarna hafi misst vinnuna Innlent Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Innlent Bein útsending: Skemmtilegustu kappræður kosningabaráttunnar Innlent Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Erlent Vill eyða vantrausti sem sé olía á eld rasisma Innlent Komin með skýra mynd af andláti móðurinnar Innlent Fleiri fréttir Þjóðhátíð í Nuuk vegna opnunar flugvallarins SpaceX skýtur kjarnorkuknúnum dróna út í geim Sprengdu tuttugu hús á tveimur mínútum Vildi pening í skiptum fyrir falleg orð í eyru Trumps Metárás á innviði með 188 drónum og fjórum skotflaugum Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Ítrekar hótanir um að hækka tolla á Kína, Mexíkó og Kanada Saksóknarar vilja Pelicot í 20 ára fangelsi Annarri ákærunni formlega vísað frá Stuðningur við Trump kostaði sambandið við Elon Saksóknari fellur frá ákærum á hendur Trump Ísrael og Hezbollah sögð við það að gera vopnahlé Ólöglegir og löglegir innflytjendur afar uggandi um framtíð sína Óvæntar niðurstöður í fyrri umferð kosninga í Rúmeníu Scholz verður kanslaraefni Jafnaðarmanna Konur í mestri hættu innan veggja heimilisins Boeing þota hrapaði í garð íbúðarhúss Hezbollah svarar Ísrael með umfangsmikilli loftárás Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Vargöldin á Haítí versnar hratt Tryggja þróunarríkjum 42 billjónir á ári með samkomulagi á COP29 Uppnám á COP29 er fulltrúar þjóða strunsuðu út Vill einn af höfundum „Project 2025“ við stjórn fjárlagaskrifstofu Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Sjá meira