Bíó og sjónvarp

Berst við glæpamenn

kim basinger
kim basinger
Næsta mynd Kim Basinger, tryllirinn While She Was Out, kemur í bíó vestanhafs tólfta desember næstkomandi. Þar leikur hún eiginkonu í úthverfi nokkru sem lendir í því að hópur glæpamanna situr um hana á aðfangadag jóla. Berst hún fyrir lífi sínu eingöngu með verkfærabox að vopni.

Basinger, sem verður 55 ára fjórum dögum áður en myndin verður frumsýnd, sást síðast á hvíta tjaldinu fyrir tveimur árum í myndunum Even Money og The Sentinel. Leikstjóri og handritshöfundur While She Was Out er Susan Montford og er þetta frumraun hennar á þessu sviði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.