Bíó og sjónvarp

Tekjuhæsta mynd allra tíma

Mama Mia! Söngvamyndin Mama Mia! er uppfull af lögum sænsku hljómsveitarinnar Abba.
Mama Mia! Söngvamyndin Mama Mia! er uppfull af lögum sænsku hljómsveitarinnar Abba.

Söngvamyndin Mamma Mia! með Meryl Streep og Pierce Brosnan í aðalhlutverkum er orðin tekjuhæsta breska mynd allra tíma í heimalandi sínu. Síðan myndin kom út í júlí hefur hún þénað rúmar 67 milljónir punda, rúmri milljón meira en fyrsta Harry Potter-myndin aflaði í Bretlandi.

Mamma Mia! er þar með orðin önnur tekjuhæsta kvikmynd sögunnar í Bretlandi á eftir Titanic. Bretar eru ekki þeir einu sem hrífast af myndinni því hún er einnig orðin tekjuhæsta myndin í Þýskalandi, Nýja-Sjálandi, Suður-Afríku og Svíþjóð. Hér á landi hafa bíógestir einnig flykkst á myndina.

„Hið áhugaverða er hversu fljótt myndin hefur náð þessu takmarki," sagði David Kosse hjá Universal Pictures International. „Við erum komin fram úr Harry Potter og sækjum fast að Titanic. Ein ástæðan fyrir vinsældunum er sú að fólk kemur að horfa á hana aftur og aftur. Við höfum aldrei séð svona lagað áður."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.