Álaborg komst áfram en Brann úr leik - Kristján skoraði Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. ágúst 2008 21:01 Kristján Örn í baráttu við markaskorarann Niang í kvöld. Nordic Photos / AFP
Tvö lið frá Norðurlöndunum áttu möguleika í kvöld að komast áfram í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Álaborg frá Danmörku tókst verkefnið en Íslendingaliðið Brann er úr leik. Brann fær þó að keppa í UEFA-bikarkeppninni á komandi keppnistímabili. Álaborg vann samtals 4-0 sigur á Kaunas frá Litháen en síðarnefnda liðið sló út Rangers í annarri umferð forkeppninnar. Báðum viðureignunum lauk með 2-0 sigri Dananna. Brann tapaði samanlagt 3-1 fyrir Marseille frá Frakklandi. Fyrri leik liðanna lauk með 1-0 sigri Frakkanna í Noregi en Marseille vann 2-1 sigur á heimavelli í kvöld. Kristján Örn Sigurðsson skoraði mark Brann í kvöld og jafnaði þar með metin í 1-1 á 74. mínútu. Hins vegar tapaði hann boltanum í bæði skiptin er Marseille skoraði sín mörk en sigurmark Frakkanna kom á lokamínútu leiksins. Mamadou Niang skoraði bæði mörk Marseille. Ólafur Örn Bjarnason og Gylfi Einarsson voru báðir í byrjunarliði Brann en Gylfi var tekinn af velli á 65. mínútu. Birkir Már Sævarsson og Ármann Smári Björnsson voru á bekknum hjá Brann en Birkir Már kom inn á sem varamaður á 69. mínútu.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti Kristinn: Við vorum geggjaðir Körfubolti Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Enski boltinn Uppgjör: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Elvar: Við erum kannski bara svona skemmtilega vitlausir Körfubolti Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Fótbolti Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Íslenski boltinn Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Fótbolti Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Fótbolti Fleiri fréttir Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Sjá meira