Bíó og sjónvarp

Fjórar íslenskar myndir fyrir jól

Hasssalinn Anna með gæs sem er mikill áhrifavaldur í sögunni Didda skreppur út og íbúðin hennar fyllist af hasshausum á meðan.
Hasssalinn Anna með gæs sem er mikill áhrifavaldur í sögunni Didda skreppur út og íbúðin hennar fyllist af hasshausum á meðan.

Að minnsta kosti fjórar íslenskar myndir verða frumsýndar fyrir jól ef allt gengur samkvæmt áætlun.

Fyrst á dagskrá er gamanmyndin Skrapp út eftir Sólveigu Anspach, sem endurtekur leikinn síðan í myndinni Stormy Weather og fær Diddu til að leika aðalhlutverkið í mynd sinni. Didda leikur skáldið og hasssalann Önnu sem ákveður að selja „reksturinn", farsíma með nöfnum og símanúmerum kúnnanna. Meðan á kostulegu söluferlinu stendur fyllist íbúðin hennar af kúnnum - fólki eins og Krumma, Óttarri Proppé og Frikka pönk sem bíða spenntir eftir næsta skammti.

Sveitabrúðkaup, gamanmynd sem Valdís Óskarsdóttir leikstýrir, verður frumsýnd í lok sumars. Þetta er fyrsta myndin sem Valdís leikstýrir en hún hefur getið sér gott orð sem klippari síðustu árin. Par ákveður að giftast í kirkju úti á landi, en flest fer á annan veg en áætlað var.

Gamanspennumyndin Reykjavík-Rotterdam verður frumsýnd 19. september. Þetta er fyrsta bíómynd Óskars Jónassonar síðan hann leikstýrði Perlum og svínum árið 1997, en hann hefur vitaskuld haldið sér við efnið í sjónvarpinu. Hann skrifaði handritið með Arnaldi Indriðasyni og Baltasar Kormákur og Ingvar E. Sigurðsson leika aðalhlutverkin.

Fjórða íslenska myndin fyrir jól er svo Queen Raquela, mynd Ólafs Jóhannessonar um filippseyska kynskiptinginn Raquela. Myndinni hefur gengið vel á kvikmyndahátíðum erlendis og vakið umtal.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.