Bíó og sjónvarp

Kidman næsti Indiana Jones

Nicole Kidman skipar sér fljótlega í flokk með kunnustu hasarmynda­hetjum.
Nicole Kidman skipar sér fljótlega í flokk með kunnustu hasarmynda­hetjum.

Leikkonan Nicole Kidman hefur tekið að sér hlutverk í kvikmyndinni The Eighth Wonder, sem á íslensku myndi útleggjast sem Áttunda undrið, en áætlað er að tökur á myndinni hefjist á næsta ári. Myndin er sögð vera ævintýra- og hasarmynd í anda Indiana Jones-myndanna og fjallar um fornleifafræðinga sem, í kjölfar merkilegrar uppgötvunar, halda í æsilega fjársjóðsleit á framandi stöðum. Handritshöfundur myndarinnar er Simon Kinberg sem skrifað hefur handritið að myndum á borð við Mr. & Mrs. Smith og Night at the Museum 2. Kinberg kveðst hafa haft Kidman í huga þegar hann hófst handa við að skrifa handrit Áttunda undursins og er því skiljanlega hæstánægður með að fá leikkonuna til liðs við verkefnið. Kidman hefur ekki aðeins tekið að sér aðalhlutverk myndarinnar, heldur er hún einnig einn af framleiðendum hennar.

Athygli vekur að Áttunda undrið verður önnur hasarmynd Kidman á innan við tveimur árum, en leikkonan hefur fram að þessu ekki verið sérlega þekkt fyrir leik sinn í slíkum myndum. Um jólin er væntanleg í kvikmyndahús stórmynd leikstjórans Baz Luhrmann, Australia, en í henni leikur Kidman enska hefðarkonu og landeiganda sem kemst í hann krappan þegar til stendur að þvinga hana út af landareign sinni.- vþ








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.