Bíó og sjónvarp

Til í framhaldsmynd

Meryl Streep segist vera tilbúin til að gera framhaldsmynd af Mamma mia og er ánægð með þær vinsældir sem myndin hefur notið út um allan heim.
Meryl Streep segist vera tilbúin til að gera framhaldsmynd af Mamma mia og er ánægð með þær vinsældir sem myndin hefur notið út um allan heim.

Meryl Streep segist vera tilbúin til að gera framhaldsmynd af kvikmyndinni Mamma Mia. Myndin, sem er byggð á tónlist sænsku hljómsveitarinnar Abba, hefur slegið í gegn út um allan heim og er nú komin út á DVD.

Í viðtali við breska dagblaðið Daily Mail segist leikkonan vera himinlifandi yfir þeim vinsældum sem myndin hefur notið. Meryl, sem vakti mikla lukku í hlutverki sínu í Mamma Mia þar sem hún bæði dansaði og söng, segist vera tilbúin að endurtaka leikinn.

Eina skilyrðið sem hún setur er að meðleikarar hennar Pierce Brosnan, Colin Firth, Stellan Skarsgard og Dominic Cooper verði aftur með.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.