Feginn að sjá skotið fara niður 5. október 2008 20:01 Jason Dourisseau Mynd/Stefán
Bandaríkjamaðurinn Jason Dourisseau var að vonum ánægður eftir að flautukarfa hans tryggði KR-ingum sigur á Grindavík í úrslitaleik Powerade bikarsins í dag. KR hafði 98-95 sigur fyrir tilstilli þriggja stiga körfu hans um leið og lokaflautið gall, en leikurinn var frábær skemmtun frá upphafi til enda. "Þetta hefði nú ekki átt að vera svona jafnt þarna í lokin því ég klikkaði á nokkrum auðveldum skotum, en mig langaði rosalega að vinna leikinn og ég er feginn að það tókst," sagði Dourisseu í samtali við Vísi eftir leikinn. "Ég var opinn og ég er tilbúinn að taka svona skot ef með þarf. Ég æfi þetta á hverjum degi og ég missi ekki sjálfstraustið þó ég klikki á nokkrum skotum. Ég var bara feginn að sjá það fara niður." Dourisseau var að öðrum ólöstuðum besti maður vallarins með 29 stig, 17 fráköst og 6 stoðsendingar. Hann hefur mikla trú á félögum sínum og stefnir á að verða Íslandsmeistari með KR. "Við erum með mikla hæfileikamenn í þessu liði, en við erum alls ekki sáttir og viljum gera enn betur. Þjálfarinn gerir vel í að halda okkur á tánum. Ég hef mikla trú á þessu liði og ég veit að það sama á við um hina strákana í liðinu. Við viljum verða meistarar."
Dominos-deild karla Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport Dagskráin í dag: Tími fyrir endurheimt Sport FH-ingar kynntu Birki og Braga Íslenski boltinn Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Fótbolti Fleiri fréttir Kallaði dómarann tík og rúmlega það LaMelo Ball í 50-stiga klúbbinn Björgvin aftur í Breiðholtið Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Hefur Ben Simmons náð botninum? Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Aðalþjálfari Ítalíu var með hausverk og horfði ekki á seinni hálfleik Fer á mjög dimman stað þegar lið hans tapar „Fannst þeir sýna meiri hörku, sem ég átti erfitt með“ „Auðvitað söknum við okkar besta og reynslumesta manns“ Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir „Eins og þeim finnist ekkert gaman að spila körfubolta“ Mæta sitthvoru ítalska liðinu í leikjunum tveimur „Löngu kominn tími til að fara á EuroBasket“ Ævintýraleg upphafsár Kananna í körfu á Íslandi „Hvernig eigum við að ná á EM ef að landsliðsmenn okkar eru ekki í liðinu?“ Eina félagið án útlendinga: „Þurfum vettvang fyrir unga leikmenn“ „Margir með konur en eru kannski einir í útlöndum“ „Sá sem lak þessu er skíthæll“ Gafst upp á að læra frönskuna Tekst á við lífið á nýjum stað: „Svolítið óstabílt umhverfi“ LeBron James hættur á samfélagsmiðlum Fékk tæknivillu fyrir að horfa á mótherja Gerði betur en Curry, jafnaði NBA met og hermdi eftir Jordan „Þurftu að þora að vera til“ Þjálfaraskipti hjá ÍR og Fjölni í körfunni Stjörnukonur flottar á Hlíðarenda og Þórskonur fögnuðu áfram fyrir norðan Uppgjörið: Keflavík - Tindastóll 90-89 | Spennutryllir Áhrifavaldur til liðs við nýliðana í Vesturbænum Sjá meira