Bíó og sjónvarp

Jólamynd í efsta sæti

Með aðalhlutverk í myndinni fara Reese Witherspoon og Vince Vaughn.
Með aðalhlutverk í myndinni fara Reese Witherspoon og Vince Vaughn.

Gamanmyndin Four Christmases með Reese Witherspoon og Vince Vaughn í aðalhlutverkum fór beint í efsta sætið á aðsóknarlistanum vestanhafs um síðustu helgi.

Um ekta jólamynd er að ræða þar sem fjölskyldugríni og jólunum er blandað saman á hressilegan hátt. Fjallar myndin um par sem ætlar að heimsækja alla fjóra fráskilda foreldra sína á jóladag.

Í öðru sæti á listanum var vampírumyndin Twilight og í því þriðja var teiknimyndin Bolt þar sem John Travolta talar fyrir aðalpersónuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.