Uefa tekur Dida inn á teppi 8. október 2007 13:53 Dida lét bera sig af velli eftir léttan kinnhest AFP
Knattspyrnusamband Evrópu hefur nú tekið til rannsóknar meint agabrot markvarðarins Dida hjá AC Milan eftir að honum var skipt af velli í leik liðsins gegn Glasgow Celtic í síðustu viku. Áhorfandi hljóp þá inn á völlinn og blakaði höndinni að markverðinum, sem henti sér í jörðina og gerði sér upp meiðsli. Hann var borinn af velli á börum og vöktu þessi leikrænu tilþrif hans mikla reiði Skota í kjölfarið. Nokkrir leikmanna ítalska liðsins gagnrýndu líka tilþrif markvarðarins en sögðust þó standa við bakið á honum í málinu. Mál Dida verður tekið fyrir á fimmtudaginn og í tilkynningu frá sambandinu segir að atvikið hafi verið rannsakað sérstaklega þar sem agareglur sambandsins segi skýrt að "leikmenn sem og aðrir verði að hegða sér í samræmi við reglur og venjur sem heyra til íþróttamennsku og heiðarleika." Þá verður mál skoska áhorfandans einnig tekið fyrir á fimmtudaginn þar sem Celtic gæti átt yfir höfði sér heimavallarbann eða háa sekt vegna málsins.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Fótbolti Í beinni: Ítalía - Ísland | Strákarnir leita hefnda Körfubolti Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Tólf leikmenn komnir til KR Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tímabært að breyta til Handbolti Fleiri fréttir Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Í beinni: Newcastle - West Ham | Skjórarnir geta flogið upp um þrjú sæti Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Sjá meira